Fréttablaðið - 10.07.2015, Qupperneq 54
10. júlí 2015 FÖSTUDAGUR| LÍFIÐ | 38
FÖSTUDAGSLAGIÐ
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR– AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is, Hjalti Egilsson
hjalti@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Svanhildur Ólöf Þórsteinsdóttir svansi@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ
SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Gunnhildur Geira Dan Þorláksdóttir geira@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Jónatan
Atli Sveinsson jonatan@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar
Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
„Hugmyndin er að ögra ofbeldi og ófriði með
hamingju og vekja athygli á starfsemi UN
Women,“ segir Áslaug Björk Ingólfsdóttir, hóp-
stjóri götukynninga UN Women á Íslandi.
Á morgun stendur Ungmennaráð UN Women
fyrir zumba-veislu á Klambratúni og er hverj-
um sem er frjálst að koma og taka þátt í við-
burðinum.
Fyrir þá sem ekki vita þá er zumba eins
konar dansíþrótt þar sem dans- og þolfimispor
eru stigin við taktfasta tónlist.
„Ungmennaráðið var svo heppið að fá sjö
zumba-kennara sem voru spenntir fyrir þessu
verkefni og vildu taka þátt. Þannig kvikn-
aði hugmyndin,“ segir Áslaug og bætir við
að zumba-veislan gæti verið skemmtileg fjöl-
skyldustund eða fyrir vinahópa en viðburður-
inn mun mun standa yfir í 90 mínútur og sporin
eru einföld.
„Það geta allir mætt á hvaða aldri sem er,
engin pressa, bara skemmtun,“ segir hún glöð
í bragði.
Þátttökugjaldið er 1.000 krónur og rennur
allur ágóði í styrktarsjóð UN Women.
Hægt er að skrá sig til þátttöku á vefsíðu
samtakanna og hefst zumba-veislan klukkan
14.00 við Kjarvalsstaði á morgun. - gló
Ögra ófriði og ofb eldi með zumba-veislu
Ungmennaráð UN Women stendur fyrir 90 mínútna zumba-veislu á Klambratúni á morgun.
ZUMBA-STUÐ Áslaug Björk lofar góðu stuði á laugar-
daginn í zumba-veislunni. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Í kvöld fer fram keppni í svo-
kölluðu „rappbattli“ og er þetta
í fyrsta sinn í tæpan áratug sem
keppni í þessari iðju fer fram.
„Battlið“ naut mikilla vinsælda
hér á landi upp úr aldamótum og
voru keppnir haldnar undir nafn-
inu Rímnastríð. Vinsældirnar
voru svo miklar að Rímnastríðið
var sýnt í beinni útsendingu í sjón-
varpi árið 2003.
Marlon Pollock heldur keppn-
ina á morgun, en hann var einn af
þeim sem tóku þátt í Rímnastríði
á sínum tíma. „Já, þetta er fyrsta
keppnin sem hefur verið hald-
in lengi og löngu kominn tími á
þetta,“ útskýrir Marlon í samtali
við Fréttablaðið. Fyrirkomulag
keppninnar verður nokkuð hefð-
bundið en fleiri viðburðir sem
innihalda „battl“ verða á dagskrá
á skemmtistaðnum Paloma í kvöld.
„Fyrst verður keppni þar sem
menn rappa yfir rapptakta, svona
eins og tíðkaðist hér áður fyrr. En
að lokinni keppninni verður svo-
kallað þungavigtarbattl,“ útskýr-
ir Marlon. Þá mun hann sjálfur
„battla“ Guðjón Heiðar Valgarðs-
son, rappara úr sveitinni Átrún-
aðar goðin. „Það verður svona
svipað og er að gerast erlendis. Þá
verður enginn taktur undir, held-
ur allt „a cappella“. Við erum líka
búnir að fá góðan tíma til að undir-
búa okkur, þannig að það verður
minna samið á staðnum,“ bætir
Marlon við.
„Battlið“ er vinsælt víða um
heim og eru fjölmargar keppnir
haldnar víða, sem eru sýndar á
vefjum á borð við Youtube. Áður
fyrr tíðkaðist það að menn semdu
textann sinn mikið á staðnum, sem
kallast „freestyle“ á frummálinu.
En þróunin í faginu hefur verið í
þá átt að menn fá að vita hver and-
stæðingur þeirra er með góðum
fyrirvara og taka jafnvel vikur
í að undirbúa sig. „Þá geta menn
verið með beittari skot á andstæð-
inginn og leikið sér með tungu-
málið. Þó að „battl“ okkar Guð-
jóns verði þannig ætla ég samt að
semja eitthvað á staðnum, ef ég
þarf að svara einhverju sem hann
segir. Það getur verið sterkt vopn.“
Marlon er sjálfur reynslubolti í
því að koma fram og spinna rímur
á staðnum. Hann var virkur í
„battl-senunni“ á sínum tíma og
hefur komið fram í fjöl miðlum þar
sem hann hefur samið á staðnum.
Hann tók til dæmis þátt í Hæfi-
leikakeppni Íslands, sem sýnd var
á Skjá einum 2012 og þar nýtti
hann sér reynslu sína í „freestyle“
rappi.
„Battlið“ verður endurvakið á
Paloma í kvöld. Húsið verður opnað
klukkan 21 og „battl“-keppnin hefst
klukkan 22. Að henni lokinni hefst
þungavigtarbattlið. Dómnefnd sker
úr um sigurvegara og hana skipa
þau Sóley Pálsdóttir úr Reykja-
víkur dætrum, Daníel Alvin úr
Þriðju hæðinni og Emmi Beats úr
Shades of Reykjavík. kjartanatli@365.is
„Battlið“ endurvakið
Efnt verður til keppni í svokölluðu „rappbattli“ á skemmtistaðnum Paloma í
kvöld. Um áratugur frá því að síðasta keppni af þessu tagi var haldin hér á landi.
GRIMMIR Hér má sjá Marlon Pollock og Guðjón Heiðar Valgarðsson, sem takast á í þungavigtarbattli kvöldsins.
„Mitt föstudagslag þennan
föstudaginn er Spread your wings
með Queen!“
Matthías Matthíasson tónlistarmaður.
Að keppa í „rappbattli“ þykir minna á hina gömlu og hefðbundnu list að
kveðast á. Markmiðið er að niðurlægja andstæðing á einhvern hátt, með
rappi. „Battlið“ er vinsælt um allan heim og er mikilvægur hluti hipp-
hopp-menningarinnar. Kvikmyndin 8 Mile, með rapparanum Eminem í
aðalhlutverki, færði „battlið“ meira í sviðsljósið á heimsvísu. Eminem tók
þátt í slíkum keppnum sjálfur þegar hann var ungur að árum.
Nokkrar stórar deildir í „rappbattli“ eru starfræktar og má nálgast
efni frá þeim á Youtube, þar sem horft hefur verið á sum myndböndin
nokkrum milljónum sinnum. Stærstu deildirnar eru Ultimate Rap League
(URL), King of the Dot (KOTD), Don‘t Flop og Grind Time Now.
Meðal þekktustu rapparanna í „battlinu“ á heimsvísu eru Charlie Clips,
Hollow Da Don, DayLyt, Murda Mook, Arsonal og DNA.
HVAÐ ER „BATTL“?
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:0
0
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
5
4
-0
B
C
C
1
7
5
4
-0
A
9
0
1
7
5
4
-0
9
5
4
1
7
5
4
-0
8
1
8
2
8
0
X
4
0
0
3
A
F
B
0
5
6
s
_
9
_
7
_
2
0
1
5
C
M
Y
K