Fréttablaðið - 18.07.2015, Blaðsíða 52
18. júlí 2015 LAUGARDAGUR| HELGIN KRAKKAR | 24
Bragi Halldórsson
157
svar:A
Getur þú hjálpað
Konráði? Veist þú
hvað þetta blóm
heitir? Er þetta:
A. Hvítsmári
B. Smjörblóm
D. Vallhumall
Á grasflöt sem þau félagarnir gengu fram á voru víða hvítar
breiður af einhverjum litlum blómum. „Forvitnilegt væri að
vita hvaða blóm þetta er,“ sagði Konráð. „Til hvers?“ spurði
Kata. „Þarftu alltaf að vita hvað allt heitir, má þetta ekki
bara vera þarna?“ Kata var bersýnilega ekki sínu besta skapi
í dag. „Ég er kannski bara svona fróðleiksfús,“ sagði Konráð.
Hvað er skemmtilegast við bækur? Allt. Sögu-
þráðurinn, myndirnar, spennan og það er enda-
laust til af þeim.
Hvaða bók lastu síðast og um hvað var hún? Ég
las síðast Leyndarmál Lindu eftir Rachel Renée
Russell. Hún er um stelpu sem er nýbyrjuð í nýjum
skóla og skrifar dagbókarfærslu í hverri viku.
Manstu eftir fyrstu bókinni sem var í uppáhaldi
hjá þér? Já, ég var áskrifandi að Disney-bókunum
og fyrsta bókin sem ég fékk var Litla hafmeyjan.
Hún var í uppáhaldi hjá mér.
Hvers lags bækur þykir þér skemmtilegastar?
Spennubækur.
Í hvaða skóla gengur þú? Langholtsskóla.
Ferðu oft á bókasafnið? Já, ég fer mjög oft á
bókasafnið.
Hver eru þín helstu áhugamál? Leika, dansa,
lesa og syngja.
Hvaða skátafélagi tilheyrir þú,
Tara Sóley?
Ég er rekkaskáti í skátafélaginu
Kópum og sveitin mín heitir
Rs. Group.
Hvað varstu gömul þegar þú
byrjaðir í skátunum?
Ég var þrettán ára. Mig langaði
aðallega að prófa eitthvað nýtt,
vinkonur mínar voru búnar að vera
í skátunum í nokkur ár og þær
hvöttu mig mikið til að koma.
Hvað finnst þér skemmtilegast
við skátastarfið?
Útilegurnar eru alltaf mjög
skemmtilegar og svo líka fólkið
og félagsskapurinn, við erum
alltaf að læra eitthvað nýtt og
spennandi hvert af öðru.
Hversu mörg farið þið frá
Íslandi á alheimsmótið í
Japan?
Við erum um 80 íslenskir skátar
að fara út. En það verða um 30
þúsund skátar frá 150 löndum á
mótinu.
Hvernig undirbúið þið ykkur?
Það eru búnir að vera nokkrir
fundir þar sem við fengum að
vita meira um mótið og lærðum
alls kyns þjóðdansa og fleira
til að kynna úti. Svo var farið í
æfingaútilegu á Úlfljótsvatni.
Við munum alveg pottþétt
syngja fullt af íslenskum lögum
og líka læra einhver ný, erlend
skátalög.
Býstu við að þurfa að leysa
erfiðar þrautir?
Ég veit það ekki en að borða
með prjónum er nú erfið þraut
í sjálfu sér og svo líka að venjast
hitanum. En við erum öll mjög
spennt fyrir þessu ævintýri.
Munum eignast fullt af nýjum
vinum frá ýmsum heimshornum
og kynnast menningu þeirra.
Svo munum við koma heim
breytt, bætt og tönuð!
Eignast nýja vini frá
ýmsum heimshornum
Hún Tara Sóley Mobee hefur verið í skátunum í fi mm ár og er alltaf að læra eitt-
hvað nýtt og spennandi. Nú er hún á leiðinni til Japans á alheimsmót skáta.
Þátttakendur standa aftan við
línu sem er í ákveðinni fjarlægð
frá húsvegg. Einn grúfir sig upp
við vegginn og segir upphátt:
„Einn-tveir-þrír-fjórir-fimm-
Dimmalimm“. Á meðan hann
segir þetta mega hinir ganga
fram í áttina að honum.
Um leið og hann er búinn að
segja þuluna má hann líta yfir
hópinn og ef einhver er þá enn á
hreyfingu verður sá hinn sami að
fara til baka á byrjunarreit.
Hver sem er kominn yfir má
klukka þann sem grúfir á meðan
hann fer með þuluna. Þá eiga allir
að hlaupa til baka en sá sem „er
hann“ reynir að ná ein hverjum og
þá á sá að grúfa næst.
Einn, tveir, þrír, fj órir, fi mm
Útileikur
Að venju efna Borgarbókasafnið, Bókmenntaborgin og Forlagið til sumarlesturs meðal barna. Fyrir hverja lesna bók skrá lesendur
nafn sitt og titil bókarinnar á þar til gerða miða, búa til úr þeim skutlur og skutla þeim í net sem eru í öllum söfnum Borgarbóka-
safns. Vikulega er einn þátttakenda útnefndur lestrarhestur vikunnar og sá eða sú hlýtur bók að launum frá Forlaginu.
Lestrarhestur vikunnar Saga María Sæþórsdóttir 10 ára
SKÁTI „Við munum alveg pottþétt syngja fullt af íslenskum lögum og líka læra einhver ný, erlend skátalög,“ segir Tara Sóley.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANDRI MARINÓ
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:0
0
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
5
3
-8
6
7
C
1
7
5
3
-8
5
4
0
1
7
5
3
-8
4
0
4
1
7
5
3
-8
2
C
8
2
8
0
X
4
0
0
4
A
F
B
0
7
2
s
_
1
7
_
7
_
2
0
1
5
C
M
Y
K