Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.05.2015, Blaðsíða 20
Montreal Jazz Festival
Djassunnendur virðast á einu
máli um að hápunktur ársins sé
hátíðin í Montreal, að þessu sinni
26. júní til 5. júlí. Kanadamenn
eru djassað fólk, slakir og svalir,
og taka vel á móti ógrynni
tónlistarfólks dagana sem hátíðin
stendur yfir. Stanley Clarke lætur sig ekki vanta, Erykah Badu ekki heldur og
flamenkó-gítarleikarinn Jesse Cook á örugglega eftir að fara fimum fingrum um
gítarinn.
Electric Daisy Carnival
Unnendur raftónlistar ættu að
fjárfesta í flugi til LasVegas og
miða á Electric Daisy Carnival.
Skrallið hefst í litríku lastaborginni
í Nevada 19. júní og stendur í
þrjá daga, en hitað er upp fyrir
fjörið með hátíðum í San Juan,
Mexíkóborg og NewYork.
Tónlistin byrjar við sólsetur og hættir ekki fyrr en sólin rís á ný. Þeir sem hafa efni á
VIP-pakkanum fá meðal annars aðgang að sínu eigin parísarhjóli og geta nýtt sér þjó-
nustu líkamsmálara án endurgjalds. Segir það ýmislegt um stemninguna.
Wilderness Festival
Bretarnir eiga sínar hátíðir og halda þær eftir
sínu eigin höfði. Wilderness-hátíðin hefur á
sér greinilegt breskt yfirbragð, haldin dagana
6-9. ágúst í Oxfordskíri, og blandar saman
tónlist, matarmenningu, sviðslistum og gáfule-
gum fyrirlestrum.
Björk hefur boðað komu sína og Ásgeir
Trausti og margir fleiri tónlistarmenn frá öllum heimshornum sem eru málsvarar hinna ólíkustu
tónlistarstefna. Haldnar eru stórar matarveislur á langborðum samhliða tónlistaratriðunum og
meistarakokkar galdra fram undraverða rétti. Ef gestum leiðist maturinn og tónlistin má hlusta á
fyrirlestra um pólitík, umhverfismál og bókmenntir, svo aðeins séu nefnd nokkur dæmi.
Lollapalooza
Þessi hátíð er haldin
í Grant Park, á besta
stað í Chicago á
bökkum Michigan-
vatns. Fer hátíðin
fram um hásumar, frá
31. júli til 2. ágúst,
svo veðrið ætti að
vera hlýtt og notalegt í þessari borg sem þykir helst til köld á öðrum
árstímum.
Lollapalooza skartar alla jafna úrvali heimsþekktra tónlistarmanna og
uppstillingin í ár ekki af lakara taginu. Er þannig von á Paul McCart-
ney, Metallicu, Stromae og meira að segja Of Monsters and Men
svo það er ekki úr vegi að pakka þjóðfánanum til að veifa fyrir þetta
mergjaða band.
Karnival í Río
Þó að kjötkveðjuhátíðin fræga falli kannski ekki
alveg að skilgreiningunni á tónlistarhátíð þá
verður hún að vera með í þessari upptalningu.
Á næsta ári varir hátíðin frá 5. til 10. febrúar
og samfélagið allt hreyfist í takt við sambatónlis-
tina. Hvert sem farið er hljómar lifandi tónlist og
ekki hægt að þverfóta fyrir litríkum skrúðgöng-
um þar sem spengilegar pæjur og stæðilegir
gæjar hreyfa mjaðmirnar eins og Brasilíumönnum er einum lagið. Allir ættu að fara á karnival í Ríó
a.m.k. einu sinni á lífsleiðinni.
Þar sem tónlistin
ræður ríkjum
TÓNLISTARHÁTÍÐIR UM ALLAN HEIM LAÐA TIL SÍN
FERÐALANGA. HÁTÍÐIRNAR ERU AF ÝMSUM TOGA
OG HÖFÐA ÝMIST TIL ÞEIRRA SEM VILJA ÞUNGMELTA
HÁMENNINGU, HLÝÐA Á ÓMÓTSTÆÐILEGAN DJASS
EÐA LANGAR AÐ ROKKA FRÁ SÉR ALLA RÆNU.
Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is
20 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10.5. 2015
Ferðalög og flakk