Ægir - 01.08.2014, Page 130
126
Fisktækniskóli Íslands
Víkurbraut 56, Grindavík
Sími 412 5966
info@fiskt.is
fiskt.is
Fisktækniskóli Íslands býður upp á
tveggja ára nám í Fisktækni með
áherslu á þrjár línur: fiskvinnslu, veiðar
og fiskeldi. Námið er hagnýtt starfsnám
og mikil áhersla lögð á starfsþjálfun á
vinnustað. Hvoru námsári er skipt í tvær
annir. Sú fyrri er í skóla, þar sem nem-
endur öðlast m.a. réttindi til smáskipa,
vélstjórnar og lyftara, en síðari önnin er
með áherslu á vinnustaðaþjálfun.
Nám fyrir gæðastjóra
Kennsla á nýrri eins árs námsbraut fyrir
„MAREL-vinnslutækna“ hófst einnig nú í
haust. Námið er ætlað þeim sem lokið
hafa grunnámi í Fisktækni, en er einnig
fyrir starfsfólk með mikla reynslu í vinnsl-
um. Á nýju ári hefst námsbraut fyrir
gæðastjóra, en mikil eftirspurn hefur
verið á því námi.
Skólinn stendur fyrir umfangsmiklu
námskeiðahaldi fyrir starfandi fólk í sjáv-
arútvegi og fiskeldi um land allt auk
þessa að vinna að raunfærnimati fyrir
starfandi fólk í greininni í samstarfi við
FA og símenntunarmiðstöðvar.
Norrænt samstarf
Skólinn hefur verið í örum vexti frá upp-
hafi. Vöxturinn endurspeglast í aukinni
ásókn í skólann og ekki síður jákvæð-
um viðtökum fyrirtækja í sjávarútvegi og
fiskeldi. Skólinn á aðild að nýlegum
samtökum Norrænna fisktækniskóla
FJÓRAR HAGNÝTAR NÁMSBRAUTIR
Fisktækniskóli Íslands
býður upp á fjölbreytt
nám í sjávarútvegi á
framhaldsskólastigi.
Námið er hagnýtt tveggja
ára nám sem er byggt
upp sem önnur hver önn í
skóla og hin á vinnustað.
Nemendur geta valið sér
námsleiðir í sjómennsku,
fiskvinnslu og fiskeldi.
Verkefni og vinnustaðir
eru valdir með hliðsjón af
áhuga hvers og eins.
Nám í skóla - nám á vinnustað
Víkurbraut 56 240 Grindavík, info@fiskt.is
FISKTÆKNI
Tveggja ára hagnýtt framhaldsskólanám til starfa í
sjávarútvegi og fiskeldi.
Inntökuskilyrði: Grunnskólapróf.
Á Fisktæknibraut er hægt að velja þrjár línur:
Sjómennska/veiðar - Fiskvinnsla- Fiskeldi
Hvert námsár skiptist í eina önn í skóla og eina á vinnustað
undir leiðsögn tilsjónamanns (72 ein).
MAREL VINNSLUTÆKNI
Eins árs nám við vélar og hugbúnað frá Marel.
Inntökuskilyrði:
Hafa lokið námi í Fisktækni eða sambærilegu námi.
Námsárið skiptist í fagbóklegar greinar og vinnustaðanám undir
leiðsögn tilsjónamanns (36 ein).
GÆÐASTJÓRN
Eins árs nám í gæðstjórnun.
Inntökuskilyrði:
Hafa lokið námi í Fisktækni eða sambærilegu námi.
Námsárið skiptist í fagbóklegar greinar og vinnustaðanám undir
leiðsögn tilsjónamanns (36 ein).
NETAGERÐ
Þriggja ára iðnnám með mikla starfsmöguleika til starfa við
veiðarfæragerð (48 ein).
Spennandi blanda bóklegs og verklegs náms sem gefur mikla
starfsmöguleika eða til frekari menntunnar.
Nánari upplýsingar hjá
starfsmönnum Fisktækniskóla
Íslands í síma 412-5966 eða á
www.fiskt.is
Skólaakstur
Námskeið
Við bjóðum fyrirtækjum og einstaklingum upp á ýmis námskeið
svo sem HACCP, vélstjórn, smáskipanám og fl. sjá heimasíðu.
Nemendur Fisktækniskólans fá fjölbreytt verkefni til úrlausnar í náminu.
Aukin ásókn í nám í Fisktækniskólanum