Ægir - 01.08.2014, Qupperneq 147
143
sjova.is Bás E31
Gífurleg verðmæti í
eignum í landi
Geir Jóhannsson, viðskiptastjóri í fyrir-
tækjaráðgjöf segir að í frystihúsum sé
gríðarlega mikið af verðmætum tækj-
um og tólum sem er jafnvel skipt út ár-
lega. „Reynsla sýnir okkur að iðulega
gleymist að senda okkur uppfærða
lista yfir eignir,“ segir Geir. „Nú leggjum
við mikla áherslu á að fá slíka lista
minnst annað hvert ár. Öll eftirvinna
verður svo miklu markvissari fyrir alla ef
til eru réttir listar.“ Geir segir að þessi
þáttur hafi þó lagast mikið undanfarin
ár. Eitt af því sem Geir leggur ríka
áherslu á er að skráð séu minni tæki
eins og símar, sem í dag eru í raun litlar
tölvur með verðmætum upplýsingum.
„Þessi tæki eru mjög viðkvæm en fólk
er með þetta á sér við allar aðstæður,“
segir Geir.
Hugað að
vátryggingaverðmætum
Að sögn Halldórs Teitssonar, sér-
fræðings í skipa sjótryggingum hjá Sjó-
vá, er nauðsynlegt að gæta vel að því
að vátryggingarverðmæti séu rétt og
vátryggingarskilmálar í samræmi við
þarfir þegar bátar og skip eru vátryggð.
Þá þarf einnig að huga vel að því að
ýmist lausafé um borð í skipum, sem
ekki fellur undir húftrygginguna, sé rétt
vátryggt.
Varðandi breytingar sem orðið hafa
í vátryggingum skipa segir Halldór að
haustið 2012 hafi orðið breytingar á
siglingalögum þannig að í dag er skilyrt
að útgerðamenn íslenskra skipa, 300
brúttótonn og stærri, skuli tryggja skip
sín vegna ýmissa tjóna sem þeir valda
þriðja aðila.
Þar sem afurðir sem fluttar eru frá
landinu fara gjarnan heimshorna á milli
þarf að gæta þess að öryggi sé eins
og best verður á kosið verði gott. „Til
þess að svo megi verða þarf nákvæmt
skipulag á framvindu flutnings og
tryggilegur frágangur seljenda og flytj-
enda á vörunni,“ segir Halldór. „Eitt af
því sem aðilar þurfa auk þess að koma
sér saman um í upphafi er hvenær
áhættan á því að varan verði fyrir tjóni í
flutningum færist frá seljanda til kaup-
anda. Engum samningum má ljúka án
þess að tryggingarmál vörusendinga
séu frágengin.“
Inn- og útflytjendum er afar mikil-
vægt að eiga greiðan aðgang að lipurri
sérfræðiþjónustu á sviði trygginga hvar
sem er í heiminum. „Sjóvá-Almennar
hafa samið við sérfræðinga á þessu
sviði í fjölmörgum löndum um að þeir
komi fram fyrir hönd félagsins og veiti
faglega aðstoð,“ segir Halldór að lok-
um.
Hópurinn hjá Sjóvá sem þjónustar sjávarútveginn. Frá vinstri: Geir Jóhannsson, Pálína Guðlaugsdóttir, Halldór Teitsson, Elín Þórunn
Eiríksdóttir, Pála Þórisdóttir, Fjóla Guðjónsdóttir, Helgi Ómar Pálsson, Björg Freysdóttir, Hlynur Jónsson og Jón Birgir Guðmundsson. Á
myndina vantar Þórunni Snorradóttur og Hinrik Matthíasson.