Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.05.2015, Side 52
E
ins og flestir vita hófst heimsstyrjöldin
síðari formlega hinn 3. september
1939 þegar Bretar lýstu yfir stríði við
Þjóðverja sem höfðu tveimur dögum
áður ráðist inn í Pólland. Undanfar-
inn hafði verið langur og stríðið lengi yfirvofandi.
Á þessum tíma tilheyrði Ísland enn danska kon-
ungdæminu þrátt fyrir að hafa öðlast fullveldi 1.
desember 1918. Konungur Danmerkur, Kristján
X, var því þjóðhöfðingi Íslands og utanríkismál
landsins í höndum danska þingsins. En 9. apríl
1940 hernámu Þjóðverjar Danmörku og við það
rofnaði skyndilega sambandið milli Íslands og
Danmerkur. Eftir stóðu Íslendingar óvaldaðir og
fengu strax boð frá Bretlandi um að breski her-
inn tæki að sér að verja landið, gegn því að mega
setja upp hernaðaraðstöðu á landinu. Þessu hafn-
aði ríkisstjórn Íslands og lýsti því yfir að þar sem
Kristján X gæti ekki sinnt stjórnarskrárskyldum
sínum sem þjóðhöfðingi myndu Alþingi og rík-
isstjórn Íslands fara alfarið með málefni landsins
hér eftir.
Hernæmu landið sem allra fyrst
En Bretar hættu ekki að hafa áhyggjur af Ís-
landi, þeir voru farnir að óttast að fyrst Þjóð-
verjar væru búnir að ná undir sig Danmörku
myndu þeir fljótlega færa sig yfir til Íslands. Og
þessi litla eyja var í raun ákaflega mikilvægur
landfræðilegur punktur í hernaðaraðgerðum í
Norður-Atlantshafi. Sú fylking sem næði yfirráð-
um þar stæði mun betur að vígi og næði yfir-
höndinni á lífsnauðsynlegum siglingaleiðum milli
austurs og vesturs. Með hverjum deginum sem
leið, meðan bandamenn voru að tapa baráttunni
við Þjóðverja í Noregi, urðu yfirmenn hjá
flotamálaráðuneyti Bretlands sannfærðari um að
nauðsynlegt væri að setja upp hernaðaraðstöðu á
Íslandi. Winston Churchill, þáverandi flotamála-
ráðherra, taldi ekki óhætt að halda áfram að
semja við íslensku ríkisstjórnina, því við það
gætu Þjóðverjar fengið veður af áætlunum Breta
og orðið fyrri til að ná Íslandsströndum. Hann
kynnti því áætlun fyrir breska hermálaráðuneyt-
inu um að Bretar hernæmu Ísland sem allra
fyrst. Markmiðið var að ná Reykjavík á sitt vald
hratt og örugglega, taka nokkra hernaðarlega
mikilvæga staði og koma í
veg fyrir að Þjóðverjar næðu
að bregðast við hernáminu
með mótspyrnu eða árás á
landið. Þetta var 6. maí,
áætlunin var samstundis
samþykkt og sendiför land-
gönguliðsins undirbúin í
miklum flýti, og illa. Í her-
námsliðið völdust mikið til
ungir og óreyndir hermenn, kynslóð ungra
drengja sem alist höfðu upp í kreppunni í Eng-
landi og höfðu fyrst og fremst skráð sig í her-
þjónustu til að fá reglulegar máltíðir. Þeir til-
heyrðu samt virðulegri herdeild, Hinum
konunglegu landgönguliðum (e. The Royal Mar-
ines), sem unnið hafði fræga sigra fyrr og síðar
en þessi hópur var ekki sá glæsilegasti. Þeir
sigldu frá Skotlandi 8. maí á tveimur beitiskipum,
Berwick og Glasgow, í fylgd tundurspillanna For-
tune og Fearless. Hernámsliðið taldi ekki nema
tæplega 800 manns, með fjórar hríðskotabyssur,
tvær fjallabyssur, fá og léleg landakort af Íslandi,
mótorhjól og reiðhjól. Margir mannanna höfðu
ekki fengið fulla þjálfun og fór hún því fram í
skipunum á leiðinni, dæmi voru um að einhverjir
hermannanna hefðu handleikið byssur í fyrsta
sinn á siglingunni til Íslands.
Margir illa haldnir af sjóveiki
Aðfaranótt föstudagsins 10. maí 1940 var svefn
margra Reykvíkinga truflaður af flugvélar-
drunum, en Walrus-flugbáturinn sem Bretar
höfðu sent á loft til að fylgjast með skipaferðum
við Ísland hafði í slysni flogið beint yfir bæinn. Í
dagrenningu sáu þeir Reykvíkingar sem voru
vakandi fjögur herskip sigla inn á Reykjavíkur-
höfn og eflaust hefur farið um marga því þeir
gátu allt eins átt von á að þarna væru Þjóðverjar
mættir. Beitiskipin voru of stór til að geta lagst
að bryggju því höfnin var ekki eins djúp þá og
hún er nú, svo tundurspillarnir selfluttu hernáms-
liðið í land. Fyrstu landgönguliðarnir stigu á land
um klukkan fimm um morguninn en „hernámið“
gekk frekar hægt fyrir sig. Ungu hermennirnir
voru óvanir að sigla um Norðursjó og voru marg-
ir hverjir illa haldnir af sjóveiki.
Slæðingur af fólki hafði safnast saman við
höfnina; sjómenn, leigubílstjórar, Hafnarstrætis-
rónarnir og nokkur skemmtanaglöð ungmenni.
Einnig nokkrir lögreglumenn og ræðismaður
Breta, sem bað íslenska lögregluþjóna að bægja
áhorfendum frá svo landgönguliðið kæmist greið-
lega í land. Og ekki stóð á því, íslensk lögregla
hjálpaði þannig til við innrásina. Einu mótbár-
urnar voru stöku hróp og köll og hnefasteytingar
úr áhorfendahópnum. Einn ungur maður sem
hafði verið að skemmta sér fram á nótt þreif riffil
af landgönguliða, tróð sígarettunni sinni ofan í
hlaupið og kallaði yfir Íslendingahópinn: „Eigum
við ekki að stöðva þessa vitleysu?“ en fékk lítil
viðbrögð og henti vopninu aftur til hermannsins,
sem var víst nokkuð skelfdur á svipinn.
Handtóku alla Þjóðverja
Hernaðarlega mikilvægir staðir voru lögreglu-
stöðin, pósthúsið og Landsímahúsið, til að taka
Reykjavík „úr sambandi“ og koma í veg fyrir að
fréttir af hernaðaraðgerðum spyrðust út og
minnka þannig líkurnar á mót-
spyrnu. Hernámsliðið lokaði
leiðum út úr borginni en þar
sem þeir voru ekki vel tækjum
búnir urðu hermenn hans há-
tignar að reiða sig á Íslendinga
og notuðu bæði leigubíla frá
BSÍ og flutningabíla frá Þrótti.
Og þeir hermenn sem fóru
austur fyrir fjall, til að taka
flugvöllinn á Kaldaðarnesi yfir, fóru allir með
leigubílum frá leigubílastöðinni Steindóri.
Einnig fóru Bretarnir um bæinn og handtóku
alla Þjóðverja sem þeir fundu, þar á meðal ræð-
ismann Þýskalands, Werner Gerlach, og voru
fangarnir sendir út í beitiskipin sem sigldu á
brott skömmu síðar. Hernámsliðið hreiðraði um
sig í skólum í miðbænum og sló upp tjaldbúðum á
melunum þar sem Háskóli Íslands stendur nú.
Þannig leið fyrsti dagur hernámsins á Íslandi
nokkuð átakalaust en vera hermannanna átti eftir
að setja mark sitt á íslenskt samfélag næstu árin.
Litla eyjan
gríðarlega
mikilvæg
AÐFARANÓTT FÖSTUDAGSINS 10. MAÍ ÁRIÐ 1940 VAR SVEFN
MARGRA REYKVÍKINGA ROFINN VIÐ DRUNUR Í HÁLOFTUM.
BRETAR VORU AÐ HERNEMA LANDIÐ. ÞETTA VAR STÓR DAGUR
Í SÖGU ÍSLENDINGA SEM SUNNUDAGSBLAÐIÐ RIFJAR UPP.
Ingibjörg Rósa Björnsdóttir ingibjorgrosa@gmail.com
Við hús Hjálpræðishersins á horni Túngötu og Suðurgötu. Hermenn stilla upp vopni sínu og
æfa sig í að miða meðan Íslendingar fylgjast grannt með.
Hermaður á íslenskum hesti heilsar félaga sem
stendur vígalegur við moldarkofa.
Hópur fólks fyrir utan bústað þýska ræðis-
mannsins. Búið að taka skjaldarmerkið niður.
Íslenskt samfélag undir
herstjórn.
Hermenn marsera upp Suðurgötuna. Ungir drengir á hjólum fylgjast með gangi mála.
* Eflaust hefur far-ið um marga þvíþeir gátu allt eins átt
von á að þarna væru
Þjóðverjar mættir.
75 ár frá hernámsdeginum
52 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10.5. 2015