Fréttablaðið - 10.07.2015, Page 6
10. júlí 2015 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 6
1. Hvað voru mörg af 123 frum-
vörpum ríkisstjórnarinnar samþykkt á
nýafstöðnu þingi?
2. Hver voru heildarútgjöld gesta á
Iceland Airwaves í fyrra?
3. Hver er staðartónskáld sumarsins í
Skálholti?
SVÖR:
1. 90. 2. 1,6 milljarðar króna. 3. Stefán
Arason.
VEISTU SVARIÐ?
VELFERÐARMÁL Kosta mun ríkið
sjö til níu milljarða króna á ári
að draga úr tekjutengingum
almannatrygginga verði farið að
tillögum nefndar um endurskoðun
almannatryggingakerfisins.
Stefnt er að því að nefndin skili
af sér tillögum í næsta mánuði.
Nefndin leggur til að grunnlíf-
eyrir, tekjutrygging og fram-
færsluuppbót verði sameinuð í
eitt kerfi.
„Einföldun kerfisins mun fylgja
nokkur kjarabót fyrir öryrkja
og aldraða,“ segir Þorsteinn
Sæmundsson, þingmaður Fram-
sóknarflokksins og formaður
nefndarinnar.
Samkvæmt tillögunum verða
tekjur vegna almannatrygginga
ekki skertar umfram 45 prósent
en nú er skerðing bóta allt að 100
prósent. „Að meðaltali eru aðrar
tekjur að skerða rétt hjá almanna-
tryggingum um 56 til 58 prósent,“
segir Gylfi Arnbjörnsson, forseti
Alþýðusambands Íslands og einn
nefndarmanna.
Þorsteinn segir að tillögurnar
muni gera öryrkjum og elli líf-
eyris þegum auðveldara að starfa.
„Ellilífeyrisþegar verði þá virk-
ir lengur á vinnumarkaði og þeir
sem hafa skerta starfsgetu sæki í
að vinna,“ segir hann.
„Það þarf samræmt átak mjög
margra ef þetta á að geta orðið að
veruleika,“ segir Þorsteinn. Til
að mynda þurfi ríki, sveitarfélög
og almennur vinnumarkaður að
bjóða þessum þjóðfélagshópum
upp á hlutastörf.
Einnig er stefnt að því að
nefndin leggi fram tillögur um
að örorkumatskerfið verði lagt
niður en í stað þess tekið upp kerfi
starfsgetumats. Þá fái þeir sem
metnir eru með 50 til 75 prósenta
örorku hálfar örorkubætur í stað
mun lægri örorkustyrks nú.
Leggja á til að sá hluti tillagn-
anna sem fjallar um skerðingu
almannatrygginga og starfs-
getu mat komi til framkvæmda á
fjórum árum.
Nefndin leggur einnig til að
lífeyrisaldur verði hækkaður
en jafnframt gerður sveigjan-
legri. Þannig muni lífeyrisaldur-
inn hækka úr 67 ára í 70 ára á 24
árum. Fyrstu 12 árin hækki líf-
eyrisaldurinn um tvo mánuði á ári
en eftir það um einn mánuð á ári.
Þá verði hægt að flýta eða
seinka töku lífeyris þannig að
hægt verði að fara á eftirlaun á
aldursbilinu 65 til 75 ára.
Ekki er ljóst hvaða áhrif það
muni hafa á ríkissjóð að taka upp
starfsgetumat og hækka lífeyris-
tökualdur. Gylfi segir að sparn-
aður gæti hlotist af því að fleiri
öryrkjar gætu farið undir 75 pró-
senta örorku.
„Það væru kannski fleiri sem
myndu sætta sig við hlutamatið
og myndu þá vinna meira á móti,“
segir Gylfi.
ingvar@frettabladid.is
Kostar allt að níu milljarða
að draga úr skerðingum
Kosta mun ríkissjóð allt að níu milljarða króna á ári að draga úr skerðingum almannatrygginga verði tillögur
nefndar um endurskoðun kerfisins að veruleika. Nefndin leggur til að skerðingar verði að hámarki 45 prósent.
Einnig er lagt til að fleiri fái örorkubætur en nú. Þá verði lífeyrisaldur hækkaður og hann gerður sveigjanlegri.
GJÖRBREYTT KERFI Breytingarnar á almannatryggingakerfinu sem nefndin leggur
til eru einhverjar þær viðamestu sem gerðar hafa verið verði þær að lögum.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Ein-
földun
kerfisins mun
fylgja nokkur
kjarabót fyrir
öryrkja og
aldraða.
Þorsteinn Sæmundsson,
þingmaður Framsóknarflokksins.
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
Kletthálsi 7, Reykjavík
Fuglavík 18, Reykjanesbæ
Mótaplötur og bitar
Austurrísk gæði!
Leitið tilboða!
DÓMSMÁL Fyrrverandi kærasti
og barnsfaðir konu hefur verið
úrskurðaður í nálgunarbann
gegn henni. Hæstiréttur staðfesti
úrskurðinn á þriðjudag.
Fram kemur í dómnum að mað-
urinn hafði ruðst inn á heimili
konunnar, brotið þar keramik-
disk og valdið því að sprunga kom
í vegg. Þá hafi hann farið út en
sparkað upp hurðinni að nýju.
Bannið gildir í þrjá mánuði.
Maðurinn má ekki koma nær en
50 metra frá heimili hennar. - snæ
Nálgunarbann staðfest:
Pabbi brjálaður
að sögn barna
BANDARÍKIN Eftir þrettán tíma
rökræður ákvað þing Suður-Kar-
ólínu að taka suðurríkjafánann
niður af minnisv arða í Kólumbíu.
Suðurríkjafáninn hefur lengi
verið notaður af rasistum í
Bandaríkjunum sem vilja veg
hins hvíta kynstofns meiri en
annarra.
Ræður þingmanna voru til-
finningaríkar og jafnvel féllu tár.
Atkvæði voru greidd um að taka
fánann niður og voru 94 sam-
þykkir en tuttugu á móti. - snæ
Dómstóll hefur úrskurðað:
Suðurríkjafáni
tekinn niður
VIÐ HÚN Fáninn sem nú hefur verið
fjarlægður úr höfuðborginni.
NORDICPHOTOS/AFP
DÓMSMÁL Fjarskiptafyrirtækið
TSC ehf. hefur höfðað skaðabóta-
mál gegn Símanum hf. vegna brota
á samkeppnislögum.
Forsaga málsins er að árið 2009
sektaði Samkeppniseftirlitið Sím-
ann um 150 milljónir króna fyrir
að beita ólögmætum viðskipta-
hindrunum eftir að TSC, sem eink-
um starfar á Snæfellsnesi, kvart-
aði til stofnunarinnar.
Samkeppniseftirlitið taldi sann-
að að Síminn hefði hindrað TSC í
að taka þátt í samkeppni á Snæ-
fellsnesi. Brotin fólust m.a. í að
Síminn hindraði aðgang TSC að
flutningskerfi Símans vegna dreif-
ingar á sjónvarpsefni Skjás eins.
Síminn áfrýjaði málinu til áfrýj-
unarnefndar samkeppnismála
sem lækkaði sektina í 50 milljón-
ir króna vegna bágrar fjárhags-
stöðu Símans. Málið endaði fyrir
Hæstarétti Íslands sem staðfesti
brot Símans. - ih
Síminn var sektaður um 50 milljónir króna vegna brota á samkeppnislögum:
TSC krefur Símann um bætur
SÍMINN TSC vill að Síminn greiði fyrir-
tækinu bætur. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
KÍNA Þeir 205 Kínverjar sem í
mars síðastliðnum áttu millj-
arð Bandaríkjadala eða meira
hafa tapað sem nemur 26 þúsund
milljörðum króna síðasta mán-
uðinn, eða 195 milljörðum Banda-
ríkjadala. Tapið má rekja til hruns
fjármálamarkaða í Kína.
Samkvæmt útreikningum For-
bes áttu þessir ríkustu menn Kína
samtals um 75.331 milljarð króna
fyrir hrunið. Árið áður áttu þeir
26.666 milljörðum minna, en ljóst
er að hagnaður síðasta árs hefur
þurrkast upp við hrunið.
Fasteignajöfurinn Wang Jianlin,
ríkasti maður Kína, hefur tapað
um þúsund milljörðum. Eigandi
vefverslunarinnar Alibaba, Jack
Ma, hefur hins vegar tapað um 500
milljörðum.
Einungis fimm af þeim 205 Kín-
verjum sem eiga milljarð Banda-
ríkjadala eða meira hafa ekki
tapað peningum í hruninu. Sá eini
sem hefur hagnast síðasta mán-
uðinn er Ma Jianrong, sem hefur
auðgast á prjónuðum fötum.
Kínverski hlutabréfamarkaður-
inn hefur fallið mikið frá því í júní.
Markaðir hafa á þeim tíma fallið um
nærri þriðjung. Fall markaðanna
nemur um þrjú þúsund milljörðum
Bandaríkjadala sem samsvarar 402
þúsund milljörðum króna.
Til samanburðar nema títt
ræddar heildarskuldir Grikkja um
47.139 milljörðum króna. - þea
Frjálst fall fjármálamarkaða í Kína hefur víðtæk áhrif á allra ríkustu fjárfesta:
Hinir ríkustu tapa milljörðum
TAP Jack Ma, eigandi Alibaba, hefur miklu tapað í kínverska hruninu. NORDICPHOTOS/AFP
➜ Samkvæmt útreikn-
ingum Forbes áttu þessir
ríkustu menn Kína samtals
um 75.331 milljarð króna
fyrir hrunið.
HJÁLPARSTARF Tveir íslenskir
hjúkrunarfræðingar, þær Lilja
Óskarsdóttir og Ágústa Hjördís
Kristinsdóttir, eru nú staddar í
norðurhluta Nepals við hjálpar-
störf. Þær eru þar á vegum Rauða
krossins og sinna hjúkrun í tjald-
sjúkrahúsi á svæðinu Chautara.
Lilja hefur áður starfað fyrir
Rauða krossinn í Suður-Súdan en
Ágústa er í fyrsta sinn á vegum
hans. Hún vann áður á Landspítal-
anum. - snæ
Tvær íslenskar konur hjálpa:
Rauði krossinn
sendir til Nepal
prósent er
hámarksskerð-
ingarhlutfall almannatrygg-
inga samkvæmt tillögum
nefndarinnar.
45
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:0
0
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
5
5
-0
2
A
C
1
7
5
5
-0
1
7
0
1
7
5
5
-0
0
3
4
1
7
5
4
-F
E
F
8
2
8
0
X
4
0
0
5
B
F
B
0
5
6
s
_
9
_
7
_
2
0
1
5
C
M
Y
K