Ægir - 01.08.2014, Page 74
70
matis.is Bás C50
Matís hefur á undanförnum árum staðið
fyrir og komið að fjölþættum fræðslu-
verkefnum sem miða að því að efla
kunnáttu sjómanna og starfsfólks í land-
vinnslufyrirtækjum um mikilvægi réttrar
meðhöndlunar sjávarfangs. Um er að
ræða bæði námskeið, útgáfu handbóka,
gerð fræðslumyndbanda og nú síðast
gerð smáforrits um ísþörf þegar gengið
er frá afla í fiskiker. Páll Gunnar Pálsson,
verkefnastjóri hjá Matís, segir að þrátt
fyrir almenn þekking hafi aukist á
undanförnum árum í sjávarútvegi þá
þurfi stöðugt að halda vöku sinni, miðla
fræðslu og hvatningu um rétta meðferð
og beina nýju fólki sem hefji störf í
greininni strax inn á réttar brautir. Hann
segir mikilvægt að nýta þær tækninýj-
ungar sem fram komi til þessa starfs, líkt
og ísappið er gott dæmi um.
Fræðslu miðlað í gegnum netið
„Við höfum haldið námskeið vítt og
breitt um landið fyrir smábátasjómenn
um bætta meðferð afla og höfum í
tvígang gefið út fræðslubæklinga um
það efni,“ segir Páll Gunnar en Matís
hefur einnig staðið að útgáfu fræðslu-
bóka um fiskvinnslu, til að mynda Salt-
fiskhandbókarinnar í fyrra, sem er gagn-
leg handbók fyrir saltfiskframleiðendur.
„Hún er aðgengileg rafrænt hjá okkur á
heimasíðu Matís og sömuleiðis erum við
þessa dagana að gefa út handbók um
fiskþurrkun sem verður með svipuðum
hætti aðgengileg. Allt miðar þetta að því
að stuðla að réttum vinnubrögðum í
vinnslu, bæta hráefnismeðferð og ná
sem mestum gæðum út úr afurðum.
Vonandi munum við svo innan tíðar
geta boðið þetta efni í nýju námskeiðs-
formi á netinu sem þá nýtist enn betur.
Það kalla margir eftir slíku frá okkur,
bæði skólarnir og fyrirtækin enda er
þörfin alltaf til staðar og nauðsynlegt að
halda alltaf vöku sinni í fræðslu á þessu
sviði. Það reynum við að gera,“ segir
Páll Gunnar.
Matís
Vínlandsleið 12, Reykjavík
Sími 422 5000
matis@matis.is
Fræðsla sem skilar
árangri
Páll Gunnar Pálsson, verkefnastjóri hjá Matís.