Fréttablaðið - 18.07.2015, Blaðsíða 72
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR · SMÁAUGLÝSINGASÍMINN OG SKIPTIBORÐ: 512 5000 DREIFING: dreifing@postdreifing.is
EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 800 1177
VÍSIR
RITSTJÓRN 512 5313, Fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is PRENTUN Ísafoldarprentsmiðja
Round One. Fight!“ Þegar ég var að alast upp var sjoppa á móti
Melaskóla. Þar var hægt að kaupa
nammi, ís og annað slæmt. Já, þetta
þótti slæmt. Að hanga í sjoppu var
það ófágaðasta sem barn á miðstigi
gat gert. Í sjoppunni var ófágaður
spilakassi, þar sem eldri krakk-
arnir spiluðu Street Fighter II. Ég
hvorki þorði né tímdi í kassann en
ég horfði á eldri krakkana gera
það. Ég sá þá vinna leikinn með
japanska karatekarlinum Ryu og
rússneska grímukónginum Zangief,
sem þannig séð gat ekki rassgat.
ROUND Two. Fight!“ Þegar ég
var fullorðinn lokaði sjoppan og
fljótlega var húsnæðinu breytt í
íbúð. Áreiðanlega frekar óhentuga
og skítmixaða íbúð eins og stundum
vill verða með þessar gömlubúðar-
íbúðir. Þegar labbað er fram hjá
blasir við minning um starfsemi
sem eitt sinn gerði gagn en er nú
horfin. Sumir tala niður hótel, túr-
istabúðir og skyndibitakeðjur. Ég
vil tala niður íbúðir. Íbúðir eru fita
borgarumhverfis. Það er auðveld-
ara að bæta við sig fitu en breyta
henni í annað. Enginn fer að safna
undirskriftum ef breyta á sjoppu
í íbúð. En ef fara á í hina áttina þá
fá margir áhyggjur. Hvers konar
starfsemi er þetta? Eykst umferð-
in? Viljum við það?
ROUND Three. Fight!“ Þar sem
ég rölti í bænum rakst ég á spilasal
með retróleikjum. Þetta er dæmi
um hvernig atvinnustarfsemi í
fúngerandi borg getur verið alls
konar. Þetta er dæmi um hvernig
ferðamennskan elur af sér eitthvað
gott. Ég er líklegri til að eyða pen-
ing í gömlum spilakassa þegar ég
er á ferðalagi. Ég er líklegri til að
borða á veitingastað þegar ég er í
fríi. Ég set 200 krónur í kassann og
vel japanska karatekarlinn Ryu. Nú
á ég pening og er sama þótt ég sé
lélegur. Og það er enginn eldri að
horfa á hvort sem er.
HÓTELIN og túrisminn eru að
gera frábæra hluti fyrir Reykjavík.
Þess vegna hef ég ekkert á móti
nýju hóteli í Lækjargötunni, nýjum
kleinuhringjastað á Laugaveginum
eða því að einhver ætlar að breyta
skemmtistað sem nýtist hluta
nætur fá kvöld í eitthvað annað. Ég
hef ekkert á móti því að fólk nýti
hús í það sem þau nýtast best í. Ef
þetta feilar þá kemur bara eitthvað
annað í staðinn seinna. Hótel eru
ekki að eilífu.
Fleiri glerhótel
Opið allan sólarhringinn
í Engihjalla,
Vesturbergi og
Arnarbakka
ÚRVAL AF
VÖRUM FRÁ
IITTALA
BAKÞANKAR
Pawels
Bartoszek
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:0
0
F
B
0
7
2
s
_
P
0
7
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
5
3
-1
4
E
C
1
7
5
3
-1
3
B
0
1
7
5
3
-1
2
7
4
1
7
5
3
-1
1
3
8
2
8
0
X
4
0
0
1
A
F
B
0
7
2
s
_
1
7
_
7
_
2
0
1
5
C
M
Y
K