Ægir - 01.08.2014, Síða 140
136
Víðtæk þjónusta
EFLU við
sjávarútveginn
„Verkfræðistofan EFLA hefur veitt ís-
lenskum sjávarútvegi víðtæka þjónustu
um áratuga skeið. Flest verkefni okkar
hafa tengst landvinnslunni en einnig
höfum við komið að ráðgjöf og þróun
lausna um borð í fiskiskipaflotanum,“
segir Brynjar Bragason, sviðsstjóri
iðnaðarsviðs verkfræðistofunnar EFLU.
Brynjar bendir á að styrkur EFLU felist
meðal annars í að hafa unnið með stór-
um og smáum fyrirtækjum á öllum svið-
um íslensks iðnaðar. Sú reynsla nýtist
vel í þeim fjölbreyttu verkefnum sem
stofan hefur tekist á hendur fyrir sjávar-
útvegsfyrirtækin.
„Verkefni okkar fyrir sjávarútveginn
eru fjölbreytt, má þar nefna fiskeldi,
fiskimjölsiðnað og landvinnslu uppsjáv-
arafurða. Viðfangsefnin hafa verið fjöl-
breytt í gegnum tíðina og snúið að
mengunar- og gæðamálum, orku-
sparnaði og rafvæðingu auk sjálfvirkni-
væðingar svo fátt eitt sé nefnt.“ Brynjar
segir mörg þeirra tengjast upplýsinga-
og stjórnbúnaði, ásamt gagna-
grunnskerfum fyrirtækjanna en EFLA
hefur mikla reynslu af hönnun og upp-
setningu stýrikerfa fyrir fiskiðnað, bæði
heildarkerfa og stakra eininga. „Verk-
smiðjan hjá Lýsi er kapituli út af fyrir sig,
en við höfum tekið þátt í samfelldri upp-
byggingu og þróun nýrrar verksmiðju
þar frá því að hún var reist fyrir 10 árum.“
Olíu skipt út fyrir græna orku
Meðal einstakra verkefna sem EFLA
hefur komið að á síðustu árum nefnir
Brynjar rafvæðingu fiskimjölsverk-
smiðjanna sem hafa breytt orkunotkun
úr olíu yfir í rafmagn. Nú er svo komið
að nánast allar fiskimjölsverksmiðjur á
svæðinu frá Höfn í Hornafirði og norður
í Vopnafjörð nota raforku í stað olíu.
Meðal fyrirtækja sem EFLA aðstoðaði í
þessu ferli eru verksmiðjur SVN í
Neskaupstað og Eskju á Eskifirði. „Þess-
ar breytingar spara mikla fjármuni og
koma til með að borga sig upp á tiltölu-
lega skömmum tíma. Það sem skiptir þó
enn meira máli er að þetta er eitt
stærsta átak sem gert hefur verið á síð-
ari árum til að draga úr losun gróður-
húsalofttegunda hér á landi. Það er talið
að með þessum breytingum hafi dregið
meira úr losun gróðurhúsalofttegunda
en ef allur bílafloti landsmanna hefði
verið rafvæddur. Það munar um minna,“
segir Brynjar. EFLA hefur einnig veitt fyr-
irtækjum í sjávarútvegi ráðgjöf vegna
samninga þeirra við orkusölufyrirtækin
ásamt ráðgjöf vegna raforkuflutnings.
Af öðrum verkefnum í sjávarútvegi
nefnir Brynjar að hjá EFLU hafi verið
þróuð aðferð til að koma slógi og af-
skurði í uppsjávarvinnslu, sem átti til að
skolast burt með frárennsli, aftur inn í
vinnsluferlið og nýta verðmæti sem
annars fóru forgörðum. Þá hefur EFLA
séð um fóður- og súrefnisvöktunarkerfi í
mörgum fiskeldisfyrirtækjum auk þess
að þróa hugbúnað sem styður við utan-
umhald og skráningu í vinnsluferlinu.
Umsvifamikil hugbúnaðarþróun
„Í þeim fjölbreyttu kerfum sem við kom-
um að í hinum ýmsu verkefnum skiptir
hugbúnaðarþróun miklu máli. Hjá okkur
hefur byggst upp mikil þekking á þessu
sviði og í dag erum við einn stærsti
framleiðandi stjórn- og hugbúnaðar fyrir
iðnferla í landinu. Um 40 manns vinna í
dag hjá okkur við að þróa hugbúnað
fyrir ólíkar iðngreinar bæði hér á landi
og erlendis. Þar af eru um 10 starfandi í
Noregi þar sem við erum í stórum verk-
efnum fyrir olíuiðnaðinn,“ segir Brynjar
Bragason sviðsstjóri hjá EFLU.
Hvers kyns hugbúnaðarþróun er veigamikill þáttur í þjónustu EFLU við sjávarútveginn og
aðrar greinar og í dag vinna um 40 manns við slíka þróun á vegum fyrirtækisins.
efla.is Bás D11
EFLA verkfræðistofa
Höfðabakka 9, Reykjavík
Sími 412 6000
efla@efla.is