Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.05.2015, Qupperneq 23
10.5. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23
Heilsa og hreyfing
Nutrilenk er fáanlegt í flestum apótekum,
heilsubúðum og heilsuhillum stórmarkaðanna
P
R
E
N
T
U
N
.
I
S
NUTRILENK - hollráð við liðkvillum. Náttúrulegt fyrir liðina
Get þakkað NUTRILENK frábæran árangur í keilu!
NUTRILENK bjargarmér frá skelfilegum verkjum
Hvað getur Nutrilenk
gert fyrir þig?
Heilbrigður liður
Við mikið álag og eftir því sem árin færast yfir
getur brjóskvefurinn rýrnað sem veldur því að
liðirnir slitna. Mjög margir finna fyrir óþægin-
dum og verkjum þegar liðfletirnir núast saman,
sérstaklega í liðamótunum í mjöðmum, hrygg
og hnjám. Þess vegna er til mikils að vinna að
styrkja liðbrjóskið á náttúrulegan hátt.
Hefur hjálpað fjölmörgum
Nutrilenk Gold inniheldur brjósk úr fiski- og
hákarlabeinum sem er öflugt byggingarefni
fyrir bein og brjósk enda ríkt af kondritíni,
mangan, kollageni og kalki. Nutrilenk hefur
hjálpað fjölmörgun sem þjást af liðverkjum.
Prófið sjálf - upplifið breytinguna!
Liður með slitnum
brjóskvef
Það er ekki á hverjum degi sem sextugur maður nær 12 fellum í röð í
keilu. „Ég vil nú bara vera hógvær og segja að þetta hafi verið hinn
fullkomni leikur,“ Segir Davíð Löve, múrari, sem setti Íslandsmet í keilu í
fyrra. „ Satt að segja var ég ekki í góðummálum fyrir þremur árum. Ég var
búinn að fara í þrjár hnéaðgerðir á nokkra ára tímabili, var mjög slæmur
og treysti mér engan veginn í aðra aðgerð. Til allrar hamingju ákvað ég að
prófa NUTRILENK Gold. Ég tók inn 6 töflur fyrstu tvær vikurnar og það
dugði mér til að verða góður. Nú tek ég 2 töflur á dag til að viðhalda
batanum. Sem múrari er ég mikið á hnjánum og starfið reynir gríðarlega
á liðina. Það má segja að það sé kraftaverki líkast að ég sé orðinn góður.
Ég hvet því kollega mína í iðninni til að prófa og trúi því að NUTRILENK
haldi mér góðum í keilunni amk næstu 20 árin,“ bætir Davíð við kíminn.
Davíð Löve 60 áramúrari og keilusnillingur
„Ég þarf að vera á andhormónalyfjum næstu árin til halda í skefjum
brjóstakrabbameini sem ég greindist með fyrir einu og hálfu ári. Þessi lyf
fóru þannig í skrokkinn á mér að ég var undirlögð af skelfilegum liðverkj-
um og upplifði mig eins og gamla konu. Ég var því ekki bjartsýn á það að
geta tekið þessi lyf næstu 5 árin. Ég ákvað að prófa NUTRILENK og tók inn
2 töflur 3x á dag og fann mun viku seinna. Í kjölfarið gat ég minnkað
skammtinn niður í 3 töflur á dag og það heldur mér góðri. Mér er mikið í
mun að segja frá þessari reynslu því ég veit ummargar konur í sambæri-
legri stöðu og þess vegna vona ég að NutriLenk geti hjálpi þeim eins og
það hefur hjálpað mér. Ég er ótrúlega þakklát!
Lára Emilsdóttir 59 ára fjármálastjóri
Í nýlegri rannsókn kemur fram að
77 prósent bandarískra fanga sem
fremja sjálfsmorð eigi við ólækn-
andi geðræn vandamál að stríða.
Átlað er að um 15 prósent banda-
rískra fanga glími við geðræn veik-
indi og er talið að þetta háa hlutfall
sé afleiðing þeirrar gagnrýni sem
fram kom á sjötta áratugnum á
geðveikrahæli og meðferðarstofn-
anir fyrir andlega veikt fólk. Árið
1955 voru 560 þúsund vistaðir á
opinberum meðferðarstofnunum
við geðsjúkdómum en í dag er
fjöldinn aðeins 35 þúsund.
Áætlað er að 15 prósent bandarískra
fanga glími við geðræn veikindi.
AFP
BANDARÍKIN
Andlega veikir
eru fangelsaðir
Þeir sem drekka daglega þrjá til
fjóra kaffibolla eru 24% ólíklegri til
þess að látast af völdum hjarta-
tengdra vandamála en þeir sem
drekka það ekki skv. niðurstöðu
rannsóknar Krabbameinsmið-
stöðvar Japans og Háskólans í Tók-
ýó. Fylgst var með 90 þúsund
manns á aldrinum 40 til 69 ára.
Einnig kom í ljós að karlar sem
drekka fimm bolla eða meira af
grænu tei eru 13% ólíklegri til að fá
sjúkdóm og konur 17% ólíklegri.
Rannsóknin var gerð í Japan og var
þar fylgst með 90 þúsund manns.
Morgunblaðið/Eggert
RANNSÓKN Í JAPAN
Grænt te og
kaffi er hollt
vökva, heldur nóg af vatni. Eintómu,
kristaltæru og ósykruðu vatni. Fyrir
utan loft er vatn eitt það helsta sem
mannslíkaminn þarf til að lifa af og of
lítið vatn getur valdið þreytu, einbeit-
ingarleysi og hausverk. Vatnsinntaka
líkamans þarf ekki að minnka mikið til
að þessi einkenni geri vart við sig svo
þegar fólk finnur hausverk getur
vatnsglas fremur en verkjalyf komið
til bjargar.
Margir eru hins vegar hrifnari af
ávaxtasafa en kranavatni, en reyndin
Þegar fjallað er um gagnsemi vatns-
drykkju er fólk stundum spurt hvort
það vilji frekar að frumur líkama þess
líkist vínberi eða rúsínu.
Svarið ætti óneitanlega að vera vín-
ber því vísindamenn draga gjarnan
upp mynd af rúsínunni til að lýsa
frumum sem búa við vökvaskort.
Gott vökvajafnvægi er ómissandi
fyrir starfsemi frumnanna, stuðlar að
bættri meltingu, virkar sem „smurn-
ing“ á liðamótin og ótal margt fleira.
En líkaminn þarf ekki bara einhvern
er sú að ólíkt heilum ávöxtum skortir
safann trefjar, sem veldur því að syk-
urinn í safanum berst hraðar í blóð-
rásina en ella og því er vatn æski-
legra. Ef djús væri okkar eini
vökvagjafi fengjum við allt of mikinn
sykur í kerfið áður en vatnsþörf okk-
ar væri fullnægt. Síðan geta gos-
drykkir með viðbættum sykri hægt á
vökvaupptöku líkamans svo ekki sé
minnst á saltaða eða koffínríka drykki
sem auka frekar vökvaþörf líkamans
en mæta henni. Gott er að hafa
vatnsbrúsa við höndina í sumar, hvort
sem er í vinnunni eða í líkamsrækt.
Þótt djúsið sé gott er hreint vatn
mun betri svaladrykkur.
Til hvers eintómt vatn?
Hausverkur er
oft til kominn út
af vökvaskorti og
dugar þá að drekka
nokkur glös.