Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.05.2015, Page 32

Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.05.2015, Page 32
32 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10.5. 2015 Matur og drykkir E itt vorkvöld í vikunni var slegið til dýrindis kvöldverðar í kjallara Ostabúðarinnar á Skólavörðustíg. Maturinn smakkaðist gríðarlega vel að mati gesta, enda ekki við öðru að búast frá eðalmatreiðslu- mönnunum þar á bæ. Tilefnið var opnun ljósmyndasýningar Ásdísar Ásgeirsdóttur í Gallerý Bakaríi á Skólavörðustíg en þar sýndi hún myndir frá Oaxaca í Mexíkó. Ásdís er æskuvinkona Hafdísar Harðardóttur, sem er eiginkona Jóhanns Jónssonar, eiganda Ostabúðarinnar, og fannst henni til- valið að ferja stórfjölskyldu sína og nokkrar góðar vinkonur yfir í kjallarann góða að sýningu lokinni. „Þetta var gert alveg sérstaklega fyrir hana Ásdísi,“ segir Jóhann, betur þekktur sem Jói í Ostabúðinni. Aðspurður hvernig boðið sjálft og maturinn hafi heppnast svarar Jói: „Ja, spurðu ljósmyndarann! Hann fékk líka að borða,“ segir hann og hlær. Það er ekki venjan að eldhúsið þar sé opið að kvöldi til enda hádegisverðarstaður, en það er allt að breytast því senn mun Ostabúðin opna kvöldverðarstað. Opnað verður milli kjallarans og efri stalls- ins í rými við hliðina á. Sætin verða um 50 og verða staðurinn og búðin opin alla daga vikunnar til kl. 21. „Þetta er búið að vera í pípunum lengi. Ég er búinn að vera hér síðan árið 2000 og hugmyndin um stækkun kom 2007. Ég var hins vegar heppinn að geta bakkað út úr þeim plönum þegar hrunið skall á. En nú er komið að stökkinu,“ segir Jói. „En það er náttúrlega verk- fall og það er allt stopp, upp á leyfi og annað. Það bitnar á okkur en ekki eins og á mörgum öðrum. Við tökum þessu þó bara af æðruleysi og lítum á björtu hliðarnar; við getum þá bara gefið okkur meiri tíma og verðum fyrir vikið betur undirbúin þegar við loksins opnum.“ Draumurinn að læra á Hótel Holti Jói hefur verið lengi í bransanum en hann er menntaður matreiðslumaður. Hann lærði á Hótel Holti og segir það hafa verið draum að fá þar inni frá því hann var ungur drengur. „Ég beið í þrjú ár eftir að komast á samning þar þegar ég ætlaði að fara að læra. Í dag þarf varla að bíða en í þá Morgunblaðið/Golli PRUFUKEYRÐI NOKKRA RÉTTI Í VIKUNNI „Maður tók upp á ýmsu“ Frá vinstri: Áslaug Faaberg, Jóhann Jónsson, Ásgeir Jónsson og Ragnhildur Benediktsdóttir. SENN VERÐUR OPNAÐUR KVÖLDVERÐARSTAÐUR Í OSTA- BÚÐINNI Á SKÓLAVÖRÐUSTÍG. EIGANDINN, JÓHANN JÓNS- SON, FÉKK SNEMMA ÁHUGA Á MATREIÐSLU EN HANN LÆRÐI Á HÓTEL HOLTI. HANN ÞURFTI ÞÓ AÐ BÍÐA Í ÞRJÚ ÁR EFTIR INNGÖNGU OG SKELLTI SÉR Í MILLITÍÐINNI Á SJÓ. Gunnþórunn Jónsdóttir gunnthorunn@mbl.is 300 ml rjómi 50 g smjör hvítvínsedik salt Blómkálið er brúnað upp úr smjörinu, svo er rjóm- anum blandað saman við og þetta soðið þar til blómkálið er orðið vel mjúkt. Þá er blandan maukuð í matvinnsluvél og smökkuð til með salti og hvítvínsediki Pikklaður skalott- laukur 1 stk skallottlaukur 40 ml hvítvínsedik 40 g sykur 70 ml vatn Laukurinn er skrældur og svo skorinn niður í fallega ílanga bita. Hver biti vaf- inn inn í beikonsneið, sett í eldfast mót ásamt öllu hinu og bakað við 160°C í 30 mínútur. Blómkálsmulningur ½ blómkálshaus 20 g fínt skorin sól- selja 30 g ristaðar möndlu- flögur salt lime Blómkálið er mulið fínt í matvinnsluvél, sólselju og ristuðum möndluflögum blandað út í eftir á, smakkað til með salti og limesafa. Brúnað blómkáls- mauk ½ blómkálshaus Beikonvafið fennel, pikkl- aður skallottlaukur, blóm- kálsmulningur, brúnað blómkálsmauk og hol- landaise-sósa Hrefna 400 g hrefnukjöt Kryddað með salti, pipar og hvítlauksolíu, grillað á hvorri hlið í mínútu og leyft að volgna í gegn, skorið í þunnar sneiðar. Beikonvafið fennel ½ fennel 4 hvítlauksgeirar 8 greinar garða- blóðberg 300 ml kjúklingasoð 2 tsk gróft salt 4 sneiðar beikon Fennelið er skorið í fjóra hringi. Hvítvínsedik, sykur og vatn er soðið þar til sykurinn hefur leyst upp, þá er vökvinn kældur. Þegar vökvinn er orðinn kaldur seturðu laukinn saman við og lætur liggja í vökvanum í klukkustund Hollandaise-sósa 2 eggjarauður 200 g smjör salt pipar lime Smjör er brætt í potti, eggjarauður svo pískaðar saman yfir vatnsbaði þar til þær fara að þykkna. Þá er smjörið pískað saman við í mjórri bunu og svo smakkað til með salti, pipar og limesafa. Grilluð hrefna 

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.