Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.05.2015, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.05.2015, Blaðsíða 36
Þó ýmis tilbrigði séu til af reiðhjólum þá eru þau nánastöll eins í grundvallaratriðum, grindin áþekk og drifbún-aður, gírar og tilheyrandi. Eitt af því sem hvað minnst hefur breyst í sögu reiðhjólsins er að þau eru knúin áfram með aðstoð keðju og svo hefur verið í 200 ár eða svo, þó stærð hjólanna sjálfra hafi breyst á sínum tíma, gírskipting komið til sögunnar og fyrirbæri eins og diskabremsur og demparar. Það er svosem ekkert að því að nota keðju, hún er ekki ýkja dýr og endist alla jafna býsna lengi (vei þeim sem ekki gætir að því að skipta um keðju þegar hún er orðin slitin). Ókostirnir eru aftur á móti nægir eins og þeir þekkja sem hafa gert við sprungið afturdekk, eða misst keðjuna útaf tann- hjólunum eða rekið buxna- skálmina utan í hana – og svo má lengi telja. Málið er nefnilega það að það mæðir mikið á keðjunni, óhreinindi og bleyta berst á hana þegar hjólað er og síðan sitja óhreinindin gjarn- an föst í gamalli olíu, nú eða það fer að ískra í keðjunni vegna þess að hún hefur ekki verið smurð reglulega. Ef vel á að vera þarf maður að hreinsa keðjuna reglulega og smyrja hana líka reglulega og gæta að því að nota mismunandi olíu eftir því hvort maður er að hjóla um vetur eða sumar. Nokkurnveginn þetta rann í gegnum huga mér þegar ég rakst á Focus Planet 1.0 reiðhjól í Hjólaspretti í Hafnarfirði þegar ég var að kaupa ný dekk um daginn. Málið er nefnilega það að á því hjóli er engin keðja, heldur koltrefjareim sem knýr hjólið áfram. Sáraeinfalt að sjá og einstaklega hreinlegt. Gefur augaleið að ekki er hægt að koma hefðbundinni gírskipt- ingu við á slíku hjóli, en kemur ekki að sök, því í nöfinni á aft- urhjólinu er Shimano Alfine 8 gíra skipting og þá losnar mað- ur líka við allar stýringar og vesen þeim tengt – hreinræktuð snilld, hugsaði ég, og fékk síðan hjólið lánað til að kanna hvort það væri eins gott í raun og veru og það sýndist á pappírnum. Eins og sjá má á meðfylgjandi mynd er hönnun á stellinu mjög skemmtileg og gerð fyrir hraða ekki síður en þægindi. Það er úr áli og greinilega búið að tálga af því allan óþarfa því hjólið er einkar létt. Það var einkennileg tilfinning að stíga á bak og hjóla af stað og tók mig smátíma að átta mig á hvað væri svo einkennilegt en svo rann upp fyrir mér: Engir keðjusmellir, ekkert skrölt! Nokkuð sem ég tók ekki eftir fyrr en það var horfið og að sama skapi heyrðist ekkert þegar ég skipti um gír. Algjör snilld! Að þessu sögðu þá var náttúrlega eftir sú stóra spurning hvernig hjólið stæðist almennileg átök, eins og til að mynda að hjóla í vinnuna. Skemmst er frá því að segja að það gekk vel að hjóla í mishæðóttu landslagi, afbragðsvel reyndar, þó ég hafi vissulega tekið eftir því að gírarnir voru „bara“ átta, en ekki 24 eins og á hjólinu sem ég fer á í vinnuna alla jafna. Að því sögðu þá er ekki víst að það skipti máli, fer eftir því hvaða leið er hjóluð og ef ekki þarf að fara um margar brattar brekkur á leiðinni þá er sannkallaður draumur að hjóla á því. Var ég búinn að nefna að það heyrist ekkert í því? Ég meina ekkert nema dekkjahvinur þegar maður er kominn á siglingu. Focus Planet 1.0 kostar nú 199.000 kr. í Hjólaspretti, sem er tilboð frá fyrra verði (var 256.000 kr.). EKKERT SKRÖLT – BARA SNILLD * Þó reimabúnaður sé snjall hefur hann sína gallaog þann helstan að þegar reimin fer í sundur getur ekkert tengt hana saman aftur, það er ekki hægt að gera eins og með keðju að mixa saman styttri reim og láta duga í bili. Á hjólinu eru diskabremsur, Shimano BR-M396, vökvabremsur og mjög fín- ar sem slíkar, svara vel. Undir því voru Cont- inental Urban Focus dekk, 622-35 (sam- svarar 29" eða 700c), nánast slétt dekk og því mjög þægilegt að hjóla á þeim. * Sveifin er Truvativ Firex, entannhjólin Gates Carbon Drive CDC. Koltrefjareimin er úr kolt- refjaefni og viðhaldsfrí, nema væntanlega er gott að hreinsa hana af og til, en framleiðandinn seg- ir að ekki þurfi að hirða um slíkt, reimin sé sjálf- hreinsandi. Einnig teygist ekki á henni með tím- anum, hún end- ist þangað til hún endist ekki lengur, en að sögn framleið- anda ætti hún að endast tvisvar til þrisvar sinnum leng- ur en keðja, auk- inheldur sem hún verð- ur ekki lakari með tímanum eins og keðja sem mædd er orðin af óhrein- indum og notkun. Græjan ÁRNI MATTHÍASSON FRAMFARIR Í REIÐHJÓLATÆKNI ERU ALLA JAFNA TENGDAR EFNINU Í STELLINU, HVORT ÞAÐ ER STÁL EÐA ÁL EÐA KOLTREFJAR, EÐA RAFEINDAVÆÐING (SKIPTINGAR OG TILHEYRANDI). ÞAÐ ER ÞÓ SITTHVAÐ AÐ GERAST Í DRIFBÚNAÐINUM, EINS OG SJÁ MÁ TIL AÐ MYNDA Á REIÐHJÓLI FRÁ ÞÝSKA HJÓLAFRAMLEIÐANDANUM FOCUS ÞAR SEM KEÐJUNNI ER SKIPT ÚT FYRIR KOLTREFJAREIM. Græjur og tækni *Ekki er gott að segja hve margir bíða eftir næstu út-gáfu af Windows sem koma á út síðsumars, en þaðvar staðfest í vikunni að Windows 10 verður síðastaútgáfa stýrikerfisins – það verður ekkert Windows11. Einn yfirhönnuða stýrikerfisins staðfesti það áföstudaginn að það myndi aldrei koma út ný heildar-útgáfa, frá og með haustinu verður stýrikerfið upp-fært jafnharðan. Síðasta útgáfan af Windows Eins og fram kemur hér að ofan eru breytingar í hjóla- heiminum hægfara en breytingar þó. Ný tíska er til að mynda ný gjarðastærð á fjallahjólum, 650b eða 27,5" í stað hinna hefðbundu 26" og þá þannig að sameina kostina af 700c / 29" og 26" dekkja. Önnur tíska, sem er ekki eins umeild, er að vera á sverari dekkjum og þá verulega sverari dekkjum, en með svo sverum dekkjum, 2,5" eða breiðari, er hægt að fara á slóðir sem enginn hefði treyst sér til að hjóla fram að því. Hjól með feit dekk, sem kallast einfaldlega Fatbike upp á ensku, eru ekki ný uppfinning, en hafa sótt í sig veðrið á síðustu árum eftir því sem menn vilja fara ótroðnari slóðir, en með svo sver dekk er til að mynda hægt að hjóla í snjó eða lausum sandi án þess að festa sig, ekki síst ef menn hleypa vel úr dekkjunum. Einn af upphafsmönnum tískunnar á seinni árum er hjólreiðakappinn Geoff Harper sem fór fræga ferð um Ísland á 9:Zero:7 Tusken-hjóli með 26 x 4.0" 45NRTH- dekkjum. Lesa má skemmtilega frásögn hans af ferðinni með mörgum myndum á: http://unchainediceland.wordpress.com/. SVERLEIKINN SKIPTIR MÁLI Feit dekk fyrir ævintýramenn Hjólreiðakappinn Geoff Harper á Íslandi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.