Fréttablaðið - 24.01.2015, Blaðsíða 12
24. janúar 2015 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 12
7 ára ábyrgð á öllum
nýjum Kia bílum.
www.kia.com
Vetrarpakki að verðmæti 390.000 kr. fylgir öllum Kia Sportage fram til 15. febrúar,
vetrardekk, dráttarbeisli og skottmotta — fyrir utan allt hitt. Hiti í stýri, hiti í fram-
og aftursætum, leðurinnrétting, bakkmyndavél, 7” snertiskjár, íslenskt leiðsögukerfi,
7 ára ábyrgð og margt fleira. Komdu og kíktu í pakkann.
Veglegur vetrarpakki fylgir
Fylgdu okkur á facebook.
facebook.com/kiamotorsisland
ASKJA · Krókhálsi 11 · 110 Reykjavík · 590 2100 · askja.is
Viðurkenndur sölu- og þjónustuaðili KIA á Íslandi.
*M.v. 2.950.000 kr. útborgun og bílalán í 84 mánuði. 8,5 %
óverð tryggðir vextir. Árleg hlutfallstala kostnaðar 10,10 %
Verð 6.490.777 kr.
Eða 59.777 kr. á mánuði í 84 mánuði*
Kominn í vetrarbúning
Kia Sportage bíður þín í Öskju, Krókhálsi 11. Komdu og prófaðu, við tökum vel á móti þér.
Kia Sportage World Cup Edition 2,0
STJÓRNMÁL Stjórnmálamenn, emb-
ættismenn og starfsmenn Fjár-
málaeftirlitsins frömdu marg-
vísleg lögbrot á árinu 2009 við
endurreisn íslenska bankakerfis-
ins að mati Víglundar Þorsteinsson-
ar. Lánasöfn hafi farið inn í nýju
bankana með helmingsafslætti og
íslensk stjórnvöld hafi gengið hags-
muna erlendra kröfuhafa á kostnað
íslenskrar alþýðu.
Alvarlegustu ásakanir Víglund-
ar eru þær að við ríkisstjórnar-
skipti í febrúar 2009 hafi vinstri
stjórnin hafist handa við að breyta
stofnúrskurðum FME frá haustinu
2008 þegar nýir efnahagsreikning-
ar bankanna voru gerðir. Á endan-
um hafi fjármálaráðherrann Stein-
grímur J. Sigfússon haft milligöngu
um að hleypa skilanefndum gömlu
bankanna inn í nýju bankana.
Brynjari Níelssyni var falið af
stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd
að skoða kvörtunarefni Víglundar.
„Ég skoðaði hvernig menn gerðu
hlutina og mátu þessar eignir í
því skyni að reyna að finna hvort
það hefði verið gert í samræmi við
neyðarlögin,“ sagði Brynjar. „Það
kann að vera ástæða til að skoða
ákveðna hluti í þessu samhengi.“
Brynjar vildi ekki fara út í það
nánar við blaðamann hvað fælist í
skýrslu hans.
Steingrímur J. Sigfússon telur
þessar ásakanir fáheyrðar og frá-
leitar og eiga sér sem betur fer
enga stoð í raunveruleikanum. „Það
vill svo vel til að Alþingi heimilaði,
og staðfesti, þessa samninga milli
nýju og gömlu bankanna í desemb-
er 2009. Einnig var skilað ítarlegri
skýrslu í mars 2011 um þessa stóru
og mikilvægu aðgerð að byggja upp
nýtt bankakerfi. Við höfum greint
vel frá þessu opinberlega,“ segir
Steingrímur. „Málatilbúnaður Víg-
lundar hrynur til grunna strax á
fyrstu metrunum vegna þess mis-
skilnings að bráðabirgðaefnahagur
bankanna haustið 2008 var aðeins
hrátt mat og hrein ágiskun á þeim
tíma og átti aldrei að vera endan-
legt mat.“
Vigdís Hauksdóttir, þingmaður
Framsóknarflokksins, segir þau
gögn sem birst hafa landsmönn-
um sýna að málflutningur Fram-
sóknarflokksins síðustu sex ár
hafi verið réttur. Skuldaleiðrétt-
ing Framsóknarflokksins sé bein
afleiðing þess að svigrúm hafi
orðið til við endurreisn bankakerf-
isins.
„Nú eru þessi skjöl uppi á borð-
um og þetta er afgerandi. Þetta
sýnir þann grafalvarlega gjörning
fyrri ríkisstjórnar að hagsmunir
erlendra kröfuhafa hafi verið fram-
ar en landsmanna. Þetta er áfellis-
dómur yfir fyrri ríkisstjórn. Þetta
er það stórt mál og grafalvarlegt
að það má ekki kyrrt liggja,“ segir
Vigdís.
Árni Páll Árnason, formaður
Samfylkingarinnar, telur sjálfsagt
að kanna allar slíkar ábendingar og
ávirðingar sem birtast í bréfi Víg-
lundar Þorsteinssonar. „Til þess
höfum við réttarkerfi og það er
fullkomlega eðlilegt ef menn telja
eitthvað misjafnt hafa gerst að fá
þá þar til bæra aðila til að leggja
mat á það. Það er hins vegar ekki
alþingismanna að fara með rann-
sóknarvald í því efni. Það hlýtur
að vera þannig að lögregla og eftir
atvikum ríkissaksóknari gangist
fyrir rannsókn ef menn grunar
eitthvað misjafnt.
Sakar stjórnvöld um alvarleg brot
Fyrrverandi eigandi BM Vallár telur að fjölmörg lög hafi verið brotin við endurreisn íslensks bankakerfis. Málið verður tekið fyrir í stjórn-
skipunar- og eftirlitsnefnd. Steingrímur J. Sigfússon, fyrrverandi fjármálaráðherra, segir ásakanir Víglundar ekki eiga sér raunverulega stoð.
ÞUNGAR ÁSAKANIR Endurreisn bankanna eftir hrun verður tekin fyrir af stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis. Víglundur
Þorsteinsson sakar ríkisstjórnina um að ganga erinda erlendra kröfuhafa. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
ÁRNI PÁLL ÁRNASON STEINGRÍMUR J.
SIGFÚSSON
VIGDÍS HAUKSDÓTTIR
Sveinn
Arnarsson
sveinn@frettabladid.is
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:5
5
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
8
3
-8
C
D
C
1
7
8
3
-8
B
A
0
1
7
8
3
-8
A
6
4
1
7
8
3
-8
9
2
8
2
8
0
X
4
0
0
5
A
F
B
1
1
2
s
_
2
3
_
1
_
2
0
1
5
C
M
Y
K