Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.05.2015, Side 26
Heimili
og hönnun
Hönnunarnám á diplómastigi
Morgunblaðið/Eggert
1 *Við myndlistarskólann í Reykjavík eru starf-ræktar þrjár námsbrautir á diplómastigi í sam-starfi við Tækniskólann í Reykjavík. Námsbraut-irnar þrjár eru; mótun, leir og tengd efni,teikning og textíll. Námið er hönnunarnám áfjórða þrepi – viðbótarnám metið til 120 ECTSá háskólastigi sem kennt er í dagskóla.
Umsóknarfrestur til náms í diplómadeildum
er sunnudaginn 9. maí.
Á
sdís Helga Ágústsdóttir
og Sólveig Berg stofn-
uðu Yrki arkitektastofu
árið 1997. Þær kynntust
í Lundúnum, þar sem þær námu
báðar arkitektúr, Ásdís við Bartlett
School of Architecture and Plann-
ing, og Sólveig Berg í Architectural
Association School of Architecture.
„Eiginlegt samstarf hófst svo þegar
við ákváðum að taka saman þátt í
samkeppni um hönnun Lækninga-
minjasafns við Nesstofu á Seltjarn-
arnesi. Tillaga okkar að safnhúsi og
umhverfi þess vann til fyrstu verð-
launa í samkeppninni og í kjölfarið
stofnuðum við arkitektastofuna
Yrki árið 1997. Við höfum verið að
síðan,“ segir Ásdís en Yrki hlaut
nýverið heiðursviðurkenningu A’
Design Award fyrir hönnun sína á
vigtarhúsinu í Þorlákshöfn.
A’ Design Award er ein stærsta
árlega hönnunarsamkeppnin í
heimi, þar sem dómnefnd veitir
hönnuðum, arkitektum og fyrir-
tækjum alþjóðlega viðurkenningu.
„Það er ósköp gaman að fá ein-
hverja viðurkenningu, svo langt
sem það annars nær, en ætli það
gildi ekki um okkur eins og flesta
aðra að maður er alltaf að reyna að
sanna sig fyrir sjálfum sér og tekst
það sjaldnast. Þess vegna vill mað-
ur gera betur,“ útskýrir Sólveig.
Það var Ólafur Áki Ragnarsson,
þáverandi bæjarstjóri í Ölfusi, sem
hafði milligöngu um að Hafnar-
sjóður Þorlákshafnar fól þeim að
hanna húsið. Arkitektarnir fengu
frjálsar hendur til að útfæra bygg-
inguna. Hlutverk byggingarinnar
segja Ásdís og Sólveig í senn vel
skilgreint og mikilvægt en þaðan er
siglingu báta inn í og út úr höfninni
stjórnað og fiskurinn sem bátarnir
koma með að landi vigtaður.
„Það sem einkennir vigtarhúsið í
Þorlákshöfn er mjúkar og lífrænar
sporöskjulaga línur og form sem
tengjast höfuðatvinnugreininni: út-
gerð og sjómennsku. Við sem arki-
tektar teljum mikilvægt að sam-
þætta notagildið og hið sjónræna,
og umhverfið hefur áhrif. Við leit-
um eftir vísbendingu eða leiðbein-
ingum í umhverfinu sjálfu, sækjum
innblásturinn þangað fyrst og
fremst,“ útskýrir Ásdís og bætir
við að í Vigtarhúsinu megi glöggt
sjá hvernig hið sjónræna og hag-
nýta blandast saman. Formi, litum
og notkun er steypt í eina heild,
sem er í senn merkingarbær og fel-
ur í sér ákveðna fagurfræðilega af-
stöðu.
Engin forskrift að
samræðunni
Aðspurðar hvað hafi frekari áhrif
en annað þegar kemur að verk-
efnum sem þessum segja þær arki-
tekta kynna sér tiltekið umhverfi
vegna þess að þeim er ætlað að
skapa þar eitthvað sem gegnir ein-
hverju tilteknu hlutverki eða verð-
ur að uppfylla einhverjar tilteknar
þarfir.
„Það skiptir miklu máli að gefa
sér tóm til að öðlast einhverja
heildræna skynjun gagnvart því
umhverfi sem um ræðir hverju
sinni áður en maður byrjar að skil-
greina það út frá þeirri fúnksjón
sem leysa þarf. Fyrr en síðar hefst
svo þetta ferli eða samræða þar
sem kallast á umhverfi – það sem
er – og möguleg lausn – það sem
getur orðið,“ útskýrir Sólveig Berg
og bætir við að það skemmtilega
við þessa grein er að það er engin
forskrift til að þeirri samræðu, hún
er alltaf ný, og niðurstaðan verður
oftast óvænt á einhvern hátt.
Spurðar um starfsemi og önnur
verkefni stofunnar segja þær að
sem arkitektar séu þær að fást
við sömu verkefni og aðrir í þeirra
stétt; hönnun mannvirkja að utan
sem innan, að teikna innréttingar
og húsbúnað og vinna að skipulags-
málum en í þessu felst mikil fjöl-
breytni. „Mannvirkin geta verið
frystigeymslur, listasöfn eða sam-
býli. Innréttingarnar stórar og
smáar, grófar og fínar. Skipulagið
af öllum toga. Þessi fjölbreytni er
skemmtileg, en í rauninni eru meg-
inforsendurnar alltaf þær sömu.
Lausnirnar taka mið af mismun-
andi þörfum, umhverfi og að-
stæðum og þær eru byggðar upp á
ákveðnum fagurfræðilegum
grunni,“ segir Ásdís.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Mjúkar og lífrænar sporöskjulaga línur og form sem tengjast höfuðatvinnu-
greininni, útgerð og sjómennsku, einkenna Vigtarhúsið í Þorlákshöfn.
Arkitektarnir fengu frjálsar hendur til að útfæra bygginguna. Hlutverk bygging-
arinnar segja Ásdís og Sólveig í senn vel skilgreint og mikilvægt.
Mynd tekin inni í Viktarhúsinu með útsýni yfir höfnina.
YRKI HLÝTUR ALÞJÓÐLEGA VIÐURKENNINGU
Hið sjónræna og
hagnýta blandast saman
ARKITEKTASTOFAN YRKI HLAUT NÝVERIÐ HEIÐURSVIÐURKENNINGU
A’ DESIGN AWARD FYRIR HÖNNUN SÍNA Á VIGTARHÚSINU Í ÞORLÁKSHÖFN.
ÁSDÍS HELGA ÁGÚSTSDÓTTIR OG SÓLVEIG BERG, STOFNENDUR STOFUNNAR,
SEGJA ÞAÐ SKIPTA MIKLU MÁLI Í HÖNNUN AÐ GEFA SÉR TÓM TIL AÐ ÖÐLAST
HEILDRÆNA SKYNJUN GAGNVART UMHVERFINU SEM FYRIR ER.
Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is
Sólveig Berg og Ásdís H. Ágústsdóttir ásamt Sigurði Kolbeinssyni, Elínu Mjöll Lárusdóttur,
Sólveigu Gunnarsdóttur, Yngva Karli Sigurjónssyni og Magnúsi Þorvarðarsyni.