Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.05.2015, Síða 4

Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.05.2015, Síða 4
Rúnar Sigurður Birgisson segir bóksölu ganga býsna vel um þessar mundir. „Ef eitthvað er fer hún vaxandi og sé maður á réttri hillu og geti útvegað fólki bækur sem það vill fá gengur allt vel. Ekkert nema gott um það að segja,“ segir hann. „Það er lenska hér að halda því fram að bókin sé búin að vera en að mínu mati er ekkert á bak við það. Það er bara mýta. Það er ekki rétt að bóksala hafi dregist saman. Nýjar bækur selj- ast sem aldrei fyrr og notaðar bækur seljast vel líka. Ég væri ekki að eyða tíma mínum í þetta ef þetta væri dauður sjór.“ Rúnar staðfestir á hinn bóginn að ástríðufullum bókasöfnurum hafi fækkað á umliðnum árum. Meðan þeir voru fleiri urðu ákveðnar bækur, sem margir ágirntust, eðli málsins sam- kvæmt dýrari þegar þær komu á markað. „Annars hef ég aldrei litið á bækur sem fjárfestingu. Bækur eru til að lesa þær. Menn þurfa að nýta inni- haldið. Þess vegna kalla ég mitt fyrirtæki Bóka- bankann, þar sem ég sel bankabækur og þú hefur ótak- markaða úttektar- heimild úr hverri bók.“ BÓKSALA EKKI DREGIST SAMAN 4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10.5. 2015 Umdeildur bókamarkaður Fyrir tveimur vikum var hald-inn í húsnæði Hins íslenskabókmenntafélags, Skeifunni 3b, markaður á bókum úr einka- safni frá síðustu öld. „Mikið og fjölbreytt úrval íslenskra bóka frá ýmsum tímum, sumt mjög sjaldséð og einkar fallega frá gengið. Margvísleg rit um íslensk fræði og bókmenntir, ljóðabækur, þar á meðal nokkrar frumútgáfur af kvæðum eldri höfuðskálda, mikil- væg uppfletti- og heimildarrit s.s. Nordisk kultur og Kulturhistorisk leksikon for nordisk middelalder, tímarit, þjóðlegur fróðleikur og þjóðsögur, ferðabækur, byggðasög- ur, ævisögur og endurminningar. Allt á sanngjörnu verði,“ segir í frétt á heimasíðu félagsins. Að sögn Sverris Kristinssonar, bókavarðar Hins íslenska bók- menntafélags, var aðsókn mikil og sala góð en titlarnir voru á annað þúsund talsins. „Það seldist sér- staklega mikið af þessum dýrari og veglegri verkum. Við erum mjög ánægðir með útkomuna, við- tökur voru eiginlega umfram væntingar, bæði hjá félagsmönnum og öðrum,“ segir Sverrir en ennþá er hægt að kaupa bækur úr téðu safni hjá félaginu. Sér ekki þörfina Markaðurinn vakti mikla athygli meðal áhugafólks um bækur en Hið íslenska bókmenntafélag hefur ekki í annan tíma staðið fyrir markaði af þessu tagi. Ekki eru samt allir jafnsáttir við framtakið. Fornbókasalar hleyptu til að mynda brúnum. „Mér finnst þetta fyrst og fremst undarlegt í ljósi þess að þarna er á ferðinni félag sem er bæði styrkt af ríkinu og eftir krókaleiðum gegnum ýmsar út- gáfur. Þar af leiðandi veltir maður fyrir sér hvort eðlilegt sé að það helli sér inn á þennan samkeppn- ismarkað. Félagið er svo sem á samkeppnismarkaði fyrir með sína bókaútgáfu og að sama skapi má spyrja hvort það sé eðlilegt,“ segir Rúnar Sigurður Birgisson, forn- bókasali í Bókabankanum. Í fljótu bragði sér Rúnar ekki þörfina, nóg sé eftir af fornbóka- sölum í landinu sem geti tekið söfn sem þetta upp á sína arma. Hann segir söluna um daginn sem slíka ekki skipta fornbókasala miklu máli, þeir finni ekki svo mikið fyrir henni. Þetta snúist meira um prinsipp. „Er þetta bara stakur viðburður hjá Hinu íslenska bókmenntafélagi eða eru fleiri söfn á leið inn til þeirra í sölu? Það er mjög stór spurning sem fróðlegt yrði að fá svar við. Þýðir þetta ef til vill að ég get fengið eina viku í mánuði fyrir mínar bækur hjá Hinu íslenska bókmenntafélagi? Í framhaldinu mætti svo spyrja eft- irfarandi lykilspurningar: Hvert er yfirhöfuð hlutverk Hins íslenska bókmenntafélags?“ Þykir vænt um félagið Rúnar segir ágætt að ræða þetta í aðdraganda 200 ára afmælis fé- lagsins á næsta ári. Er Hið ís- lenska bókmenntafélag að færa út kvíarnar? „Mér þykir vænt um þetta félag sem á sér merkilega sögu og er ekki í neinu stríði við það ágæta fólk sem stýrir því. Þó það hafi lifað í 200 ár er hins veg- ar ekki sjálfgefið að það haldi áfram næstu 200 árin.“ Sjálfur er Rúnar ekki félags- maður í Hinu íslenska bókmennta- félagi og segir það vera vegna þess að aðild fylgi sú kvöð að ger- ast áskrifandi að tímariti félagsins, Skírni. „Skírnir var ágætisrit þeg- ar það byrjaði að koma út en í dag er uppistaðan í tímaritinu ein- hverjar sjálfhverfar greinar sem eiga ekkert erindi við mig. Það er engin tilviljun að fólki skuli vera gefið þetta tímarit í brettavís á bókamörkuðum félagsins og bóka- markaði Félags bókaútgefenda.“ Sleip verðlagning Rúnar heimsótti markaðinn í Skeifunni áður en hann var opn- aður almenningi og segir verðlagn- inguna hafa komið sér á óvart. „Verðlagningin var nokkuð sleip, sýndist mér. Verðið var mun hærra en mér þykir eðlilegt. Kannski hafa þeir lækkað sig eitt- hvað eftir þetta?“ Fornbóksalar þurfa að standa skil á virðisaukaskatti vegna sinn- ar starfsemi og Rúnar gengur út frá því að Hið íslenska bók- menntafélag þurfi að gera það líka vegna bókamarkaðarins, eins og aðrir sem selja bækur í atvinnu- húsnæði í atvinnu- eða ábata- skyni. „Það lýtur á hinn bóginn öðru lögmáli séu menn að selja úr safni heima hjá sér. Það er mikill munur þar á.“ Sverrir Kristinsson segir tildrög markaðar- ins þau að ónefndur aðili hafi leitað til fé- lagsins með téð einka- safn og ákveðið hafi verið að gera tilraun með markað. „Þessi tilraun gekk það vel að það er aldrei að vita nema við gerum fleiri tilraunir í þessum dúr,“ segir Sverrir en ekkert er þó ákveðið í þeim efn- um. Sverrir er ekki í nokkrum vafa um að bókamarkaður af þessu tagi samræmist hlutverki félagsins. „Þetta er menningarfélag sem er að verða 200 ára og hlutverk þess er að breiða út íslenska tungu og merkisrit, ekki síst fræðibækur, þannig að þetta er klárlega innan okkar ramma og samræmist stefnu félagsins,“ segir Sverrir. Heiður hinnar íslensku þjóðar Í lögum félagsins er tilgangi þess lýst með svofelldum orðum: „Það er tilgangur félagsins að styðja og styrkja íslenska tungu og bókvísi og menntun og heiður hinnar ís- lensku þjóðar, bæði með bókum og öðru eftir því sem efni þess fremst leyfa.“ Síðan segir: „Félagið skal í ljós leiða rit þau er samin hafa verið á íslensku og landinu sé sómi að, einkum þegar höfundar þeirra eru dánir og hættast er við, að þau muni týnast.“ Sverrir lítur ekki svo á að Hið íslenska bókmenntafélag sé með framtakinu komið í beina sam- keppni við fornbókasala í landinu. „Þvert á móti. Ég er sannfærður um að framtak sem þetta getur aukið áhuga og þar með almenna sölu á góðum ritum. Þetta ætti því að vera fornbókasölum til fram- dráttar frekar en hitt enda stóð ekki til að setja þetta einkasafn til fornbókasala.“ Frá markaði Hins íslenska bókmenntafélags. Morgunblaðið/Júlíus HIÐ ÍSLENSKA BÓKMENNTAFÉLAG HÉLT Á DÖGUNUM BÓKAMARKAÐ Í HÚSAKYNNUM SÍNUM Í FYRSTA SKIPTI Í TÆPLEGA 200 ÁRA SÖGU FÉLAGSINS. AÐ SÖGN FORSVARSMANNA MÆLTIST MARKAÐURINN VEL FYRIR OG SELDIST VEL. FORNBÓKASALA ÞYKIR GJÖRNINGURINN Á HINN BÓGINN UND- ARLEGUR OG VELTIR FYRIR SÉR HVORT ÞAÐ SÉ HLUTVERK FÉLAGSINS AÐ SELJA GAMLAR BÆKUR OG KOMA ÞANNIG INN Á SAMKEPPNISMARKAÐ. * Ég er sannfærður um að framtak sem þetta getur aukiðáhuga og þar með almenna sölu á góðum ritum.Sverrir Kristinsson, bókavörður Hins íslenska bókmenntafélags. ÞjóðmálORRI PÁLL ORMARSSON orri@mbl.is Rúnar Sigurður Birgisson

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.