Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.05.2015, Blaðsíða 49
10.5. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 49
Áður en Baltasar Kormákur Samper náði
fádæma hylli sem leikari og leikstjóri voru
aðeins þrír aðrir núlifandi karlmenn sem
hétu Baltasar og einn þeirra var faðir hans.
Hvað ætli þeir séu margir Baltasararnir
sem hafa orðið til í seinni tíð? Þeir eru
hvorki fleiri né færri en 61 og hlutu þeir
þessi nöfn eftir að Baltasar hafði stimplað
sig inn. Það er því freistandi að álykta að
Baltasar hafi haft áhrif á einhverjar þær
nafngiftir og gert þetta sjaldgæfa nafn að
nafni sem hefur verið sérstaklega áberandi,
ekki síst allra síðustu árin, en segja má að
Baltasar-æðið hafi byrjað fyrir alvöru rétt
eftir miðjan 10. áratuginn.
Meira um nafnið:
Þótt nafnið hafi ekki borist hingað til lands fyrr en á 20. öld þekkist það til dæmis í Dan-
mörku í nokkrum myndum á 14. öld og það þekkist einnig frá fyrri öldum í Noregi, Sví-
þjóð, Þýskalandi og Englandi. Það er upprunalega komið úr grísk-latínu en ræturnar má þó
rekja alla leið til gamla testamentis Biblíunnar og merkir „sá sem er verndaður af guði“.
Baltasar
Það er augljóst að knattspyrnukappinn Arnór Guðjohn-
sen hefur haft bein áhrif á vinsældir nafnsins Arnórs
hérlendis. Nafnið hafði ekki verið svo algengt árin áður
en hann náði hápunkti ferils síns með knattspyrnuliðinu
Anderlecht í Belgíu en á 9. áratugnum komst Arnór í þá
einstöku stöðu að verða belgískur meistari, vera út-
nefndur besti leikmaður deildarinnar og enda sem
markakóngur deildarinnar.
Og nafngiftir létu ekki á sér standa en Arnórar í land-
inu margfölduðust í kringum þessa glæstu tíma árið
1987. Þannig má nefna að milli 1981 og 1985 voru 17
drengir nefndir Arnór en 1986-1990 hlaut 71 drengur
nafnið. Þessar vinsældir nafnsins hafa haldist og bæst í
jafnt og þétt.
Meira um nafnið:
Nafnið er sett saman af fuglinum örn og Þór sem
vísar að sjálfsögðu til þrumuguðsins Þórs en nafnið
hafa íslenskir karlmenn borið frá því að búseta
hófst í landinu.
Arnór
Á Íslandi eru um tuttugu Emilíönur en það merki-
lega er að þær allar, nema Emilíana Torrini sjálf,
fæddust eftir að tónlistarkonan náði landshylli og
hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin sem söngkona
ársins árið 1996 en Emilíana hlaut einnig þau verð-
laun árið eftir.
Og þá komu fyrstu Emilíönurnar í heiminn. Mið-
að við að á landinu er engin Emilíana fædd fyrr en
söngkonan verður ein dáðasta söngkona okkar er
tveir tugir síðan þá nokkuð mikið og má víst telja að
Emilíana hafi haft áhrif á þónokkra foreldra.
Meira um nafnið:
Nafnið Emilíana hafa ítalskar og spænskar
konur fyrst og fremst borið í gegnum tíðina.
Emilíana er komið úr latínu; Aemilianus, og
merkir „ættingi fjölskyldu Emilios“.
Emilíana
Hilmir Snær er þekktasti núlifandi nafnberi
nafnsins Hilmis og eins og með Baltasar má
sjá mjög sterk merki þess að hann hafi haft
mikil áhrif á nafngiftir Íslendinga.
Þótt nafnið sé gamalt er aðeins stöku
Hilmi að finna á árunum áður en Hilmir
Snær útskrifast úr Leiklistarskóla Íslands ár-
ið 1994 og fer að verða áberandi á sviðinu.
Hann er einn af nokkrum leikurum sinnar
kynslóðar, í flokki með til dæmis Ingvari Sig-
urðssyni og Baltasar Kormáki, sem náðu
sess hjá þjóðinni sem er aðeins á færi fárra.
Þá hefur hann verið kosinn kynþokkafyllsti
karlmaðurinn í ýmsum álitsgjafagreinum í
gegnum tíðina.
Þá má ljóslega tengja vinsældir nafnsins á
einstökum árum við afrek hans. Þannig fjölg-
aði talsvert þeim drengjum sem hlutu nafnið
þegar Hilmir Snær vann Grímuna í fyrsta
sinn, árið 2001, og voru þá aldrei fleiri skírð-
ir þessu nafni en einmitt það sama ár.
Þá á Hilmir Snær meira að segja níu alnafna
sem fæddust allir eftir að hann varð þekktur.
Meira um nafnið:
Nafnið þýðir konungur í skáldamáli og er
skylt orðinu hjálmur. Það merkir í raun
„sá sem ber hjálm“.
Hilmir Snær
Ferill Kristbjargar Kjeld hefur verið langur
og glæsilegur en í kringum 1960 og allan 7.
áratuginn var hún ein eftirsóttasta leikkona
landsins þegar hún fékk meðal annars aðal-
hlutverkið í fyrstu íslensku kvikmyndinni,
79 af stöðinni, sem frumsýnd var árið
1962.
Nafn Kristbjargar hafði ekki verið algengt,
en á þessum fyrstu árum eftir frumsýningu
myndarinnar fjölgaði litlum Kristbjörgum
umtalsvert. Það er freistandi að tengja þessa
fjölgun við ákveðinn hápunkt í kringum
myndina en árið 1964 höfðu í 15 ár aldrei
fleiri stúlkur verið skírðar nafninu. Sérstak-
lega var nafnið hennar vinsælt árin 1964-
1966 en síðan þá hafa aldrei jafnmargar
stúlkur verið nefndar nafninu.
Meira um nafnið:
Nafnið er ekki mjög gamalt; kemur fyrst
fyrir á 17. öld. Nafnið útleggst „sá sem
Kristur bjargar“.
Kristbjörg
Það verður spennandi að sjá hvort að nýjasta
prinsessa Breta sem beðið hefur verið eftir
með mikilli eftirvæntingu, Karlotta Elísabet
Díana, muni hafa áhrif á stúlknanöfn ársins og
næstu ára og litlar Karlottur dúkki upp um
allar trissur. Amma hennar, Díana heitin
prinsessa af Wales, hafði víðlíka áhrif í kring-
um 1980 þegar hún giftist Karli Bretaprinsi.
Ekki aðeins í Bretlandi heldur víða um heim
og var Ísland ekki undanskilið.
Ári eftir heimsbyggðin fylgdist með Díönu
ganga í það heilaga árið 1981 voru aldrei
fleiri stúlkur skírðar Díana hérlendis og það
gilti um næsta ár á eftir. Nafnið er þó enn í
dag sjaldgæft þrátt fyrir að Díönum hafi fjölg-
að á þessum tímamótum en greinilegt er að
ekki aðeins Íslendingar geta haft áhrif á nafn-
giftir. Þá má benda á að stúlkum sem nefndar
hafa verið Díana hefur lítillega fækkað eftir
að hún lést. Erlendis hefur verið bent á að
Katrín, hertogaynja af Cambridge og tengda-
dóttir Díönu, hafi haft áhrif á nafngiftir þar í
landi en hérlendis er ekki að sjá sterk tengsl
þar á milli, enn sem komið er að minnsta
kosti.
Meira um nafnið:
Nafnið Díana kom fyrst fyrir á 3. áratugnum hérlendis. Nafnið er komið úr rómverskri
goðafræði þar sem Díana var gyðja mánans og veiða. Hjá Grikkjum kallaðist hún Artemis.
Talið er að uppruni nafnsins sé af sama stofni og guð; Deus.
Díana
Ásgeir Sigurvinsson er einn ástsælasti
íþróttamaður landsins og varð yngstur
allra til að verða landsliðsmaður Íslands
í knattspyrnu 17 ára gamall.
Í kringum 1980 rann upp hans
gullaldarskeið þegar hann, eftir að hafa
leikið í átta ár með Standard Liege í
Belgíu, fór til stórliðsins Bayern Münc-
hen árið 1981. Það sama ár tútnaði
hópur smábarna sem hétu Ásgeir ansi
mikið út en á 60 ára tímabili höfðu aldr-
ei fleiri verið nefndir Ásgeir á einu ári
eða 30 drengir. Sjö árum áður höfðu til
dæmis aðeins átta ungbörn heitið Ás-
geir. Þrátt fyrir að nafnið sé því ekki
sjaldgæft er afgerandi toppur í kringum
félagaskipti hans, sem vöktu mikla at-
hygli og aðdáun.
Meira um nafnið:
Ásgeir þekkist á Íslandi frá upphafi byggðar.
Það þekkist einnig í Danmörku og Noregi á
miðöldum og er seinni tíma nafn í Svíþjóð.
Nafnið útleggst „vopn goðanna“.
Ásgeir
Tölfræði er unnin upp úr gögnum Þjóðskrár og Hagstofu Íslands. Fróðleik um nöfn er að
finna í bókinni Hvað á barnið að heita? og í vefútgáfunni af Nöfn Íslendinga.