Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.05.2015, Side 6
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10.5. 2015
Pamela Geller í New York
stofnaði samtökin AFDI sem
stóðu fyrir samkeppni skop-
teikningar af Múhameð og köll-
uðu því yfir sig skotárás ísl-
amista nýlega í Texas. Og
Geller heldur úti umdeildri vef-
síðu, Atlas Shrugs.
Geller tókst á á sínum tíma
að koma í veg fyrir að reist yrði
menningarmiðstöð fyrir músl-
íma á Manhattan, skammt frá
leifum Tvíburaturnanna. Annan
sigur vann hún þegar hnekkt
var úrskurði gegn
auglýsingu sam-
taka hennar.
Þar var minnt
á hat-
ursáróður
Hamas
gegn gyð-
ingum.
Hvenær má nota tjáningar-frelsið til að móðga ogsæra og hvenær ekki? Sett
hafa verið lög um þessi mál en þau
geta aldrei verið nægilega skýr, allt-
af er hægt að túlka ákvæði þeirra
með ólíkum hætti. Fyrsta viðbótin
við stjórnarskrá Bandaríkjanna var
samþykkt 1791 og þar er skýrt
ákvæði um að ekki megi setja lög
sem hefti tjáingarfrelsið. Í reynd
geta Bandaríkjamenn móðgað og
sært hópa eins og múslíma að vild,
þeir mega bara ekki hvetja til lík-
amlegs ofbeldis.
En í mörgum Evrópulöndum,
þ.á m. Danmörku, hafa verið sett
lög sem setja tjáningarfrelsinu meiri
skorður, aðallega gegn svonefndum
hatursáróðri. Mörkin eru samt alltaf
mjög óljós. Það sem í eyrum eins
hljómar eins og argasta móðgun
getur verið eins og hver önnur
hvöss gagnrýni í eyrum annars. Eða
húmor. Og á að banna hann?
Nýlega reyndu tveir íslamistar að
gera skotárás á fund í Texas á veg-
um félags sem efnt hafði til sam-
keppni um bestu skopmyndina af
Múhameð spámanni. Árásin mis-
tókst, lögreglan felldi báða mennina
sem sögðust fyrir árásina ætla að
verja íslam. Með skotvopnum.
Á þriðjudaginn verðlaunaði
Bandaríkjadeild alþjóðasamtaka rit-
höfunda, PEN, franska skopritið
Charlie Hebdo fyrir „hugrekki í
tengslum við tjáningarfrelsið“. Mjög
öflugur lögregluvörður var á fund-
inum en allajafna eru þessi fundir
þekktari fyrir veisluglaum en póli-
tík. Sjöunda janúar réðust íslam-
istar á ritstjórnarskrifstofur blaðs-
ins Charlie Hebdo í París og myrtu
12 manns. Ástæðan var að ritið
hafði birt skopmyndir af Múhameð.
Charlie er þekkt fyrir að gera
miskunnarlaust gys að öllu og öllum,
hvort sem um er ræða þjóðhöfðingja
eða trúarleiðtoga. En hefur ritið
beitt sér sérstaklega gegn íslam og
Múhameð, löngu látnum spámanni?
Tveir franskir félagsfræðingar hafa
kannað forsíðumyndir blaðsins und-
anfarin 10 ár, alls 523 síður. Í ljós
kom að 485 fjölluðu um stjórnmál,
efnahagsmál og slík efni. Trúar-
brögð komu við sögu á 38 forsíðum,
kristni var aðalefnið á 21 þeirra en
íslam aðeins sjö.
Einn af teiknurum Charlie Hebdo
segir að þar ríki ekki hatur gegn
trú heldur „glaðvært guðleysi“. Og
enn síður sé þar verið að hylla ras-
isma. Margir benda auk þess á að
þegar árás á trú sé kölluð rasismi
séu menn farnir að blanda illilega
saman hugtökum, þau missi á end-
anum alla merkingu. Kynþáttur
ákvarði ekki trú.
En rúmlega 200 af alls um
4.000 félögum PEN í Bandaríkj-
unum ákváðu samt að hunsa
samkomuna á þriðjudag. Þeir
segja að ekki sé verið að heiðra
tjáningarfrelsið heldur það sem þeir
segja að sé skortur á „menning-
arlegu umburðarlyndi“ hjá Charlie
Hebdo, einnig ríki þar hatur á ísl-
am.
Mjótt einstigi
Í nær hundrað ára gömlum sátt-
mála PEN segir skýrum stöfum að
liðsmenn samtakanna heiti því að
gera allt sem þeir geti til að berjast
gegn hatri milli kynþátta, stétta og
þjóða. Þar er líka annað ákvæði:
„Félagarnir heita því að berjast
gegn hvers kyns hömlum á tjáning-
arfrelsið“.
Franski sagnfræðingurinn Emm-
anuel Todd er einn þeirra sem hafa
gagnrýnt viðbrögðin í kjölfar morð-
anna á skrifstofu Charlie Hebdo.
Hann segir að mótmælin miklu í
París 11. janúar, með þátttöku leið-
toga og stjórnmálamanna frá mörg-
um löndum, til stuðnings tjáning-
arfrelsinu hafa verið „hneisa“.
Fullyrt hafi verið að í mótmælunum
hafi þjóðin, lýðveldið, sameinast um
styðja tímaritið. En í reynd hafi að-
allega verið á staðnum fulltrúar
annars vegar elítu guðleysingja í
höfuðborginni og hins vegar kaþ-
ólikka af landsbyggðinni sem sögu-
lega séð séu á móti lýðveldinu. Lág-
stétt múslíma hafi alveg vantað,
segir Todd.
Fjórar milljónir manna hafi kom-
ið saman til að hylla réttinn til að
skrumskæla trú annarra þótt „þess-
ir aðrir séu helstu lítilmagnar sam-
félagsins“. Hin raunverulega ógn við
Frakkland sé ekki múslímar heldur
„þessi klikkaða nýja trú sem ég
kalla róttæka veraldarhyggju“, segir
Todd.
Ráðamenn PEN voru ósammála.
„Frá okkar sjónarhóli er hugrekkið
aðalatriðið,“ segir Suzanne Nossel,
framkvæmdastjóri deildarinnar.
„Það gengur ekki að hægt sé að
skerða tjáningarfrelsið með byssu-
hlaupi.“
Byssuhlaup
gegn skop-
myndum
BANDARÍKJADEILD ALÞJÓÐLEGU PEN-RITHÖFUNDA-
SAMTAKANNA VERÐLAUNAÐI Í VIKUNNI FRANSKA
SKOPTÍMARITIÐ CHARLIE HEBDO. RITIÐ HAFI SÝNT
HUGREKKI Í BARÁTTU FYRIR TJÁNINGARFRELSI.
ENGAR ORÐAHÖMLUR
Lögreglumenn á verði við Bandaríska náttúrusögusafnið í New York á þriðjudag. Bandaríkjadeild rithöfundasamtakanna
PEN veitti á ársfundi sínum í húsinu skoptímaritinu Charlie Hebdo verðlaun fyrir að berjast fyrir tjáningarfrelsi.
AFP
*Hugtakið virðing fyrir trú er orðið að dulmáli sem merkirótta við trú. Eins og aðrar hugmyndir eiga trúarbrögð skilið gagnrýni, háð og já, óttalaust virðingarleysi okkar.
Salman Rushdie rithöfundur.
Alþjóðamál
KRISTJÁN JÓNSSON
kjon@mbl.is
HEIMURINN
B
AMKLAHOO
C TY Minnst
ýstrókarsk erjuh
tukjanna á fimmmiðvesturhluta Banda
og skýrt var frá höglu
mhornabolta á um 800
náði yfir fjögur samba
einna mest ení grennd v
á miðvikud
skýstrókur
sleit raflínu nin
borginni o
SRAELÍ
JERÚSALEM raels,Forsætis Ben
nyahu, tókst á síðu
turen fresypustjórn á miðsa
stjórninni sitja auk Likud-flokksti. Í nnn útafði til þess rhann ýju
máflokkar sem leggja aðaláhersluokkaans noráð r og s
kka tirg vegna kosningakerfisins ná flesr í Ísá trú rael o
málask emr í Ísraelar segja að nýja stjórnin, sþeirra m ýrendu
þ ðug. En ljóst er að Netanyaingi,hefur 61 sé afar óstö hu
ge áðher lengst situr í embættra i.tur Ísraels sem
tralíu
hefu stum sínum
búnaði sem lætur regluna eða
lestarstarfsmenn vita ef krotað er á
veggi inni í vögnu m. Búnaðurinn
er kallaðu ran. Notaðir
eru nema em verða strax varir
við e tunum þegar
eimþ eggina. Geta
yndirm stundis m
nn til
staði
gg
A ag ar segjas
ðu ns alr
London 17sjór
efmunu
faHermenn hafa gætt fj
sMadagaskar og fulltrú