Ægir - 01.08.2014, Side 76
72
Aðkoma Odda að Íslensku sjávarút-
vegssýningunni er fyrst og fremst í
tengslum við framleiðslu á umbúðum,“
segir Jón Ómar Erlingsson, fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins.
Árið 2008 sameinuðust Oddi og
Kassagerðin og þá hófst umbúðafram-
leiðsla hins nýja fyrirtækis af krafti. Fyrir-
tækin eru bæði gamalgróin á íslenskum
markaði, Kassagerðin stofnuð árið 1932
og Oddi tíu árum síðar. Bæði fyrirtækin
efldust og döfnuðu í löngum og farsæl-
um rekstri þangað til þau sameinuðu
krafta sína undir nafni Odda árið 2008.
Síðan bættist Plastprent í hópinn um
áramótin 2012/2013 og við samein-
inguna varð til öflugt, íslenskt fyrirtæki á
umbúðamarkaði, byggt á gömlum
grunni og með yfir 300 starfsmenn.
Áttatíu ára vegferð
Umbúðir eru mjög stór hluti af umsvifum
Odda í dag og þar eru sjávarútvegsfyrir-
tækin langöflugust í viðskiptum. „Þetta
eru að megninu til rammíslenskar um-
búðir sem hafa þróast í góðu samstarfi
við sjávarútveginn á áttatíu ára vegferð,“
segir Jón Ómar. Samhliða heildstæðri
umbúðalínu býður Oddi að sjálfsögðu
sem fyrr hvers konar prentþjónustu.
Sveigjanleiki og viðbragðsflýtir
Jón Ómar kveður sameinað fyrirtæki í
mörgum tilvikum eina framleiðandann
hér á landi þegar kemur að sérhæfðum
umbúðum fyrir sjávarútveginn. „Fyrir
utan það, að við getum boðið vörur sem
við vitum af mikilli reynslu að virka, þá
getum við boðið vörurnar með afskap-
lega skömmum fyrirvara.
Sjávarútvegurinn getur verið óút-
reiknanlegur þegar kemur að aflabrögð-
um og oft er nauðsynlegt að geta
brugðist mjög snögglega við. Þar erum
við sterkir,“ segir Jón Ómar. Hann nefnir
sem dæmi að makrílvertíðin hafi verið
óvenju stór í ár, en að Oddi hafi náð að
framleiða tilskilið magn og sýnt nægi-
legan viðbragðsflýti til að viðskiptavinir
hafi verið hæstánægðir.
Þriðjungur veltu tengist sjávarútvegi
Jón Ómar bendir á að umbúðafram-
leiðsla Odda sveiflist óhjákvæmilega í
takt við vertíðir. „Þriðjungur heildarveltu
fyrirtækisins tengist sjávarútveginum
beint og um þriðjungur starfsfólks okkar
sömuleiðis. Það gerir 100 störf í þjón-
ustu við sjávarútveg, sem er sambæri-
legur mannauðnum hjá stærstu útgerð-
um landsins. Flest á Íslandi tengist sjáv-
arútvegi með einhverjum hætti og þar
erum við á heimavelli,“ bætir Jón Ómar
við að lokum.
oddi.is Bás D61
Prentsmiðjan Oddi
Höfðabakka 7, Reykjavík
Sími 515 5000
Fax 515 5001
oddi@oddi.is
Jón Ómar Erlingsson, framkvæmdastjóri Odda.
Þriðjungur heildarveltu Odda tengist sjávarútveginum beint og um þriðjungur starfsfólksins
sömuleiðis.
Fjölbreyttar umbúðir
fyrir sjávarútveginn