Ægir - 01.08.2014, Side 112
108
Ísfell ehf. er eitt öflugasta fyrirtæki á Ís-
landi á sviði veiðarfæraþjónustu og sölu
á útgerðarvörum, björgunarvörum,
bindivörum, hífilausnum og ýmsum öðr-
um rekstrarvörum. Í raun má segja að
útgerðir þurfi ekki að leita annað, slíkt er
vöruúrval fyrirtækisins. Tæplega 300
blaðsíðna vörulisti Ísfells ehf. ber það
líka með sér en listinn er bæði gefinn út
á prenti og aðgengilegur á vefsíðu fyrir-
tækisins, isfell.is.
Vöxtur Ísfells ehf. hefur verið hraður.
Fyrirtækið var stofnað 1992 og á rúm-
lega 20 ára ferli hefur það margfaldast
að stærð. Í dag eru starfsmenn um 60
talsins og starfsaldur er að meðaltali
rúmur áratugur. Innandyra er því víðtæk
uppsöfnuð þekking á vörum Ísfells ehf.
og ekki síður á þörfum viðskiptavin-
anna, jafnt innlendra sem erlendra en
talsvert er um viðskipti við útgerðir utan
landsteinanna.
Teygir sig um landið
Stór hluti viðskiptavina Ísfells ehf. er á
landsbyggðinni og Gunnar Skúlason
framkvæmdastjóri segir það meðvitaða
ákvörðun að hafa starfsstöðvar sem
næst viðskiptavinunum. Höfuðstöðvar
fyrirtækisins eru við Óseyrarbraut í
Hafnarfirði, þar sem Ísfell ehf. er með
rúmgott húsnæði og stórt útisvæði.
Starfsstöðvarnar utan höfuðborgar-
svæðisins eru sex. Ísfell rekur netaverk-
stæði undir heitinu Ísnet í Þorlákshöfn,
Vestmannaeyjum, á Húsavík, Akureyri,
Ólafsfirði og á Sauðárkróki. Þessu til
viðbótar sækir Ísfell tölvuþjónustu til
Selfoss, launabókhald til Hafnar, net- og
vefþjónustu til Sandgerðis og símaþjón-
ustu til Akureyrar. „Auðvitað gætum við
stýrt þessu öllu héðan en við leggjum
áherslu á að sinna þeim markaði, sem
við erum að vinna á, með þessum
hætti,“ segir Magnús Eyjólfsson, sölu-
og markaðsstjóri Ísfells ehf.
Dótturfyrirtæki í Kanada
Auk starfseminnar á Íslandi rekur Ísfell
ehf. dótturfyrirtæki í Kanada, North Atl-
antic Marine Supplies and Services Inc.,
sem byggir á sama grunni og reksturinn
hér heima, þ.e. þjónustu við útgerðir.
Þar starfa 35 manns á þremur stöðum;
St. John‘s og Port au Choix á Nýfundna-
landi og Halifax í Nova Scotia.
Ísfell ehf. hefur frá upphafi lagt
áherslu á gott úrval af gæðavörum,
áreiðanleika gagnvart viðskiptavinum
og frábært starfsfólk með víðtæka
þekkingu á sviði veiðarfæra, rekstrar-
vara og öryggismála sjómanna. Mark-
mið stjórnenda og starfsfólks er að
standa undir nafni sem stærsta vöruhús
sjávarútvegsins á Íslandi. „Þetta er eilífur
slagur en við leggjum okkur fram um að
slaka aldrei á klónni þegar kemur að
vörum okkar og þjónustu,“ segir Gunnar.
Alþjóðlegt yfirbragð í Fífunni
Forsvarsmenn Ísfells ehf. hafa lagt ríka
áherslu á sterka tengingu við helstu
birgja sína erlendis, sem hafa á sama
hátt ræktað tengsl við marga viðskipta-
vini Ísfells hér heima. Á Íslensku sjávar-
útvegssýningunni í Fífunni verður bás Ís-
fells, D-20, óneitanlega með alþjóðlegu
yfirbragði því þar verða átta fulltrúar er-
lendra samstarfsaðila fyrirtækisins til
þess að kynna vörur sínar með Ísfelli
ehf.
isfell.is Bás D20 og O2a
Ísfell ehf.
Óseyrarbraut 28, Hafnarfirði
Sími 520 0500
isfell@isfell.is
Vöruhús
sjávarútvegsins
á Íslandi
Magnús Eyjólfsson, sölu- og markaðsstjóri, Jónas Þ. Friðriksson, sölustjóri togveiðarfæra og
Gunnar Skúlason, framkvæmdastjóri Ísfells ehf. Að baki þeim er örlítið brot vöruúrvals fyrir-
tækisins.