Ægir - 01.08.2014, Page 208
204
Jötunn Vélar hf.
Austurvegi 69, Selfossi
Sími 480 0400
Jötunn Vélar hf. á Selfossi kynnir á Ís-
lensku sjávarútvegssýningunni raf-
magnsknúna pallbíla frá bandaríska
framleiðandanum Club Car sem fyrir-
tækið tók nýlega við innflutningi á. Þeir
henta vel til notkunar á t.d. hafnarsvæð-
um, hjá stórum fiskvinnslufyrirtækjum
eða þjónustufyrirtækjum við hafnir. Bíl-
arnir eru tveggja manna og afturdrifnir,
fáanlegir í fjölda útfærslna, t.d. með ann-
að hvort palli eða flutningskassa. Fjöldi
bíla af frá Club Car eru nú þegar í notk-
un í álverum og hjá sveitarfélögum.
„Þetta eru einfaldir bílar og hag-
kvæmir í rekstri þar sem rafmagnið er
langódýrasti orkugjafinn, bera á við
minni pallbíla og hver hleðsla dugar í 40
kílómetra akstur. Þeir eru götuskráðir og
því hentugir í ýmis konar sendiferðir inn-
anbæjar auk þess sem auðvelt er að
sérútbúa bílana sem viðgerðarbíla,“
segir Finnbogi Magnússon, fram-
kvæmdastjóri Jötunn Véla.
Fleira hefur Jötunn Vélar að bjóða úr
véla- og tækjaúrvali sínu fyrir sjávarút-
vegsfyrirtæki og hafnir, m.a. margar
stærðir og gerðir dráttarvéla frá Valtra
og Massey Ferguson, flutningavagna,
Schäffer skotbómulyftara og liðléttinga,
svo fátt sé nefnt af vörum sem nýtast
sjávarútvegsfyrirtækjum og á hafnar-
svæðum. Ennfremur kynnir fyrirtækið í
bás sínum á sýningunni vatnsheldan
fatnað frá SealSkinz, m.a. sokka,
hanska, húfur og lúffur. Allt vörur sem
eru tilvaldar við erfiðar vinnuaðstæður,
líkt og um borð í skipum og bátum.
jotunn.is Bás F59a
Skrúfupressur
og stimpilpressur
Lofthreinsibúnaður
Loftkútar - Loftsíur
Lofttengibúnaður
Loftþurrkarar
■ Ýmsar stærðir og gerðir
■ Einstaklega hljóðlátar
■ Þýsk gæði
Skeifan 3E-F · Sími 581-2333 · Fax 568-0215 · www.rafver.is
F A G M E N N S K A A L L A L E I Ð
Rafmagnsbílar
fyrir sjávar-
útveginn Club Car rafmagnsbílarnir eru hagkvæmur kostur fyrir sjávarútvegsfyrirtæki og hafnartengda
starfsemi.