Morgunblaðið - 22.05.2015, Side 41
MENNING 41
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. MAÍ 2015
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Skjaldborg – hátíð íslenskra heim-
ildarmynda hefst í kvöld á Patreks-
firði, stendur yfir hvítasunnuhelgina
og er nú haldin í níunda sinn. Dag-
skráin er sérlega krassandi í ár og
aldrei hafa íslensku myndirnar á há-
tíðinni verið fjöl-
breyttari og
betri, bæði hvað
varðar efnistök
og efnisval, að
sögn Helgu Rak-
elar Rafnsdóttur
sem er í Skjald-
borgarteyminu.
„Höfundar sem
hafa komið áður
koma aftur með
myndir og hafa
vaxið, dafnað og þroskast. Það er
gaman að sjá það,“ segir Helga.
Sextán íslenskar heimildarmyndir
verða sýndar og auk þeirra fjögur
verk í vinnslu og tvær myndir eftir
danska leikstjórann Evu Mulvad
sem er annar heiðursgesta hátíð-
arinnar. The Good Life og Den
sidste dans. Hinn heiðursgesturinn
er einnig danskur, framleiðandinn
Sigrid Dyekjær.
Dyekjær og Mulvad eru meðal
stofnenda og eigenda framleiðslu-
fyrirtækisins Danish Documentary
sem var stofnað árið 2007 af fimm
konum, þar af fjórum leikstjórum,
og mun vera leiðandi á heimsvísu á
sviði skapandi heimildarmynda.
Fyrirtækið hefur framleitt á þriðja
tug heimildarmynda og margar sem
hlotið hafa fjölda verðlauna. Auk
þess að vera framleiðandi er Dyek-
jær vinsæll fyrirlesari og kennari,
kennir m.a. við Danska kvikmynda-
skólann, og mun hún taka þátt í um-
ræðum á Skjaldborg um ólíkar fjár-
mögnunarleiðir og stöðu skapandi
heimildarmynda.
Mulvad er einn áhugaverðasti
leikstjóri Dana og á m.a. að baki
heimildarmyndirnar Enemies of
Happiness sem hlaut World Cinema
Jury Prize á Sundance-kvikmynda-
hátíðinni 2005 og The Good Life sem
valin var besta heimildarmyndin á
Karlovy Vary-hátíðinni árið 2010.
Myndir hennar þykja fjölbreyttar og
einkennast af því hvernig hún beitir
aðferðum leikinna mynda á sérlega
skapandi hátt við að miðla sögum
sínum, eins og segir á vef hátíðar-
innar. Mulvad mun fjalla um verk
sín og starf leikstjórans í skapandi
heimildarmyndum á hátíðinni og
sitja fyrir svörum.
The Good Life er opnunarmynd
hátíðarinnar, verður sýnd í kvöld kl.
21 í kvikmyndahúsinu sem hátíðin
dregur nafn sitt af. Hún segir af
mæðgum sem hafa lifað allt sitt líf í
vellystingum á portúgölsku strand-
lengjunni og standa frammi fyrir því
að auðæfin eru uppurin og í stað
þotulífernis taka við ógreiddir reikn-
ingar og stöðugur ótti við að eiga
ekki fyrir leigu næsta mánaðar, eins
og segir á vef Skjaldborgar. Dóttirin
hefur aldrei unnið handtak og neyð-
ist til að finna sér vinnu sem er
þrautin þyngri fyrir dekurbarn með
auða ferilskrá í miðri fjármálakrísu.
Myndinni er lýst sem tragíkómískri
sögu um dýrðartíma og fall fjöl-
skyldu sem hafði allt en endaði með
ekkert. Helga segir Mulvad nota
tónlist í myndinni með sama hætti
og gert sé í leiknum kvikmyndum.
„Það er mjög gamaldags kvik-
myndatónlist og hún leikur sér í
rauninni með kvikmyndaformið,“
segir Helga. Frásagnaraðferðir leik-
stjórans minni um margt á leiknar
kvikmyndir.
Munu vekja athygli
Helga segir margar íslensku
heimildarmyndanna eiga eftir að
vekja athygli. Jóhanna: Síðasta orr-
ustan, eftir Björn Brynjúlf Björns-
son, sé ein þeirra en hún fjallar um
síðustu vikur Jóhönnu Sigurðar-
dóttur í embætti forsætisráðherra,
þegar hún reyndi að fá Alþingi til að
samþykkja nýja stjórnarskrá, en
nýr formaður í hennar flokki lét af
þeirri stefnu hennar að knýja málið í
gegnum þingið og vildi fresta því til
næsta kjörtímabils, eins og því er
lýst á vef Skjaldborgar.
„Svo er það Hvað er svona merki-
legt við það? eftir Höllu Kristínu
Einarsdóttur, framhald af Konur á
rauðum sokkum sem fékk mikla at-
hygli og hlaut áhorfendaverðlaun
Skjaldborgar, Einarinn, árið 2009,“
segir Helga en sú mynd fjallar um
kvennaframboð í íslenskri stjórn-
málasögu. Helga nefnir fleiri merki-
legar myndir: Latínubóndann eftir
Jón Karl Helgason sem fjallar um
Tómas R. Einarsson kontrabassa-
leikara, Finndið eftir Ragnar Hans-
son sem veitir sýn inn í heim uppi-
standarans Hugleiks Dagssonar og
Stúlkurnar á Kleppjárnsreykjum
eftir Ölmu Ómarsdóttur sem fjallar
um „ástandið“ svokallaða á tímum
hernámsins á Íslandi og hvernig tek-
ið var á því af hálfu yfirvalda.
„Einnig verður sýnd mynd eftir
Jóhann Jóhannsson tónlistarmann,
End of summer, sem var tekin á
Suðurskautslandinu,“ segir Helga
og má geta þess að myndin hlaut í
byrjun mánaðar AIRBNB Short
Film Grand Prize á alþjóðlegu kvik-
myndahátíðinni IndieLisboa í Lissa-
bon í Portúgal. End of summer er
fyrsta stuttmynd Jóhanns, án tals en
með tónlist eftir hann og tekin á
svarthvíta super 8 filmu.
Samvinna og gestrisni
Ókeypis er inn á allar myndir sem
keppa um áhorfendaverðlaun hátíð-
arinnar, Einarinn, og þeir sem vilja
sækja sjávarréttaveislu, plokk-
fiskboð kvenfélagsins, ball og heið-
ursgestsdagskrá geta keypt sér
armband sem veitir aðgang að þeim
viðburðum. Helga segir það sam-
vinnu við heimamenn og gestrisni
þeirra að þakka að hægt sé að halda
hátíðina. „Þetta er skemmtileg hátíð
og margir sem koma aftur og aftur,“
segir hún að lokum.
Sérlega krassandi Skjaldborg
Skjaldborgarhátíðin hefst á Patreks-
firði í kvöld 22 myndir á dagskrá
Lokaorrustan Stilla úr heimildarmyndinni Jóhanna: Síðasta orrustan, eftir Björn Brynjúlf Björnsson.
Helga Rakel
Rafnsdóttir
Dagskrá og frekari upplýsingar um
hátíðina má finna á vefsíðu henn-
ar, www.skjaldborg.com.
Good Kill
Kvikmynd sem er að hluta til
byggð á sönnum atburðum og
fjallar um herflugmanninn Thom-
as Egan sem hefur þann starfa
með höndum að ráðast gegn óvin-
um Bandaríkjanna með drónum
sem hann flýgur úr öruggu her-
stöðvarskjóli, fjarri átakasvæðinu
sjálfu. Dag einn verða honum á
mistök sem eiga eftir að hafa al-
varlegar afleiðingar. Með aðal-
hlutverk fara Ethan Hawke, Ja-
nuary Jones, Bruce Greenwood,
Zoë Kravitz, Jake Abel og Peter
Coyote. Leikstjóri er Andrew Nic-
col. Rotten Tomatoes: 75%
Spooks: The Greater Good
Njósnamynd byggð á bresku sjón-
varpsþáttunum Spooks. Hryðju-
verkamaður sleppur úr haldi við
fangaflutninga og þurfa leyni-
þjónustumenn MI5 að hafa hendur
í hári hans og koma í veg fyrir að
hryðjuverk verði framin í Lund-
únum. Með aðalhlutverk fara Kit
Harington, Elyes Gabel, Jennifer
Ehle, Lara Pulver og Tuppence
Middleton. Leikstjóri er Bharat
Nalluri. Rotten Tomatoes: 59%
Une nouvelle amie
Frönsk kvikmynd í leikstjórn
François Ozon. Laura, æsku-
vinkona Claire, lætur lífið og þarf
Claire að standa við heit sitt og
gæta dóttur hennar og syrgjandi
ekkils. Þegar Claire kemur að
ekklinum í fötum af Lauru áttar
hún sig á því að hún á erfiðara
verk fyrir höndum en hana grun-
aði. Með aðalhlutverk fara Roma-
in Duris, Anaïs Demoustier,
Raphaël Personnaz. Rotten Tom-
atoes: 75%
Ólíkar spennumyndir
Í vanda Ethan Hawke stýrir drón-
um í kvikmyndinni Good Kill.
Bíófrumsýningar
ÍSLENSKT TAL
POWERSÝNING
KL. 10:30
Sími: 553-2075
www.laugarasbio.is
SÝNINGARTÍMA MÁ NÁLGAST Á
LAUGARASBIO.IS, MIDI.IS
EINNIG Á SÍÐUNNI HÉR TIL VINSTRI
- bara lúxus