Fréttablaðið - 18.07.2015, Blaðsíða 62
18. júlí 2015 LAUGARDAGUR| LÍFIÐ | 34
„Það er mikill fengur fyrir íslenskt
tónlistarlíf að fá þennan snilling
til landsins,“ segir trommuleik-
arinn Halldór Lárusson. Hann er
einn af þeim sem standa á bak við
heimsókn þýska trommuleikarans
Benny Greb, sem heldur master-
class-námskeið í dag. Benny Greb
er einn þekktasti trommuleikari
heims um þessar mundir og hefur
ferðast um heim allan þar sem
hann hefur ýmist komið fram ein-
samall eða með hljómsveit, stund-
að kennslu, haldið námskeið og
fyrir lestra og fleira.
Á masterclassinum ætlar Greb
að miðla sinni þekkingu og reynslu
til annarra tónlistarmanna. „Þetta
verður svona bland í poka hjá
honum. Hann mun sýna listir sínar,
hann er með músík sem hann spil-
ar með, spjallar og útskýrir og
ætlar bara að hafa gaman,“ segir
Halldór spurður út í viðburðinn.
Fyrir utan það að vera einn
besti trommuleikari í heimi, segir
Halldór Þjóðverjann vera einkar
almennilegan og skemmtilegan.
„Hann er rosalega fínn náungi,
er öllu vanur og hefur lent í ýmsu.
Hann hefur spilað á ónýt trommu-
sett með ónýtum skinnum á sínum
ferðalögum og er ekki kröfu harður
og vill bara að trommusettið sé í
lagi,“ segir Halldór, spurður út í
kröfur kappans.
Stíll Benny Greb einkennist af
ástríðu og er ákaflega músíkalsk-
ur. Hann hefur veitt ótal trommu-
leikurum um heim allan innblást-
ur og hvatningu og má með sanni
segja að trommarasamfélagið á
Íslandi sé upprifið yfir komu hans.
Þess má geta að Benny hefur
komið fram á flestum virtustu
trommuhátíðum heims, t.d Mod-
ern Drummer festival og Montreal
Drum festival.
Árið 2009 gaf Benny út kennslu-
DVD í trommuleik, „The Language
of Drumming“ sem er enn þann
dag í dag einn söluhæsti DVD-
kennsludiskur í trommuleik í heim-
inum. Snemma árs 2015 gaf Benny
út nýjan disk, „The Art and Sci-
ence of Groove“, sem hefur þegar
verið valinn besti kennsludiskur í
trommuleik af hinu virta tímariti
Drums & Percussion.
Þrír íslenskir trommuleikar-
ar hita upp fyrir Benny Greb á
laugar daginn en það eru þeir Bene-
dikt Brynleifsson, Einar Scheving
og Halldór Lárusson sem munu
leika sem tríó. Masterclassinn
hefst klukkan 15.00 og fer fram í
Hátíðarsal FÍH í Rauðagerði 27.
Miðar fást í Tónastöðinni og við
innganginn. - glp
Hann er rosalega
fínn náungi, er öllu vanur
og hefur lent í ýmsu.
Hann hefur spilað á ónýt
trommusett með ónýtum
skinnum á sínum ferða-
lögum og er ekki kröfu-
harður og vill bara að
trommusettið sé í lagi.
FRÁ LEIKSTJÓRA
BRIDESMAIDS OG THE HEAT
SÝND KL. 2
SÝND KL. 2
SÝND
Í 2D
SÝND Í 2D OG 3D
ÍSL
TAL
ÍSL
TAL
Góða skemmtun í bíó
KRINGLUNNI
AKUREYRI
KEFLAVÍK
EGILSHÖLLÁLFABAKKA
bio. siSAM
CINEMABLEND
SEGÐU MANNINUM ÞÍNUM AÐ ÞAÐ SÉ STELPUKVÖLD Í KVÖLD!
ÍSLANDSVINURINN CHANNING TATUM ER SJÓÐHEITUR Í ÞESSARI
SKEMMTILEGU SUMARMYND
METRO NY
NEW YORK DAILY NEWS
SPARBÍÓ
IN TOUCH
VARIETY
CHICAGO SUN TIMES
FRÁ ÞEIM SÖMU OG FÆRÐU OKKUR AVENGERS
OG GUARDIANS OF THE GALAXY
EMPIRE
TOTAL FILMVARIETY
ANT-MAN 3D 5, 8, 10:30(P)
SKÓSVEINARNIR 2D 2, 4, 6
SKÓSVEINARNIR 3D 2, 4
MINIONS - ENS TAL 2D 6, 8, 10
TED 2 10:35
JURASSIC WORLD 2D 8
INSIDE OUT 2D 2
TILBOÐ KL 2
TILBOÐ KL 2
POWERSÝNING
KL. 10:30
SÝND í
2D OG 3D
SÝND MEÐ
ÍSL OG ENS TALI
Er einn vinsælasti
trommari heims
Þýski trommuleikarinn Benny Greb ætlar að miðla visku sinni hér á landi í dag.
TROMMARAR Hér eru trommuleikararnir Einar Scheving, Benedikt Brynleifsson, Benny Greb og Halldór Lárusson, en þeir koma
allir fram í dag. MYND/JÓHANN HJÖRLEIFSSON
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:0
0
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
5
5
-9
6
C
C
1
7
5
5
-9
5
9
0
1
7
5
5
-9
4
5
4
1
7
5
5
-9
3
1
8
2
8
0
X
4
0
0
9
B
F
B
0
7
2
s
_
1
7
_
7
_
2
0
1
5
C
M
Y
K