Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.05.2015, Blaðsíða 22
Heilsa og
hreyfing
Magnesíum?
*Magnesíum er fjórða algengasta efnið í lík-amanum og inniheldur öll fæða efnið. Sér-staklega má finna magnesíum í kornmeti,grænmeti, kjöti, hnetum og möndlum. Hefurþví oft verið lýst sem undralyfi: lætur fólksofa betur, slakar á taugakerfinu, vöðvarverða stærri og sterkari, líkaminn liðugri,
bein sterkari og tennur sömuleiðis. Þá hefur
magnesíum jákvæð áhrif á sýrustig líkamans.
Öskjuhlíðin hefur reynst mörgum útivistargörpum þarfaþing. Þótt oft sé talað um að til að vill-
ast ekki í íslenskum skógi þurfi ekki annað en að standa upp býður Öskjuhlíðin borgarbúum
séríslenskt tækifæri til að hreyfa sig innan fagurgrænna trjánna.
Morgunblaðið/Ómar
Þú þarft ekki að vera sérstök áhugamanneskja um plöntur til að njóta góðs af Grasagarðinum í
Laugardal, þótt vissulega skemmi það ekki fyrir. Göngu- og hlaupastígar garðarins geta nýst
hverjum þeim sem vill rækta líkama og sál.
Morgunblaðið/Ernir
Hlíðargarðurinn, rétt fyrir neðan Hamraborg í Kópavogi, er vel hannaður garður og ekki síður
hentugur í hverslags útivist sem Kópavogsbúar vilja stunda hverju sinni. Neðan við garðinn er
Kópavogstjörn, sem er fallegt svæði til að stunda hvers kyns útiæfingar.
Morgunblaðið/Ómar
Nágrannasvæði Öskjuhlíðarinnar, Nauthólsvíkin, þarf ekki að vera ylströnd frekar en maður
vill, en aldrei hefur mild sjávargola skemmt fyrir teygjuæfingum. Svo er aldrei að vita nema
mann langi í sundsprett eftir skokkið.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Skrúðgarður Hafnfirðinga, Hellisgerði, kom til sögunnar 1922 og er einstaklega fallegt þar um að litast.
Garðinum var ætlað „að vera skemmtistaður þar sem bæjarbúar áttu kost á að njóta ánægju og hvíld-
ar í tómstundum sínum“ og hefur ekki brugðist. Tilvalið er að hlaupa þar í gegn, staldra við og teygja.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
SUMARIÐ ER ÓÐUM AÐ GANGA Í GARÐ OG MARG-
UR FARINN AÐ SPREYTA SIG Á SKOKKI EÐA ANNARRI
ÚTIVIST. SUNNUDAGSBLAÐIÐ TÓK SAMAN NOKKRA
FALLEGA STAÐI ÞAR SEM TEYGJUÆFINGAR OG
FERSKT LOFT FARA VEL SAMAN. EF ÞÚ ÆTLAR Á
ANNAÐ BORÐ AÐ HLAUPA OG GERA ÆFINGAR, AF
HVERJU EKKI AÐ GERA ÞAÐ Í FALLEGU UMHVERFI?
Matthías Tryggvi Haraldsson mth@mbl.is
Nokkur falleg
útivistarsvæði