Fréttablaðið - 24.01.2015, Blaðsíða 51
| ATVINNA |
Fiskistofa er þjónustu- og eftirlitsstofnun með sex starfsstöðvar um land allt.
Stofnunin annast stjórnsýslu á sviði sjávarútvegs og lax- og silungsveiði ásamt því að safna og
vinna úr upplýsingum um þá málaflokka. Nánari upplýsingar um Fiskistofu má finna á www.fiskistofa.is.
Gildi Fiskistofu eru traust, framsækni og virðing
Sérfræðingur í starfsstöð Fiskistofu í Vestmannaeyjum
Laus er til umsóknar staða sérfræðings á veiðieftirlitssviði í starfsstöð Fiskistofu í Vestmannaeyjum.
Staðan heyrir undir sviðsstjóra veiðieftirlitssviðs. Um fullt starf er að ræða og er æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Áslaug Eir Hólmgeirsdóttir, sviðsstjóri veiðieftirlitssviðs í síma 5697977.
Umsóknir, sem hafa að geyma ítarlegar upplýsingar um menntun, fyrri störf, meðmælendur og annað sem máli kann að skipta, sendist á netfangið ingath@fiskistofa.is eða með bréfi til Fiskistofu, Dalshrauni 1,
220 Hafnarfirði merktar: „Sérfræðingur Vestmannaeyjum“.
Helstu verkefni:
• Gerð og viðhald ferla á veiðieftirlitssviði. Ábyrgð á að verkferlar og vinnulýsingar séu skráðar,
endurskoðaðar og uppfærðar reglulega
• Bréfaskriftir er varða verkefni sviðsins
• Greining og úrvinnsla gagna
• Rafrænt eftirlit
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi
• Þekking á gæðastjórnun
• Mjög góð tölvuþekking
• Mjög góð íslenskukunnátta og færni til að tjá sig í ræðu og riti
• Glöggskyggni á tölur og hæfni til greiningar og úrvinnslu gagna
• Nákvæm, sjálfstæð og öguð vinnubrögð
• Frumkvæði og drifkraftur
Þekking eða reynsla á sviði sjávarútvegs er kostur.
Veiðieftirlitsmenn í starfsstöðvar Fiskistofu á Akureyri og Ísafirði
Fiskistofa óskar að ráða veiðieftirlitsmenn í starfsstöðvar sínar á Akureyri og Ísafirði. Um eina stöðu er að ræða á hvorri starfsstöð. Staðan á Akureyri heyrir undir deildarstjóra
veiðieftirlitssviðs – austur en staðan á Ísafirði heyrir undir deildarstjóra veiðieftirlitssviðs – vestur. Um fullt starf er að ræða og er æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Nánari upplýsingar um starfið veita Áslaug Eir Hólmgeirsdóttir, sviðsstjóri veiðieftirlitssviðs í síma 5697977,
Þórhallur Ottesen deildarstjóri veiðieftirlits – vestur í síma 5697932 og Sævar Guðmundsson deildarstjóri veiðieftirlits – austur í síma 4782010.
Umsóknir sem hafa að geyma ítarlegar upplýsingar um menntun, fyrri störf, meðmælendur og annað sem máli kann að skipta sendist á netfangið ingath@fiskistofa.is eða með bréfi til Fiskistofu,
Dalshrauni 1, 220 Hafnarfirði merktar annars vegar „Veiðieftirlitsmaður Akureyri“ og hins vegar „Veiðieftirlitsmaður Ísafirði“.
Helstu verkefni:
• Eftirlit á sjó.
Eftirlit á sjó felst m.a. í lengdarmælingum á fiski og tillögugerð um lokanir veiðisvæða,
eftirliti með aflasamsetningu, veiðarfærum, hlutfalli smáfisks í afla og brottkasti afla.
Þá fylgjast veiðieftirlitsmenn einnig með því að afladagbækur séu rétt útfylltar og séu
í samræmi við veiðar og afla um borð.
• Eftirlit í landi.
Eftirlitsstörf í landi fela m.a. í sér eftirlit með löndun, vigtun og skráningu afla, eftirlit með veiðarfærum
og aflasamsetningu, lengdarmælingar á afla og eftirlit með færslu og skilum afladagbóka.
Starfið felur einnig í sér skrifstofustörf s.s. skýrslugerð þegar vettvangsstörfum lýkur, að fylgjast með
löndunum og skráningum í aflaskráningarkerfi Fiskistofu og öflun gagna vegna brotamála sem upp koma.
Hæfniskröfur:
• Leitað er að kraftmiklum einstaklingi sem hefur reynslu af störfum í sjávarútvegi.
• Góð íslensku- og tölvukunnátta er áskilin.
• Sjálfstæði, fagmennska og nákvæmni í vinnubrögðum.
• Góð færni í mannlegum samskiptum.
Skipstjórnarréttindi eru kostur.
Deildarstjóri upplýsingadeildar í starfsstöð Fiskistofu á Akureyri
Laus er til umsóknar staða deildarstjóra upplýsingadeildar Fiskistofu í starfsstöð Fiskistofu á Akureyri. Upplýsingadeild hefur umsjón með rekstri fiskveiðistjórnunarkerfisins
þ. á m. úthlutun aflaheimilda og úrvinnslu gagna úr gagnastöfnum stofnunarinnar. Deildarstjóri upplýsingadeildar heyrir undir sviðsstjóra þjónustu- og upplýsingasviðs.
Um fullt starf er að ræða og æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Nánari upplýsingar um störfin veita Þorsteinn Hilmarsson, sviðsstjóri þjónustu- og upplýsingasviðs og Auðunn Ágústsson, deildarstjóri í síma 5697900.
Umsóknir sem hafa að geyma ítarlegar upplýsingar um menntun, fyrri störf, meðmælendur og annað sem máli kann að skipta sendist á netfangið ingath@fiskistofa.is eða með bréfi til Fiskistofu, Dalshrauni 1,
220 Hafnarfirði merktar: „Deildarstjóri upplýsingadeildar“.
Helstu verkefni:
• Ábyrgð á úthlutun aflamarks og annarri ráðstöfun aflaheimilda
• Ábyrgð á söfnun, úrvinnslu og miðlun upplýsinga
• Vinnsla og greining gagna
• Dagleg stjórnun upplýsingadeildar
Hæfnis- og menntunarkröfur:
• Háskólapróf sem nýtist í starfi. Framhaldsmenntun er kostur.
• Framúrskarandi þekking og reynsla í greiningu og úrvinnslu á talnaefni
• Þekking á gagnagrunnum, kunnátta í SQL-forritun er kostur
• Frumkvæði, sjálfstæð og öguð vinnubrögð
• Þjónustulund og lipurð í mannlegum samskiptum
• Gott vald á íslensku og ensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti
• Stjórnunarreynsla er æskileg
Mikill kostur er að umsækjendur hafi þekkingu á málefnum sjávarútvegs
Umsóknarfrestur er til og með 9. febrúar 2015.
Laun taka mið af kjarasamningi ríkisins við viðeigandi stéttarfélag.
Samkvæmt jafnréttisstefnu Fiskistofu eru konur jafnt sem karlar hvattar til að sækja um.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Athygli er vakin á því að umsóknir munu gilda í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, með vísan
til 3. tl. 2. mgr. 2. gr. regla nr. 464/1996 um auglýsingar á lausum störfum, með síðari breytingum, sem settar
eru samkvæmt heimild í 2. mgr. 7. gr. laga nr. 70/1996 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.
LAUGARDAGUR 24. janúar 2015 11
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:5
5
F
B
1
1
2
s
_
P
0
6
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
6
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
8
6
-8
F
1
C
1
7
8
6
-8
D
E
0
1
7
8
6
-8
C
A
4
1
7
8
6
-8
B
6
8
2
8
0
X
4
0
0
6
B
F
B
1
1
2
s
_
2
3
_
1
_
2
0
1
5
C
M
Y
K