Fréttablaðið - 24.01.2015, Blaðsíða 34

Fréttablaðið - 24.01.2015, Blaðsíða 34
24. janúar 2015 LAUGARDAGUR| HELGIN | 34 Fullt nafn Þórunn Egilsdóttir Fædd 23. nóvember 1964 Hvaðan Fædd í Reykjavík, býr í Vopnafirði Maki Friðbjörn Haukur Guðmundsson Börn Kristjana Louise, Guðmundur, Hekla Karen Áhugamál Skíði, smalamennska, lestur Menntun Kennari Störf Sauðfjárbóndi, grunnskólakennari, skólastjórnandi, verkefnastjóri hjá símenntunarstöð á Vopnafirði. Í sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps og oddviti 2010-2013. Stjórnarmaður ótal félaga og ráða. Þórunn, hélstu að þingmannsstarf- ið væri eins og það er? „Já, að ein- hverju leyti. Ég fylgdist alltaf með þingfréttum í fjölmiðlunum. Starf- ið er fjölbreytt og skemmtilegt, maður kynnist mörgu, bæði fólki og stöðum og þarf að setja sig inn í ólík mál en það tekur tíma að læra á þau. Vinnudagurinn er oft lang- ur en nái maður að sinna því sem skiptir mann mestu máli í lífinu, heilsunni og fjölskyldunni, er hægt að takast á við krefjandi hluti.“ Hefur þú haldið margar þingræð- ur? „Ég er ekki sá þingmaður sem talar mest. Aðalstarfið fer fram í nefndunum og svo er ég formaður þingflokksins. Einnig er ég for- maður þingmannanefndar NATO og fer stundum til útlanda vegna þess. Það er áhugavert að kynn- ast veruleika fólks annars staðar í heiminum.“ Segðu mér aðeins frá högum þínum. „Ég bý á Hauksstöðum í Vopnafirði og er líklega sá þing- maður sem á erfiðast með að komast heim, en ég reyni að fara heim um helgar, flýg til Egilsstaða og keyri yfir fjöllin. Það eru 110 kílómetrar og á góðum dögum er það auðvelt en um leið og eitthvað verður að færð getur það orðið erfitt. Við hjónin eigum tvö uppkomin börn og eitt barnabarn. Svo vorum við svo heppin fyrir sex árum að ein stelpa bættist í hópinn, þá fjög- urra ára. Það versta við starfið mitt er að vera svona langt frá henni. Stóru börnin eru hér í Reykjavík í háskóla og mikill samgangur milli okkar og við hjónin keyptum íbúð í blokkinni sem ég ólst upp í, í næsta stigagangi við foreldra mína. Við systkinin erum bara tvö og ég flutti til Vopnafjarðar og hann til Los Angeles svo það var dálítið langt á milli okkar allra.“ Hitti draumaprins í dalnum Þórunn Egilsdóttir hefur setið á Alþingi frá árinu 2013 fyrir Framsókn. Hún býr í Vopnafirði og reynir að komast heim um helgar til eiginmanns og tíu ára dóttur. Stundum er við illviðri og ófærð að glíma. Eitt sinn lenti hún í miklum háska. 12.12.2013 Á þessum vinnustað hefur verið stofnaður hópur jákvæðra, óformlegur hópur sem mun koma saman til að ræða þau gildi sem þátttak- endur telja mikilvæg í mannlegum samskiptum. Jafnvel verða rifjaðar upp kurteisisvenjur sem geta gert lífið skemmtilegra og kannski rætt um leiðir sem geta hjálpað fólki að glata ekki gleðinni í amstri dagsins. ÞEKKTU ÞINGMANNINN Norðausturkjördæmi Gunnþóra Gunnarsdóttir gun@frettabladid.is FORMAÐUR ÞINGFLOKKS „Vinnudagurinn er oft langur en nái maður að sinna því sem skiptir mann mestu máli í lífinu, heilsunni og fjölskyldunni, er hægt að takast á við krefjandi hluti,“ segir Þórunn Egilsdóttir. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM HEIMA Á STÉTT Þórunn og Stássa eiga margar göngu r og smalaferðir að baki. SAUÐFJÁR- BÓNDINN Alltaf er gaman að fá mislit lömb í hjörðina. BÖRN, TENGDA- DÓTTIR OG BARNABARN Kristjana Louise, Hekla Karen, Guð- mundur, Guðrún Helga Ágústsdóttir og Anna Lísa. ÚR FJÖLSKYLDUALBÚMINU Ólstu upp í Reykjavík? „Já, en eftir stúdentspróf úr Versló fór ég til Vopnafjarðar og ætlaði að vera einn vetur sem leiðbein- andi við skólann. Það var 1984. Um haustið skall á kennaraverk- fall og þá fékk ég vinnu í slátur- húsinu. Einn daginn sá ég Frið- björn Hauk og það fyrsta sem ég hugsaði var: Þetta er maðurinn minn. Eftir veturinn langaði mig í sveit eitt sumar sem kaupakona og var bent á að tala við bóndann á Hauksstöðum. Það var Frið- björn Haukur. Hann réð mig og líklega er ég síðasta kaupakonan á landinu sem giftist bóndanum. Mér leið strax vel á Hauksstöð- um og festi rætur þar. Kom inn á gróið heimili þar sem tengdafor- eldrar mínir bjuggu, föðurbróðir mannsins míns og mágur.“ Er gott undir bú á Hauksstöðum? „Hauksstaðir er góð sauðfjárjörð. Bærinn er innst í Vesturárdal en var mjög afskekktur þar til haustið 2013 að hann komst í alfaraleið eftir að við fengum nýjan veg í byggðarlagið. En við höfum búið við mjög lélegt netsamband og fengum GSM-samband í fyrra.“ Er ekki bagalegt fyrir þingmann að hafa ekki netsamband? „Það er mjög slæmt og líka fyrir bændur eins og aðra. Í búskapnum þurfa menn að skila skýrslum á netinu. Þetta er ein af grunnstoðunum sem þurfa að vera í lagi um allt land. Nútíminn krefst þess.“ Hafa kjósendurnir mikið samband til að biðja um fyrirgreiðslu? „Mér finnst fólk ekki ágengt eða frekt. Það á að hafa aðgang að sínum þingmönnum. Þetta er baklandið okkar og ef við missum tengsl við það höfum við lítið að gera hér.“ Áttir þú von á að fara inn á þing þegar þú gafst kost á þér á listann? „Ekki í upphafi en þegar út í fram- boðið var komið lagði ég mig alla í það og uppskeran var góð.“ Hvernig fer starf þingmannsins saman við starf sauðfjárbónda? „Ekkert vel. Við erum svo langt fram á vor á þinginu. En ég komst í göngur í haust og það var óskap- lega gott, eitt það skemmtilegasta sem ég geri.“ Hefurðu lent í erfiðri lífsreynslu? „Ég hef verið afar lánsöm í lífinu en við hjónin lentum samt einu sinni í miklum háska á leið heim frá Akureyri. Það var mikið rok en auðir vegir. Þegar við komum á Burstafellsbrúnirnar þar sem vegurinn lá niður í Vopnafjörð, lyftist bíllinn upp að aftan hvað eftir annað, rétt við bjargbrúnina. Haukur var snöggur að keyra út af fjallsmegin, út í krapablá og þar hímdum við í þrjá klukku- tíma. Óttuðumst að bíllinn fyki og ákváðum að fara úr honum og reyna að skríða í skjól en það var ekki viðlit svo við stóðum í krapa- blánni, bundin saman. Vorum áður búin að ákveða að ef annað okkar fyki fram af skyldi hitt ekki gera neitt því það væru börn heima. Svo dúraði í og við náðum bílnum upp og keyrðum heim. En þarna upp- lifðum við hversu smá við erum gagnvart náttúruöflunum.“ ÞÓRUNN Í ÞINGSAL JÁKVÆÐNI Á VINNUSTAÐ OG ÓBREYTT VÍNSALA➜ Helstu baráttumál ● Byggðamál og jafnrétti ● Almannatryggingar ● Endurnýjun og uppbygging Landspítalans ● Gegn áfengi í matvöruverslanir ● Umferðaröryggis- mál 21.10.2014 Með óbreyttu fyrirkomulagi munu Íslend- ingar, sem finnst gott að drekka áfengi, gera það eins og þeirra nánustu eru ánægðir með og halda því áfram. Þeir munu áfram njóta góðs aðgengis ágætra vínbúða og þjónustu sem hefur batnað mikið með árunum. Það að hafna þessu frumvarpi er ekki að tala gegn neyslu áfengra drykkja eða með bindindi. 0 3 -1 2 -2 0 1 5 2 3 :5 5 F B 1 1 2 s _ P 0 7 9 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 7 0 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 7 8 4 -C D C C 1 7 8 4 -C C 9 0 1 7 8 4 -C B 5 4 1 7 8 4 -C A 1 8 2 8 0 X 4 0 0 1 B F B 1 1 2 s _ 2 3 _ 1 _ 2 0 1 5 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.