Fréttablaðið


Fréttablaðið - 10.07.2015, Qupperneq 50

Fréttablaðið - 10.07.2015, Qupperneq 50
10. júlí 2015 FÖSTUDAGUR| SPORT | 34 DRAUMARIÐILLINN MARTRAÐARIÐILLINN FÓTBOLTI Íslenska karlalandsliðið í fótbolta tók stórt stökk upp heimslista FIFA sem birtur var í gærmorgun eins og búið var að reikna út. Strákarnir okkar eru nú, samkvæmt FIFA- listanum, 23. besta knattspyrnuþjóð heims og sú 16. besta í Evrópu. Þessi listi er mikilvægari en aðrir því hann segir til um styrkleikaröðun fyrir undan- keppni HM 2018 sem dregið verður til 25. júlí í St. Pétursborg. Við Íslendingar munum hversu sárt það var að enda í fimmta styrkleikaflokki fyrir undan- keppni EM 2016, eftir að liðið stóð sig svo vel í undankeppninni fyrir HM í Brasilíu. Þrátt fyrir að vera í næstneðsta styrkleika- flokki hafa strákarnir okkar farið á kostum og unnið fimm leiki af sex. Ísland er nú þegar búið að hafa betur gegn Tyrklandi, Tékk- landi og Hollandi. Sigurinn á Tékklandi fleytti íslenska liðinu upp í 23. sæti og í annan styrk- leikaflokk. Til gamans ákvað Fréttablaðið að stilla upp tveimur mögulegum riðlum sem strákarnir okkar gætu lent í. Annar er draumariðilinn þar sem allt fer á besta veg og kúlurnar verða okkur hliðhollar 25. júlí. Hinn er martraða- riðillinn þar sem allt fer á versta veg. Blaðamenn rákust strax á smá lúxusvanda- mál; það er frekar erfitt að lenda í algjörum dauðariðli þegar þú ert í öðrum styrkleika- flokki. Það er lúxusinn sem strákarnir og þjálfarar liðsins hafa unnið sér inn. Við erum vön því að vera í neðstu flokk- unum og mæta þjóðum sem við eigum vana- lega ekki möguleika í. Að vera í öðrum styrk- leikaflokki og þurrka þar með út þjóðir eins og Ítalíu, Tékkland, Sviss, Frakkland og Dani (sem við höfum aldrei unnið!) er afskaplega þægilegt. Auðvitað er þó hægt að fá virkilega erfið- an riðil þegar litið er bæði til gæða þjóðanna sem eru í fyrsta, þriðja og fjórða styrkleika- flokki og svo má ekki gleyma ferðalögunum. Fréttablaðið reyndi að taka mið af gæðum, ferðalögum, stöðu viðkomandi þjóða og því sem er að gerast hjá þeim til frambúðar. En svo er þetta líka bara tilfinningin. Enda er þetta allt til gamans gert. tomas@365.is Draumur og martröð fyrir Rússland Íslenska karlalandsliðið í fótbolta er í 23. sæti á nýjum heimslista FIFA og er því í öðrum styrkleikafl okki fyrir dráttinn til undankeppni HM 2018 í Rússlandi. Strákarnir geta orðið mjög heppnir með riðil og aukið líkur sínar á að fara í fyrsta sinn á HM en einnig geta þeir lent í frekar erfi ðum riðli. Fréttablaðið stillir upp draumariðlinum og martraðariðlinum til gamans, en dregið verður 25. júlí. 1. flokkur WALES Þýskaland, Belgía, Holland, Portúgal, Rúmenía, England, Spánn og Króatía. FAGNAÐ Sigurinn á Tékklandi kom Íslandi í lykilstöðu fyrir undankeppni HM 2018. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY 1. flokkur ÞÝSKALAND Wales, Belgía, Holland, Portúgal, Rúmenía, England, Spánn og Króatía. Þótt Gareth Bale sé einn allra besti fótboltamaður heimi og er nánast einn síns liðs búinn að skjóta Wales á EM og upp í fyrsta styrkleikaflokk er Wales bara einn maður. Hann fór vissulega illa með okkur í vináttuleik á síðasta ári en við treystum Lars og Heimi til að loka á hann. Hinar þjóðirnar eru mun þekktari stærðir sem stórlið með mun fleiri góða leikmenn. 2. flokkur ÍSLAND Slóvakía, Austurríki, Ítalía, Sviss, Tékkland, Frakkland, Danmörk og Bosnía. 3. flokkur N-ÍRLAND Úkraína, Skotland, Pólland, Ungverjaland, Svíþjóð, Albanía, Serbía og Grikkland. Það hentar okkur vel að spila á móti breskum liðum. Norður-Írar eru að standa sig vel í undankeppni EM eins og fleiri bresk lið, en eru klárlega lið sem við treystum okkur til að vinna tvisvar. Serbar og Grikkir eru fyrir neðan þá í styrkleikaflokknum en við viljum sem fæst austantjaldslið og þó að Grikkir séu í sögulegri lægð viljum við ekki sjá þá. 4. flokkur FÆREYJAR Tyrkland, Slóvenía, Ísrael, Írland, Noregur, Búlgaría, Svartfjallaland og Eistland. Eitt tap í sögunni gegn Færeyjum. Þarf að segja meira? Ferðalagið gæti ekki verið þægilegra og þó að þeir hafi unnið Grikki tvisvar og haldið þjóðhátíð í bæði skiptin er íslenska liðið svo miklu betra. Norðmenn komu til greina því það er svo gaman að minna þá á hversu mikið betri en þeir við erum í dag. 5. flokkur Moldóva Kýpur, Lettland, Armenía, Finnland, H-Rússland, Makedónía, Aserbaídsjan, og Litháen. Slakasta liðið í fimmta styrkleika- flokki. Við vitum lítið um Moldóvu- menn en þjóð sem hefur aðeins unnið 41 af 168 landsleikjum í sögu þjóðar- innar og skráir 1-0 sigur á Möltu sem minnisstæð úrslit er lið sem við viljum mæta. Það er líka spennandi að koma á nýja staði. 6. flokkur SAN MARÍNÓ Kasakstan, Lúxemborg, Liechtenstein, Georgía, Malta og Andorra. Það er kominn tími til að við fáum að spila við San Marínó. Englendingar eru með þeim nánast í hverri undankeppni og væla alltaf jafnmikið yfir því. Þeir segja San Marínó ekki eiga að skrá sig til leiks. Andorra er neðst á heimslist- anum en okkur langar til að spila við San Marínó. Klikkuðustu fótboltahausarnir benda eflaust á að Þjóðverjar hafa ekki verið að spila jafnvel eftir HM og þeir gerðu í Brasilíu. Þetta eru engu að síður heims- meistararnir. Það skiptir líka litlu máli hvaða lið þú færð úr fyrsta styrkleika- flokki ef þú ert ekki heppinn og lendir á Wales eða Rúmeníu. 2. flokkur ÍSLAND Slóvakía, Austurríki, Ítalía, Sviss, Tékkland, Frakkland, Danmörk og Bosnía. 3. flokkur PÓLLAND Úkraína, Skotland, N-Írland, Ungverjaland, Svíþjóð, Albanía, Serbía og Grikkland. Valið stóð á milli Úkraínu og Póllands. Það væri ekki gott að dragast með hvorugu liðinu í riðil. Ferðalagið til Úkraínu er lengra en Pólverjarnir eru með nokkra hágæða leikmenn eins og Robert Lewandowski sem erfitt er að ráða við. Bæði lið mjög góð en við vilj- um síður mæta Pólverjum. 4. flokkur TYRKLAND Færeyjar, Slóvenía, Ísrael, Írland, Noregur, Búlgaría, Svartfjallaland og Eistland. Við skulum ekki blekkja okkur þótt við pökkuðum Tyrkjum saman í fyrsta leik und- ankeppni EM. Þeir eru efsta liðið í þess- um styrkleikaflokki og eiga eftir að ná sér aftur á strik. Þjálfari liðsins er mjög sér- stakur og vildi í byrjun undankeppninnar ekki nota suma af sínum bestu mönnum því þeir fæddust ekki í Tyrklandi. Tyrkland er mjög gott lið sem fínt væri að komast hjá því að mæta. Ferðalagið væri líka langt. 5. flokkur ARMENÍA Kýpur, Lettland, Moldóva, Finnland, H-Rússland, Makedónía, Aserbaídsjan, og Litháen. Kýpur og Lettland eru fyrir ofan Armena á heimslistanum í þessum flokki en það eru þekktari stærðir. Við myndum hafa meiri áhyggjur ef við myndum dragast með Armenum. Þar er fótboltinn í mikilli sókn, ferðalagið er langt og svo eru afbragðs fótbolta- menn inn á milli eins og Dortmund- framherjinn Henrik Mkhtarijan. 6. flokkur GEORGÍA Kasakstan, Lúxemborg, Liechtenstein, San Marínó, Malta og Andorra. Georgíumenn hafa verið í miklu rugli undanfarin misseri og eru í kjallaran- um með liðum eins og Kasakstan, Lúx- emborg og Andorra. Georgía á nokkra ágæta fótboltamenn og er austantjalds- þjóð sem við viljum helst sleppa því að mæta. Fyrir utan Moldóvu er draumariðilinn mjög hentugur upp á ferðalög að gera. Tvær ferðir til Bretlandseyja og ein með „Fokker Friendship“ til Færeyja. Moldóva er land sem við þekkjum lítið en lið sem við treystum okkur klárlega til að vinna alla daga vikunar. Að fá Wales, sem hefur verið upp og niður undanfarin ár, úr fyrsta styrkleikaflokki væri ekkert annað en draumur. Það er algjör draumur að vera í öðrum styrkleikaflokki því bara það að vera einum neðar myndi búa til alls konar vandamál þar sem aðeins eitt lið fer upp úr riðlinum og lið númer tvö í umspil. Riðlarnir hafa litið verr út en þetta sem er það sem strákarnir hafa unnið sér inn, en engu að síður væri þessi riðill ekki spennandi. Ferðalögin löng og liðin virki- lega sterk. FÓTBOLTI Þróttur tekur á móti Fylki í eina leik dagsins í Pepsi- deild kvenna. Fylkiskonur hafa rétt úr kútnum eftir erfiða byrj- un og eru búnar að vinna tvo leiki í röð og eru auk þess komnar í undan úrslit Borgunarbikarsins. Það gengur öllu verr hjá Þrótti. Liðið hefur aðeins fengið tvö stig af 24 mögulegum og er í níunda og næstneðsta sæti deild arinnar. Vandamál Þróttar er augljóst þegar litið er á töfluna; liðið er aðeins búið að skora eitt mark í leikjunum átta. Það kom í 5-1 tapi fyrir Stjörnunni 30. júní síðastlið- inn. Það sem gerir þetta marka- leysi Þróttar enn neyðarlegra er að eina mark liðsins í deildinni til þessa var sjálfsmark leikmanns Stjörnunnar. Þróttarar eru því búnir að leika átta leiki án þess að skora sjálfar og gerist það aftur í kvöld fer liðið í gegnum alla fyrri umferðina án þess að skora mark. Það þarf að fara 29 ár aftur í tímann til að finna viðlíka marka- leysi hjá liði í efstu deild kvenna. Það var sumarið 1986 þegar Haukar fóru í gegnum fyrstu níu umferðirnar án þess að skora. Raunar skoraði Haukaliðið ekki eitt einasta mark í deildinni það sumarið – í tólf leikjum. Þróttarar geta þó huggað sig við það að þrátt fyrir markaleysið eru stelpurnar ekki á botni deildarinn- ar en það er hlutskipti Aftureld- ingar sem er aðeins með eitt stig. Vinni Þróttur í kvöld lagar liðið stöðu sína verulega. Þrótt- arar verða þá aðeins einu stigi frá KR, sem er í 8. sætinu, og um leið aðeins einu stigi frá fallsæti. En til þess að það gerist þurfa leikmenn Þróttar að skora – þær geta ekki beðið mikið lengur með það. - iþs Skorar Þróttur í fyrri umferðinni? Þróttur hefur skorað eitt mark í Pepsi-deild kvenna og það var sjálfsmark. MARKALEYSI Guðrún Jóna Kristjáns- dóttir er þjálfari Þróttar. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR FÖSTUD. KL. 19:30 365.is Sími 1817 VALUR – STJARNAN Valsmenn taka á móti Íslandsmeisturum Stjörnunnar í Pepsi-deildinni í kvöld. Bæði lið ætla sér öll stigin sem í boði eru til að halda sér í toppbaráttunni. 0 3 -1 2 -2 0 1 5 2 3 :0 0 F B 0 5 6 s _ P 0 5 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 7 5 5 -9 1 D C 1 7 5 5 -9 0 A 0 1 7 5 5 -8 F 6 4 1 7 5 5 -8 E 2 8 2 8 0 X 4 0 0 7 A F B 0 5 6 s _ 9 _ 7 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.