Ægir - 01.08.2014, Side 118
114
Öryggisfyrirtækið Nortek er fjölskyldu-
fyrirtæki sem stofnað var á Akureyri árið
1996. Nortek sérhæfir sig í öllum al-
mennum öryggiskerfum eins og inn-
brota- og brunaviðvörunarkerfum, að-
gangsstýringum, myndeftirlitskerfum og
slökkvikerfum. Í tengslum við nýsmíðaá-
tak útgerðafélaganna síðastliðin ár hef-
ur fyrirtækið aukið enn frekar áherslu á
þjónustu við sjávarútveginn og bætt í
vörulínuna t.d. vélgæslu-, tankmæli- og
orkustjórnunarkerfum ásamt björgunar-
búnaði.
„Allt frá stofnun Nortek höfum við
haft mikinn áhuga á að þjóna sjávarút-
veginum og má sennilega rekja það til
þess að við komum sjálf úr þessu um-
hverfi, en afi minn Björgvin Jónsson var
skipstjóri og útgerðarmaður á Dalvík til
fjölda ára,“ segir Guðrún Ýrr Tómasdótt-
ir, stjórnarformaður og markaðsstjóri hjá
Nortek. Sjálf er Guðrún Ýrr ein fárra
kvenna með sveinspróf í rafeindavirkjun
og hefur því menntun og þekkingu sem
nýtist til starfa á þessum markaði. Hún
segir að til þessa hafi útgerðin verið í
meiri viðskiptum við Nortek en land-
vinnslan og nefnir sem dæmi að þegar
haloni var skipt út í slökkvikerfum fyrir
nokkrum árum hafi um 80% flotans tekið
inn nýjan slökkvimiðil, Novec 1230, sem
Nortek selur og þjónar.
Breytt viðhorf
Guðrún segir að viðhorf til öryggiskerfa
hafi tekið miklum breytingum á þeim 18
árum sem Nortek hefur starfað. „Þegar
við byrjuðum að kynna brunaviðvör-
unarkerfi um borð í fiskiskipum mættu
okkur nokkrar efasemdir. Í hugum
margra var brunaviðvörunarkerfi sjaldn-
ast til friðs og sumir notendur höfðu af-
tengt viðvörunarkerfið vegna ótíma-
bærra og tíðra falsboða. Í dag hefur
þetta viðhorf gjörbreyst enda hafa
kerfin þróast mikið og sannað gildi sitt.
Nú býðst búnaður sem hannaður er fyrir
þær aðstæður sem geta skapast sem
gerir það að verkum að fölsk boð heyra
til algjörra undantekninga. Það má ekki
heldur gleyma starfi Slysavarnarskóla
sjómanna sem hefur unnið gott starf í
þessum efnum.“ Guðrún segir að ör-
yggismarkaðurinn hafi breyst mikið á
síðustu árum bæði í þjónustuframboði
og fjölda fyrirtækja og hefur Nortek
stækkað jafnt og þétt innan hans. „Við
höfum haldið okkur við það að vera
fyrst og fremst tæknifyrirtæki sem býður
þróaðar og traustar lausnir.“
Þjónusta erlendis
Nortek hefur frá upphafi átt náin og góð
tengsl við erlenda birgja og samstarfs-
aðila og hefur bæði á eigin vegum og í
samstarfi við þá sinnt mörgum verkefn-
um erlendis. Fyrirtækið hefur selt vörur,
tekið að sér verkefnastjórn, forritun og
uppsetningu á öryggiskerfum og ýms-
um öðrum lausnum. „Birgjar okkar hafa í
töluverðum mæli nýtt sér þá miklu
reynslu sem tæknimenn okkar hafa öðl-
ast í erlendum verkefnum og má þar
meðal annars nefna verkefni á Kanarí-
eyjum, Sierra Leone, Saudi Arabíu,
Rússlandi, Póllandi, Tyrklandi, Noregi,
Grænlandi, Hollandi, Færeyjum og
Þýskalandi. Sem dæmi má nefna að ný-
lega var kallað eftir íslenskum viðgerða-
manni frá okkur til að fara til Sierra Leo-
ne að gera við brunaviðvörunarkerfi í
skemmtiferðaskipi sem þar hafði bilað.
Þannig að það eru bæði margvísleg og
spennandi verkefni sem mæta okkur á
hverjum degi,“ segir Guðrún Ýrr Tóm-
asdóttir.
Nortek ehf.
Eirhöfða 13 og 18, Reykjavík
Hjalteyrargötu 6, Akureyri
Sími 455 2000
nortek@nortek.is
nortek.is Bás D10
Aukin áhersla
Nortek á þjónustu
við sjávarútveginn
„Allt frá stofnun Nortek höfum við haft mikinn áhuga á að þjóna sjávarútveginum og má
sennilega rekja það til þess að við komum sjálf úr þessu umhverfi,“ segir Guðrún Ýrr
Tómasdóttir, stjórnarformaður og markaðsstjóri Nortek.