Fréttablaðið - 10.07.2015, Page 4
10. júlí 2015 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 4
LEIÐRÉTT
Myndir víxluðust í liðnum Svipmyndin
í Markaðnum í gær. Þar sem átti að
birtast mynd af Bolla Thoroddsen var
mynd af Daða Sverrissyni. Þar sem átti
að birtast mynd af Daða Sverrissyni var
mynd af Bolla Thoroddsen. Hlutaðeig-
andi eru beðnir velvirðingar á þessu.
Hrósarðu appi yfir forritinu?
Ég kl-appa fyrir því.
Daði Hreinsson er framkvæmdastjóri
leigubílsstöðvarinnar Taxi Service. Stöðin
mun á næstu dögum gefa út snjallforrit,
eða app, til að auðvelda pöntun leigubíla og
svipar forritinu til þjónustu nýsköpunarfyrir-
tækisins Uber.
SPURNING DAGSINS
ht.is
UMBOÐSMENN UM LAND ALLT
AKRANES • AKUREYRI • HÚSAVÍK • EGILSSTAÐIR • SELFOSS • REYKJANESBÆR • REYKJAVÍK
Engin venjuleg upplifun
Við kynnum
Philips Ambilight
9000 sjónvörpin
Ultra HD
með Android
EFNAHAGSMÁL Á sama tíma og
Seðlabankinn hækkar vexti og
boðar frekari hækkanir til þess
að draga úr verðbólgu eykur hann
peningamagn í umferð með inn-
gripum á gjaldeyrismarkaði, segir
í nýrri umfjöllun efnahagssviðs
Samtaka atvinnulífsins.
Efnahagssviðið segir að inngrip
Seðlabankans séu óstýfð, sem þýði
að bankinn beiti ekki mótvægis-
aðgerðum til þess að koma í veg
fyrir að peningamagn aukist í
umferð. Már Guðmundsson seðla-
bankastjóri segir aftur á móti að
Samtök atvinnulífsins vanmeti
hversu stýfð inngrip Seðlabank-
ans séu. Seðlabankinn myndi mót-
vægi gegn gjaldeyriskaupunum
til að koma í veg fyrir áhrif á pen-
ingamagn eða vexti.
„Við stýfum þetta með tvennum
hætti. Annars vegar eru það við-
skipti Eignasafns Seðlabankans,
sem frá áramótum hafa dregið 24
milljarða af lausu fé út af mark-
aðnum. Og hins vegar með því
að fá þetta inn á bundna reikn-
inga. Samtals frá áramótum hafa
verið dregnir 98 milljarðar inn á
þá reikninga,“ segir Már. Hann
bætir því við að það geti komið
upp dagamunur á því að stýfingin
eigi sér stað.
Már ítrekar að þess sjáist ekki
merki að aukning peningamagns
í umferð sé meiri en eðlilegt er
í ljósi hagvaxtar og verðbólgu.
Vöxturinn hafi þvert á móti verið
veiklulegur. „Við vorum að gefa
út okkar Peningamál í maí og þá
kom fram að ársvöxtur leiðrétts
peningamagns, þar sem er leið-
rétt fyrir innstæðum fallinna
fjármálastofnana, hefur dreg-
ist saman undanfarið ár og verið
undir nafnvexti landsframleiðslu
síðustu ársfjórðunga,“ segir Már.
Hann bætir við að ef inngripin
hefðu verið óstýfð þá hefði það
sést mjög greinilega í lækkun
vaxta á peningamarkaði.
Már segir það rétt að það hefði
meiri áhrif til lækkunar á verð-
bólgu til skamms tíma ef geng-
inu yrði leyft að hækka. „En það
er ekki víst að það yrði langvar-
andi vegna þess að við vitum ekki
hversu langvarandi þetta innflæði
verður,“ segir Már.
Verkefni bankans undan farið
hafi einkum snúist um tvennt.
Annars vegar að stuðla að því að
verðbólgan fari ekki of hátt í fram-
haldi af kjarasamningum. Hins
vegar að búa í haginn fyrir losun
hafta. Vextir hafi verið hækkað-
ir til að verjast verðbólgunni og
gjaldeyrisforði, sem er ekki fjár-
magnaður með erlendum lánum,
stækkaður til að búa í haginn fyrir
losun hafta.
Efnahagssvið SA segir að þegar
innflæði gjaldeyris sé eins mikið
og raun ber vitni gæti bankinn
losað frekar fyrir kaup innlendra
aðila, til dæmis lífeyrissjóða, á
eignum erlendis. Már segir að
þetta sé allt í undirbúningi. Eftir
því sem staðan sé betri, þá sé hægt
að hleypa þeim út með meira.
„Slíkt krefst í núverandi tilfelli
undanþágu en er í vinnslu,“ segir
Már. Hins vegar megi ekki ganga
of langt í þessu. Það sé ákveðin
áhætta í því fólgin að hleypa lang-
tímafjárfestingu út á móti skamm-
tímainnflæði. jonhakon@frettabladid.is
24 milljarða eignir ESÍ seldar
til að vinna gegn verðbólgu
Efnahagssvið SA segir Seðlabanka Íslands vinna gegn markmiðum um verðstöðugleika með inngripum á gjald-
eyrismarkaði. Seðlabankastjóri segir bankann beita mótvægisaðgerðum sem dragi úr peningamagni í umferð.
Við
stýfum
þetta með
tvennum
hætti.
Már Guðmundsson
seðlabankastjóri.
ÓSTÝFÐ INNGRIP? Már Guðmundsson seðlabankastjóri segir efnahagssvið Samtaka atvinnulífsins vanmeta mótvægisaðgerðir
Seðlabankans. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
SAMFÉLAG Eitt af þeim atriðum
sem eru til athugunar í endur-
skoðun laga um fullnustu refsinga
eru heimildir þeirra er afplána
refsingu í fangelsum til aðgangs
að netinu.
Innanríkisráðuneytið vinnur nú
að heildarendurskoðun laganna,
en samkvæmt gildandi lögum er
föngum bannað að hafa nettengd-
ar tölvur.
Fréttablaðið greindi frá því á
dögunum að fangelsismálastjóri,
Páll Winkel, og yfirmaður í fang-
elsinu að Litla-Hrauni, Margrét
Frímannsdóttir, vilji bæði að föng-
um sé heimilt að hafa nettengdar
tölvur.
Þá eru þau sammála um að
skoða eigi hvort það væri ekki eðli-
legur hluti af afplánun að fangar
geti haft samband við fjölskyldu
og vini á netinu. Þannig gæti
dregið úr neikvæðum afleiðingum
frelsissviptingar.
Þá var greint frá því að að
undanförnu hefur það aukist að
svokölluðum netpungum, sem
gera fólki kleift að tengjast net-
inu hvar sem er, sé smyglað inn
í fangelsið.
Mikil vinna fer í að fylgjast
með því hvort fangar hafi netpung
undir höndum og komist þannig á
netið í klefum sínum. - ngy
Ráðuneytið vinnur nú að heildarendurskoðun laga um fullnustu refsinga:
Skoða hvort fangar fái netaðgang
NEYTENDAMÁL Bjarni Benedikts-
son fjármálaráðherra hefur boðað
afnám tolla af tæplega tvö þús-
und vörutegundum. Markmiðið er
að lækka vöruverð og bæta sam-
keppnishæfni seljenda á innlend-
um markaði.
Ekki stendur til að lækka tolla
á matvöru í þessum tillögum fjár-
málaráðherra. Ólafur Þ. Stephen-
sen, framkvæmdastjóri Félags
atvinnurekenda, undrast að mat-
vara skuli vera undanskilin í
þessum tillögum. „Við fögnum að
sjálfsögðu afnámi
tolla en skiljum
ekki af hverju
matvara sé þar
undanskilin. Það
gilda engin önnur
lögmál um kaup
og sölu á mat-
vælum en öðrum
vörutegundum,“
segir Ólafur.
„Tollar hafa hamlandi áhrif á
viðskipti og draga úr alþjóðavið-
skiptum í heild sinni. Þegar tollur
er lagður á innflutta vöru hækkar
verðið sem innlendir neytendur
þurfa að greiða fyrir vöru,“ segir
í tilkynningu frá fjármálaráðu-
neytinu.
Bjarni tjáði sig um málið á
Facebook-síðu sinni í gær þar sem
hann sagði verslun með föt og skó
eiga sér stað erlendis. „Almenn
vörugjöld hafa verið aflögð. Til-
tekt í tollum er næst á dagskrá.
Þetta eru afar mikilvæg framfara-
skref fyrir neytendur, verslun og
viðskipti,“ skrifaði Bjarni. - sa
Fjármálaráðherra boðar afnám 1.933 vörutolla í tveimur skrefum:
Undrast að matur sé ekki með
LITLA-HRAUN Ráðuneytið skoðar hvort fangar fái að fara á netið. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL
ÓLAFUR Þ.
STEPHENSEN
FÉLAGSMÁL Dalbær, heimili
aldraðra á Dalvík, hefur fengið
nokkrar góðar gjafir á þessu ári
að því er greint var frá á síðasta
stjórnarfundi heimilisins.
Kvenfélagið Tilraun færði Dalbæ
eina milljón króna í tilefni af 100
ára afmæli félagsins. Saga Árna-
dóttir gaf Dalbæ hárþurrku á armi
sem sett var upp í hársnyrtistofu
heimilisins. Þá gaf fyrirtækið Pró-
mens heimilinu veglegt gasgrill.
Það var vígt með sameiginlegu úti-
grilli íbúa og starfsmanna fyrir um
tveimur vikum. - gar
Góðar gjafir til Dalbæjar:
Fengu milljón
og hárþurrku
BANDARÍKIN Auk 15 sumarfrísdaga
og helgidaga á launum fá starfs-
menn bandaríska fyrirtækisins
FullContact 7.500 Bandaríkjadala
greiðslu að uppfylltum skilyrðum.
Þeir verða að verja fénu í ferða-
lag, mega ekki skoða vinnutölvu-
póstinn, senda smáskilaboð eða
hringja vegna vinnunnar. Öll vinna
er bönnuð í fríinu. Framkvæmda-
stjórinn, Bart Lang, er sannfærð-
ur um að þetta gagnist fyrirtæk-
inu, að því er kemur fram í frétt
Business Insider. - ibs
Ferðafé gegn skilyrðum:
Greiðir ferðalag
starfsmanna
FERÐAÞJÓNUSTA Þingvallanefnd
hefur ákveðið að hefja innheimtu
bílastæðagjalds á þremur bíla-
stæðum á Þingvöllum. Þetta kemur
fram í fréttatilkynningu frá þjóð-
garðsverði. Þjónustugjaldi þessu er
ætlað að standa undir kostnaði við
rekstur bílastæðanna. Gjaldið fyrir
hvern einkabíl verður 500 krónur
en 3.000 krónur fyrir rútur.
Gjaldið veitir heimild til að
leggja bifreið í allt að sólarhring. - sa
Gjaldskrá samþykkt:
Notkun bíla-
stæða gjaldskyld
ÞINGVELLIR Þrjú þúsund krónur kostar
að leggja rútu. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:0
0
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
5
4
-3
8
3
C
1
7
5
4
-3
7
0
0
1
7
5
4
-3
5
C
4
1
7
5
4
-3
4
8
8
2
8
0
X
4
0
0
3
B
F
B
0
5
6
s
_
9
_
7
_
2
0
1
5
C
M
Y
K