Morgunblaðið - 22.05.2015, Page 41

Morgunblaðið - 22.05.2015, Page 41
MENNING 41 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. MAÍ 2015 Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Skjaldborg – hátíð íslenskra heim- ildarmynda hefst í kvöld á Patreks- firði, stendur yfir hvítasunnuhelgina og er nú haldin í níunda sinn. Dag- skráin er sérlega krassandi í ár og aldrei hafa íslensku myndirnar á há- tíðinni verið fjöl- breyttari og betri, bæði hvað varðar efnistök og efnisval, að sögn Helgu Rak- elar Rafnsdóttur sem er í Skjald- borgarteyminu. „Höfundar sem hafa komið áður koma aftur með myndir og hafa vaxið, dafnað og þroskast. Það er gaman að sjá það,“ segir Helga. Sextán íslenskar heimildarmyndir verða sýndar og auk þeirra fjögur verk í vinnslu og tvær myndir eftir danska leikstjórann Evu Mulvad sem er annar heiðursgesta hátíð- arinnar. The Good Life og Den sidste dans. Hinn heiðursgesturinn er einnig danskur, framleiðandinn Sigrid Dyekjær. Dyekjær og Mulvad eru meðal stofnenda og eigenda framleiðslu- fyrirtækisins Danish Documentary sem var stofnað árið 2007 af fimm konum, þar af fjórum leikstjórum, og mun vera leiðandi á heimsvísu á sviði skapandi heimildarmynda. Fyrirtækið hefur framleitt á þriðja tug heimildarmynda og margar sem hlotið hafa fjölda verðlauna. Auk þess að vera framleiðandi er Dyek- jær vinsæll fyrirlesari og kennari, kennir m.a. við Danska kvikmynda- skólann, og mun hún taka þátt í um- ræðum á Skjaldborg um ólíkar fjár- mögnunarleiðir og stöðu skapandi heimildarmynda. Mulvad er einn áhugaverðasti leikstjóri Dana og á m.a. að baki heimildarmyndirnar Enemies of Happiness sem hlaut World Cinema Jury Prize á Sundance-kvikmynda- hátíðinni 2005 og The Good Life sem valin var besta heimildarmyndin á Karlovy Vary-hátíðinni árið 2010. Myndir hennar þykja fjölbreyttar og einkennast af því hvernig hún beitir aðferðum leikinna mynda á sérlega skapandi hátt við að miðla sögum sínum, eins og segir á vef hátíðar- innar. Mulvad mun fjalla um verk sín og starf leikstjórans í skapandi heimildarmyndum á hátíðinni og sitja fyrir svörum. The Good Life er opnunarmynd hátíðarinnar, verður sýnd í kvöld kl. 21 í kvikmyndahúsinu sem hátíðin dregur nafn sitt af. Hún segir af mæðgum sem hafa lifað allt sitt líf í vellystingum á portúgölsku strand- lengjunni og standa frammi fyrir því að auðæfin eru uppurin og í stað þotulífernis taka við ógreiddir reikn- ingar og stöðugur ótti við að eiga ekki fyrir leigu næsta mánaðar, eins og segir á vef Skjaldborgar. Dóttirin hefur aldrei unnið handtak og neyð- ist til að finna sér vinnu sem er þrautin þyngri fyrir dekurbarn með auða ferilskrá í miðri fjármálakrísu. Myndinni er lýst sem tragíkómískri sögu um dýrðartíma og fall fjöl- skyldu sem hafði allt en endaði með ekkert. Helga segir Mulvad nota tónlist í myndinni með sama hætti og gert sé í leiknum kvikmyndum. „Það er mjög gamaldags kvik- myndatónlist og hún leikur sér í rauninni með kvikmyndaformið,“ segir Helga. Frásagnaraðferðir leik- stjórans minni um margt á leiknar kvikmyndir. Munu vekja athygli Helga segir margar íslensku heimildarmyndanna eiga eftir að vekja athygli. Jóhanna: Síðasta orr- ustan, eftir Björn Brynjúlf Björns- son, sé ein þeirra en hún fjallar um síðustu vikur Jóhönnu Sigurðar- dóttur í embætti forsætisráðherra, þegar hún reyndi að fá Alþingi til að samþykkja nýja stjórnarskrá, en nýr formaður í hennar flokki lét af þeirri stefnu hennar að knýja málið í gegnum þingið og vildi fresta því til næsta kjörtímabils, eins og því er lýst á vef Skjaldborgar. „Svo er það Hvað er svona merki- legt við það? eftir Höllu Kristínu Einarsdóttur, framhald af Konur á rauðum sokkum sem fékk mikla at- hygli og hlaut áhorfendaverðlaun Skjaldborgar, Einarinn, árið 2009,“ segir Helga en sú mynd fjallar um kvennaframboð í íslenskri stjórn- málasögu. Helga nefnir fleiri merki- legar myndir: Latínubóndann eftir Jón Karl Helgason sem fjallar um Tómas R. Einarsson kontrabassa- leikara, Finndið eftir Ragnar Hans- son sem veitir sýn inn í heim uppi- standarans Hugleiks Dagssonar og Stúlkurnar á Kleppjárnsreykjum eftir Ölmu Ómarsdóttur sem fjallar um „ástandið“ svokallaða á tímum hernámsins á Íslandi og hvernig tek- ið var á því af hálfu yfirvalda. „Einnig verður sýnd mynd eftir Jóhann Jóhannsson tónlistarmann, End of summer, sem var tekin á Suðurskautslandinu,“ segir Helga og má geta þess að myndin hlaut í byrjun mánaðar AIRBNB Short Film Grand Prize á alþjóðlegu kvik- myndahátíðinni IndieLisboa í Lissa- bon í Portúgal. End of summer er fyrsta stuttmynd Jóhanns, án tals en með tónlist eftir hann og tekin á svarthvíta super 8 filmu. Samvinna og gestrisni Ókeypis er inn á allar myndir sem keppa um áhorfendaverðlaun hátíð- arinnar, Einarinn, og þeir sem vilja sækja sjávarréttaveislu, plokk- fiskboð kvenfélagsins, ball og heið- ursgestsdagskrá geta keypt sér armband sem veitir aðgang að þeim viðburðum. Helga segir það sam- vinnu við heimamenn og gestrisni þeirra að þakka að hægt sé að halda hátíðina. „Þetta er skemmtileg hátíð og margir sem koma aftur og aftur,“ segir hún að lokum. Sérlega krassandi Skjaldborg  Skjaldborgarhátíðin hefst á Patreks- firði í kvöld  22 myndir á dagskrá Lokaorrustan Stilla úr heimildarmyndinni Jóhanna: Síðasta orrustan, eftir Björn Brynjúlf Björnsson. Helga Rakel Rafnsdóttir Dagskrá og frekari upplýsingar um hátíðina má finna á vefsíðu henn- ar, www.skjaldborg.com. Good Kill Kvikmynd sem er að hluta til byggð á sönnum atburðum og fjallar um herflugmanninn Thom- as Egan sem hefur þann starfa með höndum að ráðast gegn óvin- um Bandaríkjanna með drónum sem hann flýgur úr öruggu her- stöðvarskjóli, fjarri átakasvæðinu sjálfu. Dag einn verða honum á mistök sem eiga eftir að hafa al- varlegar afleiðingar. Með aðal- hlutverk fara Ethan Hawke, Ja- nuary Jones, Bruce Greenwood, Zoë Kravitz, Jake Abel og Peter Coyote. Leikstjóri er Andrew Nic- col. Rotten Tomatoes: 75% Spooks: The Greater Good Njósnamynd byggð á bresku sjón- varpsþáttunum Spooks. Hryðju- verkamaður sleppur úr haldi við fangaflutninga og þurfa leyni- þjónustumenn MI5 að hafa hendur í hári hans og koma í veg fyrir að hryðjuverk verði framin í Lund- únum. Með aðalhlutverk fara Kit Harington, Elyes Gabel, Jennifer Ehle, Lara Pulver og Tuppence Middleton. Leikstjóri er Bharat Nalluri. Rotten Tomatoes: 59% Une nouvelle amie Frönsk kvikmynd í leikstjórn François Ozon. Laura, æsku- vinkona Claire, lætur lífið og þarf Claire að standa við heit sitt og gæta dóttur hennar og syrgjandi ekkils. Þegar Claire kemur að ekklinum í fötum af Lauru áttar hún sig á því að hún á erfiðara verk fyrir höndum en hana grun- aði. Með aðalhlutverk fara Roma- in Duris, Anaïs Demoustier, Raphaël Personnaz. Rotten Tom- atoes: 75% Ólíkar spennumyndir Í vanda Ethan Hawke stýrir drón- um í kvikmyndinni Good Kill. Bíófrumsýningar ÍSLENSKT TAL POWERSÝNING KL. 10:30 Sími: 553-2075 www.laugarasbio.is SÝNINGARTÍMA MÁ NÁLGAST Á LAUGARASBIO.IS, MIDI.IS EINNIG Á SÍÐUNNI HÉR TIL VINSTRI - bara lúxus

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.