Fréttablaðið - 18.07.2015, Blaðsíða 64

Fréttablaðið - 18.07.2015, Blaðsíða 64
18. júlí 2015 LAUGARDAGUR| SPORT | 36 Lið umferða 1-11 í Pepsi-deild karla Árni Snær Ólafsson Kristinn Freyr Sigurðsson Patrick Pedersen Jacob Schoop Haukur Páll Sigurðsson Atli Guðnason 11 Aron Sigurðarson Skúli Jón Friðgeirsson Bergsveinn Ólafsson Thomas G. Christensen Kristinn Jónsson 18 9 7 2 12 10 5 20 523 VARAMENN: Gunnleifur Gunnleifsson (Breiðabliki), Bjarni Ólafur Eiríks- son (Val), Daniel Ivanovski (Fjölni), Oliver Sigurjónsson (Breiðabliki), Höskuldur Gunnlaugsson (Breiðabliki) og Sigurður Egill Lárusson (Val). Lið fyrri umferðar Pepsi-deildar karla, skipað leikmönnum sem fengu lægstu einkunnir Fréttablaðsins. Lág- mark er að leikmaður fékk einkunn í sjö leikjum af ellefu. Markvörður: Richard Arends (Keflavík). Varnarmenn: Guðjón Árni Antoníus- son (Keflavík), Kiko Insa (Keflavík), Darren Lough (ÍA). Miðjumenn: Marko Andelkovic (ÍA), Gunnar Þorsteinsson (ÍBV), Ingimundur Níels Óskarsson (Fylki), Frans Elvarsson (Keflavík), Ragnar Leósson (Fjölni). Sóknarmenn: Bjarni Gunnarsson (ÍBV), Ellert Hreinsson (Breiðabliki). Lánlausa liðiðNokkrir sem sköruðu fram úr BESTI ÍSLENSKI NÝLIÐINN HILMAR Á. HILMARSSON Sóknarleikur Leiknis- liðsins stendur og fellur með Hilmari sem hefur komið með einhverjum hætti að 11 af 12 mörkum liðsins. BESTI ELLISMELLURINN GUNNLEIFUR GUNNLEIFSSON Fengið á sig fæst mörk allra aðalmark- varða deildarinnar en hann fagnaði fertugsafmæli sínu í vikunni. BESTI UNGI LEIKMAÐURINN HÖSKULDUR GUNNLAUGSSON Hefur átt mikinn þátt í velgengni og framförum Breiðabliks í sumar og sýnt hversu öflugur hann er. BESTI ERLENDI LEIKMAÐURINN THOMAS CHRISTENSEN Er að flestra mati maður- inn sem vantaði í Valsliðið og fullkomnaði hann púslið hjá þjálfur- unum Ólafi og Sigur- birni þegar hann mætti í 2. umferð. FÓTBOLTI Fjórir Valsmenn komast í ellefu manna úrvalslið Frétta- blaðsins fyrir fyrri umferð Pepsi- deildarinnar en í gær sögðum við frá því að miðjumaður liðsins, Kristinn Freyr Sigurðsson, hefði verið útnefndur besti leikmaður fyrri umferðarinnar hjá Frétta- blaðinu. Kristinn Freyr er langt frá því að vera eini Valsmaðurinn í úrvalsliðinu því það má segja að öll hryggsúla úrvalsliðsins sé úr Val, allt frá danska miðverðinum Thomas Guldborg Christensen til danska framherjans Patrick Pedersen en á milli þeirra eru miðjumennirnir Kristinn Freyr og vinnuþjarkurinn Haukur Páll Sigurðsson. Valsmenn eru ekki eina spútnik- lið sumarsins því framan af móti voru Fjölnismenn á hraðri leið í toppbaráttuna. Bergsveinn Ólafs- son og Aron Sigurðarson komast báðir í liðið þrátt fyrir að Grafar- vogspiltum hafi fatast flugið á síð- ustu vikum. Blikar hafa spilað frábæran bolta í sumar en þeir eiga aðeins einn leikmann í liðinu. Fjórir af sjö varamönnum úrvalsliðsins spila aftur á móti með Breiðablikslið- inu. Blikar eiga líka tvo bestu ungu leikmennina (Höskuldur Gunn- laugsson og Oliver Sigurjónsson) og besta ellismellinn í hinum fer- tuga markverði liðsins, Gunnleifi Gunnleifssyni. Hryggsúlan úr Val Fréttablaðið hefur valið úrvalslið fyrri umferðar Pepsi-deildar karla út frá einkunnagjöf Fréttablaðsins í sumar en Valsmenn eiga langfl esta í liðinu. EFSTIR EFTIR FYRSTU UMFERÐ Valsmenn náðu í flest stig allra liða frá 2. til 11. umferð. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Topplið FH á bara einn leik- mann í liðinu, sem er Atli Guðna- son, og KR, sem er í öðru sæti, á „bara“ tvo leikmenn. Það er von á því að leikmenn hjá þessum svart- hvítu risum láti meira til sín taka í seinni umferðinni. Lukkan hefur ekki leikið við alla leikmenn deildarinnar og hér á síð- unni má einnig sjá þá ellefu leik- menn sem fá þann vafasama heið- ur að vera hluti af lánlausa liðinu eða liði leikmanna Pepsi-deild- arinnar sem hafa fengið lægstu meðal einkunn hjá blaðamönnum Vísis og Fréttablaðsins til þessa í sumar. ooj @frettabladid.is FÓTBOLTI Guðjón Baldvinsson gekk aftur í raðir Stjörnunnar í gær þegar hann skrifaði undir þriggja ára samning við Íslandsmeistarana í Pepsi-deild karla. Guðjón er uppalinn Stjörnumaður og spilaði með liðinu áður en hann fór til KR og þaðan í atvinnumennsku. Guðjón kemur til Stjörnunnar frá Nordsjælland. „Þetta er búið að vera skrítið frá fyrstu mínútu,“ sagði Guðjón um dvölina í Danmörku við Vísi í gær. Þessi öflugi framherji, sem skoraði átta mörk í 20 leikjum fyrir KR 2011, fékk leikheimild í gær og má því vera með Stjörnunni þegar liðið mætir ÍA í fyrsta leik tólftu umferð Pepsi-deildar karla á Samsung-vellinum klukkan 16.00 í dag. „Hvort það sé sniðugt að fljúga heim seint í kvöld [gær- kvöldi] og spila leik á morgun án þess að æfa með liðinu veit ég ekki,“ sagði Guðjón Baldvinsson. - tom Guðjón má spila á móti ÍA í dag FÓTBOLTI Tvö efstu lið Pepsi-deildar karla, FH og KR, mætast í stórleik 12. umferðar á morgun. Fyrir leikinn er FH með eins stigs forskot á KR en með sigri fer Vesturbæjarliðið á toppinn í fyrsta sinn í sumar. Liðin hafa þegar mæst tvisvar í sumar. FH vann leik liðanna í 1. um- ferð Pepsi-deildarinnar með þremur mörkum gegn einu. KR-ingar komust yfir á 50. mínútu en FH skoraði þrjú mörk á síðustu 17 mínútum leiksins og tryggði sér sigurinn. KR-ingar, sem hafa unnið þrjá síðustu deildarleiki sína án þess að fá á sig mark, hefndu fyrir tapið í 1. umferðinni með því að slá FH út í átta liða úrslitum Borgunarbikarsins fyrir tveimur vikum. Gary Martin skoraði sigurmark KR í leiknum en athyglisvert verður að sjá hvort hann eða Hólmbert Aron Friðjónsson byrji í fremstu víglínu á morgun. Ekki er víst að Þorsteinn Már Ragnarsson verði búinn að ná sér af meiðslunum sem hann varð fyrir í Evrópuleiknum gegn Rosenborg. Hjá FH er sömuleiðis óvissa með Steven Lennon en hann missti af leiknum gegn Inter Bakú á fimmtu- daginn vegna meiðsla. - iþs Uppgjör toppliðanna í Kaplakrika ÖRLAGAVALDUR Gary Martin skoraði sigurmarkið í bikarleik KR og FH. FRÉTTABLAÐIÐ/ANDRI MARINÓ SUNNUD. KL. 19:00 365.is Sími 1817 FH – KR FH-ingar fá KR-inga í heimsókn á sunnudag í Pepsi-deildinni. Hafa KR-ingar tak á FH-ingum eða tekst Hafnfirðingunum að hefna fyrir tapið í Borgunarbikarnum um daginn? SPORT 0 3 -1 2 -2 0 1 5 2 3 :0 0 F B 0 7 2 s _ P 0 6 4 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 6 1 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 7 5 5 -6 A 5 C 1 7 5 5 -6 9 2 0 1 7 5 5 -6 7 E 4 1 7 5 5 -6 6 A 8 2 8 0 X 4 0 0 9 A F B 0 7 2 s _ 1 7 _ 7 _ 2 0 1 5 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.