Fréttablaðið - 24.01.2015, Blaðsíða 102

Fréttablaðið - 24.01.2015, Blaðsíða 102
24. janúar 2015 LAUGARDAGUR| SPORT | 58 DOMINOS KARLA KEFLAVÍK - ÞÓR ÞORL. 114-97 SNÆFELL - SKALLAGRÍMUR 97-62 STAÐAN KR 14 13 1 1403-1156 26 Tindastóll 14 11 3 1315-1183 22 Stjarnan 14 8 6 1235-1209 16 Keflavík 14 8 6 1176-1178 16 Njarðvík 14 8 6 1185-1121 16 Snæfell 14 8 6 1244-1228 16 Grindavík 14 7 7 1252-1281 14 Þór Þ. 14 7 7 1306-1341 14 Haukar 14 7 7 1214-1200 14 Fjölnir 14 3 11 1163-1322 6 Skallagrímur 14 2 12 1098-1307 4 ÍR 14 2 12 1196-1261 4 Eiríkur Stefán Ásgeirsson eirikur@frettabladid.is HANDBOLTI Aron Pálmarsson spilar ekki með íslenska landsliðinu gegn Egyptalandi á HM í Katar í dag. Þetta staðfesti Örnólfur Valdimarsson, læknir íslenska liðsins, í gærmorgun. „Aron fékk höfuðhögg undir kjálkann [gegn Tékklandi] og líklega er ástæðan fyrir [heilahristingnum] að hann fékk höfuðhögg fyrir nokkrum vikum. Þá var hann orðinn veikur fyrir. Það er ekki víst en líklegt,“ sagði Örnólfur en Aron varð fyrir líkamsárás í miðbæ Reykjavíkur á milli jóla og nýárs. Örnólfur sagði engu að síður að það hefði ekki verið áhættusamt að láta Aron spila í Katar. Örnólfur sagði að líklegra væri en ekki að Aron spilaði ekki meira á heimsmeistaramótinu en það kæmi þó ekki í ljós strax. „Hvað heilahristing varðar verður maður að fara eftir einkennum. Hann verður að vera einkennalaus áður en hann byrjar að hreyfa sig á ný,“ sagði Örnólfur. „Ef hann verður svo í lagi við áreynslu má hann spila en ef hann verður áfram með einkenni verður hann að hvíla á ný.“ Aron hefur verið lykilmaður í íslenska liðinu á mótinu til þessa og ljóst að hans verður saknað þegar strákarnir leika gegn Egyptalandi klukkan 16.00 í dag. - esá Líkamsárásin á Aron Pálmarsson var mögulega örlagavaldur ÞUNGT HÖGG Aron Pálmarsson fékk að finna fyrir því. FRÉTTABLAÐIÐ/EVA BJÖRK HANDBOLTI Möguleikar Íslands í að komast áfram í 16-liða úrslit HM í handbolta liggja í tveimur þáttum. Annaðhvort að vinna Egyptaland í dag eða treysta á að strákarnir nái betri úrslitum í sínum leik en Tékkar gera gegn Alsír. Alsíringar virðast vera með langlakasta lið riðilsins í Doha og teljast því ólíklegir til afreka gegn Tékk- landi sem eru að spila upp á líf og dauða í dag. Strákarnir þurfa því allra helst að vinna lið Egyptaland sem hefur bæði spilað vel gegn sterkum liðum í mótinu til þessa og fær þar að auki gríðarlega góðan stuðning fjölmargra landa sinna í stúkunni. Viðbúið er að lætin í Al Sadd-höllinni verði mikil í kvöld. Ísland hafnar í þriðja sæti riðilsins með sigri á Egyptalandi og mætir þá að öllum líkindum annaðhvort Danmörku eða Póllandi í 16-liða úrslitum. Dönum dugir jafntefli í leik liðanna í kvöld til að tryggja sér annað sæti síns riðils. - esá Sigur á Egyptum eða treysta á Alsír SPORT ÚRSLIT A RIÐILL Brasilía - Síle 30 - 22 (12-13) Spánn - Slóvenía 30 - 26 (14-10) Katar - Hvíta-Rússland 26 - 22 (7-12) LOKASTAÐAN Spánn 5 5 0 0 162-127 10 Katar 5 4 0 1 137-122 8 Slóvenía 5 3 0 2 160-145 6 Brasilía 5 2 0 3 146-143 4 Hvíta-Rússl. 5 1 0 4 147-155 2 Síle 5 0 0 5 104-164 0 B RIÐILL Túnis - Íran 30 - 23 (12-12) Makedónía - Austurríki 36 - 31 (16-16) Króatía - Bosnía 28 - 21 (17-8) LOKASTAÐAN Króatía 5 5 0 0 158-124 10 Makedónía 5 4 0 1 153-138 8 Austurríki 5 2 1 2 147-140 5 Túnis 5 2 1 2 132-133 5 Bosnía 5 1 0 4 118-128 2 Íran 5 0 0 5 127-172 0 SEXTÁN LIÐA ÚRSLITIN Á SUN. Spánn - Túnis Króatía - Brasilía Austurríki - Katar Slóvenía - Makedónía LEIKIR DAGSINS C: Ísland - Egyptaland kl. 16:00 C: Frakkland - Svíþjóð kl. 18:00 C: Alsír - Tékkland kl. 18:00 D: Sádí-Arabía - Þýskal. kl. 16:00 C: Rússland - Argentína kl. 16:00 C: Danmörk - Pólland kl. 18:00 visir.is Meira um leiki gærkvöldsins HANDBOLTI Það er komið að ögur- stundu íslenska landsliðsins á HM í Katar. Eftir skelfilega frammistöðu og ellefu marka tap gegn Tékklandi í fyrradag eru strákarnir í þeirri stöðu að þurfa að vinna öflugt lið Egyptalands sem gæti allt eins verið að spila á heimavelli - slíkur er stuðningur þeirra fjölmörgu Egypta sem hér eru staddir í landinu. Til að bæta gráu ofan á svart fékkst í gær staðfest að Aron Pálmarsson muni ekki spila með Íslandi í dag og jafnvel ekki meira á mótinu. Örnólfur Valdi- marsson, læknir íslenska liðs- ins, staðfesti að Aron væri með einkenni heilahristings en hann fór af velli á 24. mínútu leiks- ins gegn Tékklandi eftir að hafa fengið högg undir kjálkann. Vont að vera án Arons „Aron er góður leikmaður og það er vont að vera án hans. En það þýðir ekki að velta sér upp úr leikmönnum sem ekki eru til staðar. Við þurfum að ein- beita okkur að þeim leikmönn- um sem munu spila í leiknum og að kalla fram góða frammistöðu frá þeim,“ sagði Aron ákveðinn í samtali við Fréttablaðið á hóteli íslenska liðsins í Doha í gær. „Við erum að vinna í því að koma ábyrgðinni á fleiri menn. Menn þurfa að átta sig á því að allir þurfa að taka á sig meiri ábyrgð og axla hana,“ bætir þjálfarinn við. Áhyggjur af sveiflunum Heilt yfir hefur vantað of mikið upp á frammistöðu Íslands í keppninni í Katar. Liðið virtist á réttri leið með góðri frammistöðu gegn Frakklandi á þriðjudag en svo kom hrunið gegn Tékkum. „Í dag snýst þetta um að menn líti í eigin barm og að allir geti unnið með sitt til að bæta liðið. Ef allir sinna sínu, hafa sitt á hreinu og mæta klárir í leikinn þá getum við sem lið staðið betur saman og notað sameiningarkraftinn til að spila vel á ný,“ segir Aron en viðurkennir að sveiflurnar séu of miklar í liðinu. „Auðvitað hefur maður áhyggj- ur af því hversu langt er á milli mjög góðrar frammistöðu annars vegar og mjög slakrar hins vegar. það er eitthvað sem þarf að finna lausnir á,“ segir Aron. „Við þurf- um að geta lagt allt þetta til hliðar. Það eina sem gildir er leikurinn á morgun [í dag] og að fá okkur til að rísa upp úr öskustónni.“ Gæði til að nýta dauðafærin Skotnýting íslenska liðsins hefur verið með eindæmum slök og fá lið nýta skot sín verr en íslenska liðið. Gegn Tékkum var hún aðeins 43 prósent og þeir Aron Pálmarsson, Arnór Atlason og Guðjón Valur Sigurðsson skoruðu samanlagt aðeins eitt mark úr átján skotum. „Það getur verið erfitt fyrir þjálfara að stýra því hvern- ig menn nýta skotin sín,“ segir Aron aðspurður um þennan þátt í íslenska liðinu. „Það geta marg- ar ástæður legið þar að baki – spennustig, sjálfstraust og hvernig menn eru undirbúnir fyrir það að spila gegn ákveðnum markvörðum svo fátt eitt sé nefnt,“ segir Aron. „Við getum reynt að stilla spennustigið fyrir leikmannahóp- inn en þegar menn eru komnir út í sín dauðafæri þarf hver og einn að hafa nægilega mikil gæði til að klára þau. Hver og einn þarf að vinna í því hjá sjálfum sér.“ Þurfa að svara fyrir sig Það er ekki annað sjá en að það hafi ríkt góð stemning í íslenska landsliðinu og ríki enn. Það sé því ekki vandamál en nú reyni á skap- gerð hvers og eins leikmanns að mati Arons. „Strákarnir þurfa að svara fyrir sig. Þeir þurfa að svara fyrir síð- asta leik og koma til baka. Það skiptir öllu máli. Við þurftum ekkert að endurskoða taktíkina okkar gegn Tékkum því fyrst og fremst snerist okkar vandi um hugarfarslegt ástand leikmanna. Nú er það stóra málið fyrir morg- undaginn.“ Rísa upp úr öskustónni Það er að duga eða drepast á HM. Yfi rgnæfandi líkur eru á að allt annað en sigur á Egyptum muni senda strákana í hinn skelfi lega Forsetabikar. „Hver og einn þurft i að líta í eigin barm,“ sagði landsliðsþjálfarinn. ENN EITT KLÚÐRIÐ Aron Kristjánsson, þjálfari Íslands, hefur horft upp á menn klikka á mörgum færum. FRÉTTABLAÐIÐ/EVA BJÖRK HANDBOLTI „Hver og einn þarf að taka til hjá sjálfum sér og mæta svo til leiks. Ég get ekki útskýrt þetta betur. Þetta snýst um karakter – að menn spili af lífi og sál og leggi hjartað að veði. Svo verðum við að sjá hverju það skilar okkur.“ Þetta segir Snorri Steinn Guð- jónsson um undirbúning íslenska liðsins fyrir leikinn mikilvæga gegn Egyptalandi á HM í Katar í dag. Snorri Steinn hefur eins og flestir aðrir átt misjafna daga á HM en afar ólíklegt er að nokkuð annað en sigur gegn Egyptum í dag dugi til að tryggja liðið áfram í 16-liða úrslit. Hann segir að liðið muni undir- búa sig eins og venjulega fyrir næsta andstæðing í keppninni en lítið annað sé hægt að gera nema að leyfa hverjum og einum að vinna í sínum málum sjálfur. „Það er erfitt að ætlast til þess að einhverjir fari að efla barátt- una í öðrum. Þannig horfir það að minnsta kosti við mér. Ef allir sinna sínu þá fylgir liðið í kjölfarið.“ Snorri Steinn segir enn fremur að það gefist ekki tími til að leita skýr- inga enda svo stutt á milli leikja. „Ég hef hugsað um orsakir þess hversu illa við spiluðum gegn Tékk- landi en engar skýringar fundið. Ég á því miður engin góð svör fyrir þig og er jafn hissa og allir aðrir. Ef það væri vika í næsta leik þá væri hægt að velta þessu fyrir sér fram og til baka en það er ekki tími til þess.“ Aron Pálmarsson verður ekki með í dag eftir höfuðhögg sem hann fékk gegn Tékklandi í fyrra- dag. „Auðvitað vill maður hafa hann með en svona er bara staðan. Maður verður því að ýta því til hlið- ar. Arnór [Atlason] og Beggi [Sigur- bergur Sveinsson] sjá bara um þetta og ég hef fulla trú á að þeir geri það vel,“ segir Snorri Steinn. - esá Hef fulla trú á Arnóri og Begga Snorri Steinn segir að enginn tími gefi st til að leita skýringa á gengi Íslands. AÐ SPILA AF LÍFI OG SÁL Snorri Steinn Guðjónsson, leikstjórnandi íslenska landsliðsins. FRÉTTABLAÐIÐ/EVA BJÖRK FA S TU S _H _0 2 .0 1 .1 5 Verið velkomin í verslun okkar í Síðumúla 16, 2.h. Veit á vandaða lausn Spurðu um sveskjusafann í næsta apóteki. 0 3 -1 2 -2 0 1 5 2 3 :5 5 F B 1 1 2 s _ P 1 0 7 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 1 0 2 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 7 8 3 -A A 7 C 1 7 8 3 -A 9 4 0 1 7 8 3 -A 8 0 4 1 7 8 3 -A 6 C 8 2 8 0 X 4 0 0 5 B F B 1 1 2 s _ 2 3 _ 1 _ 2 0 1 5 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.