Ægir - 01.08.2014, Page 35
Virkt gæðakerfi tryggir
heilnæm matvæli
» Gerð gæðahandbóka og ráðgjöf
við uppsetningu gæðakerfa
Ráðgjafi Ísgens hannar gæðahandbók og
skráningargögn í samvinnu við framleiðanda og
veitir aðstoð við innleiðingu kerfisins.
» Samningur milli framleiðanda og Ísgens
um eftirfylgni
Ráðgjafi hannar gæðakerfið í samvinnu við
framleiðandann og annast viðhald og uppærslu
þess. Heimsækir fyrirtækið reglulega og sér m.a.
um árlega sannprófun, prófun mælitækja,
fræðslu til starfsmanna og fylgir eftir úrbótum
vegna frávika við eftirlitsskoðanir
Matvælastofnunar. Hann er einnig viðstaddur
úttektir eftirlitsaðila og kaupenda og veitir alla
almenna ráðgjöf varðandi gæðamál. Lögð er
áhersla á persónulega þjónustu og nálægð við
viðskiptavininn.
» Aðstoð við uppbyggingu gæðakerfis
samkvæmt kröfum vottunaraðila
Kaupendur matvæla gera kröfur um vottun af
ýmsu tagi. Má þar nefna vottun samkvæmt
stöðlum kaupmannasamtaka t.d. BRC og IFF og
vottun á sjálfbærni fiskveiða samkvæmt staðli
MSC. Ísgen veitir ráðgjöf um uppsetningu
gæðakerfa sem uppfylla kröfur þessara
vottunaraðila.
» Úttektir á gæðum matvæla
Ísgen annast óháðar úttektir á gæðum matvæla
að beiðni framleiðanda, kaupenda, seljanda,
flutningsaðila eða tryggingafélaga. Úttektir eru
framkvæmdar samkvæmt stöðluðum aðferðum
og hverri úttekt fylgir vönduð úttektarskýrsla
ásamt myndum. Dæmi um úttektir er úttekt
grásleppuhrogna, makríls, grálúðu og annarra
fisktegunda.
» Námskeið um gæðamál
Stöðugt er þörf á fræðslu fyrir stjórnendur og
almenna starfsmenn í matvælaiðnaði. Ísgen
býður sérhæfð námskeið fyrir ábyrgðarmenn
gæðakerfa um góða framleiðsluhætti, gerð
gæðahandbóka, uppbyggingu gæðakerfa sem
byggja á hugmyndafræði HACCP, matvælalöggjöf
ESB og starfsemi opinberra eftirlitsaðila. Einnig
eru í boði styttri námskeið fyrir almenna
starfsmenn um hreinlæti, umgengni og
hollustuhætti.
» Ráðgjafinn
Róbert Hlöðversson er eigandi Ísgens og
jafnframt framkvæmdastjóri. Róbert er með
doktorspróf í fóðurfræði og starfaði við
fóðurfræðirannsóir og kennslu um árabil. Áður
en hann hóf störf sem ráðgjafi rak hann faggilda
skoðunarstofu í sjávarútvegi í tæplega tvo
áratugi. Hann býr því yfir góðri faglegri þekkingu
og reynslu af starfsvettvangi Ísgens.
Hestháls 6-8 – 110 Reykjavík – Sími 897 0525 – robert@isgen.is – www.isgen.is