Morgunblaðið - 13.06.2015, Síða 1
L A U G A R D A G U R 1 3. J Ú N Í 2 0 1 5
Stofnað 1913 137. tölublað 103. árgangur
„HLÝT AÐ HAFA
VERIÐ JAPÖNSK
Í ÖÐRU LÍFI“
BÆNDUR Í
BÁRÐARDAL
VINÁTTAN
MIKILVÆG 14MIREYA SAMPER SÝNIR 38
Framkvæmdir eru hafnar við
stækkun Bryggjuhverfisins í Graf-
arvogi í Reykjavík. Kostnaður við
verkefnið hleypur á milljörðum
króna.
Félagið ÞG Verk sér um upp-
bygginguna og verða 185 íbúðir í
fyrri áfanga og 95 íbúðir í þeim síð-
ari, alls 280 íbúðir. Sala íbúða í
fyrri áfanganum hefst innan fárra
mánaða.
Þorvaldur Gissurarson, fram-
kvæmdastjóri ÞG Verks, segir að
fyrstu íbúðirnar í fyrri áfanganum
verði afhentar snemma á næsta ári
og að stefnt sé að því að ljúka fram-
kvæmdum í árslok 2016. Hann seg-
ir ekki ákveðið hvenær uppbygging
síðari áfangans hefst. Stíll hverfis-
ins verður áfram eins. »12
Stíll Bryggjuhverfið sker sig úr en áfram
verður byggt í sama stíl og undanfarið.
Milljarða fram-
kvæmdir við
Bryggjuhverfið
Í skýrslu um
atvinnuuppbygg-
ingu í Austur-
Húnavatnssýslu,
sem unnin var af
Verkefnisstjórn
A-Hún., kemur
fram það álit að
eðlilegt sé að öll
orka Blöndu-
virkjunar nýtist í
þágu heima-
manna.
Fyrirhuguð stækkun Blöndu-
virkjunar skapar góðar forsendur
fyrir nýtingu orkunnar í þágu at-
vinnuuppbyggingar á svæðinu en
hugmyndir eru uppi um uppbygg-
ingu álvers á Hafursstöðum. »24
Vilja sjá orkuna
nýtta heima í héraði
Blönduós Orkan á
að nýtast íbúunum.
„Við erum að byrja að feta okkur
áfram en eigum eftir að sjá hvernig
ástandið er þarna innar,“ segir
Björn Ólafsson, forstöðumaður
þjónustudeildar Vegerðarinnar.
Vegagerðin hófst handa við að
ryðja veginn að Landmannalaug-
um í gær en vegurinn er enn ófær
nú, þegar átta dagar eru til sum-
arsólstaða. Farið var með jarðýtu
á svæðið í gær og stóð til að hefj-
ast strax handa við snjóruðning-
inn en mikill snjór er á veginum.
„Við ætlum að skoða á mánudag-
inn hvernig útlitið verður. Við för-
um varla niður hraunið núna, það
eru miklar bleytur í þessu þannig
að vegurinn verður lokaður þar til
við sjáum eitthvað lengra,“ segir
Björn. Hann bætir við að stefnt sé
að því að hleypa sérútbúnum jepp-
um á veginn eftir helgi. „Ef þetta
fer eins og við vonumst eftir.“
ash@mbl.is »20-21
Ryðja veginn til
Landmannalauga
Morgunblaðið/RAX
Sumarsnjór Myndin var tekin við Landmannalaugar fyrir skömmu.
Opnun vegarins skoðuð eftir helgi
Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu komst í
gærkvöld í efsta sæti A-riðils undankeppni Evr-
ópumótsins með því að sigra Tékka 2:1 í topp-
slag á Laugardalsvellinum. Kolbeinn Sigþórsson
skoraði sigurmarkið eins og sjá má hér fyrir of-
an. Þegar fjórum umferðum er ólokið er íslenska
liðið fimm stigum á undan Hollendingum sem
eru í þriðja sæti en tvö efstu liðin komast beint á
EM. » Íþróttir
Íslenska landsliðið skrefi nær því að komast á EM í Frakklandi
Morgunblaðið/Eggert
Á toppi riðilsins eftir sigur á Tékkum
Benedikt Bóas
benedikt@mbl.is
„Ég miða við að klára lagasetn-
inguna á morgun [í dag],“ segir
Unnur Brá Konráðsdóttir, formaður
allsherjar- og menntamálanefndar
Alþingis.
Eftir langar umræður um frum-
varp Sigurðar Inga Jóhannssonar
um að fresta verkfalli BHM og Fé-
lags íslenskra hjúkrunarfræðinga til
1. júlí, sem lauk um klukkan 22 í
gærkvöldi, hittist allsherjar- og
menntamálanefnd Alþingis og gerði
áætlanir um fund dagsins þar sem
helstu deiluaðilar verða ásamt for-
svarsmönnum Landspítalans, lög-
fræðingum og fleirum.
Fundurinn hefst klukkan hálfníu
og búist er við að hann standi til há-
degis.
Gerir ráð fyrir samþykki
Ólafur G. Skúlason, formaður
FÍH, segir fundinn sem boðað hefur
verið til vera samkvæmt hefðbundn-
um ferli máls á Alþingi.
„Við munum mæta þar og gera
grein fyrir okkar skoðun á þessu
frumvarpi,“ segir hann en er ekki
tilbúinn að tjá sig að svo stöddu um
stöðu mála.
Lögfræðingur félagsins og samn-
inganefnd félagsins munu mæta til
fundarins. „Þegar ríkisstjórnin telur
sig hafa meirihluta fyrir frumvarpi
sem þessu þá gerir maður ráð fyrir
því að það verði samþykkt,“ segir
Ólafur
Verði að lögum í dag
Unnið eftir áætlun sem gerir ráð fyrir að lög á verkfall BHM og FÍH verði stað-
fest í dag Nefndarfundur verður haldinn í dag með helstu deiluaðilum
Verkfalli frestað
» Formaður allsherjar- og
menntamálanefndar segir að
stefnt sé að því að klára í dag
lagasetningu um að fresta
verkfallsaðgerðum BHM og FÍH
til 1. júlí.
» Aðilum er falið að nýta tím-
ann til að ná samkomulagi, ella
fer kjaradeilan í gerðardóm.
MLagasetning á verkföll »4 og 6
Nú, þegar útlit er fyrir að verk-
falli lögfræðinga hjá Sýslumann-
inum í Reykjavík ljúki, munu þing-
lýsingar hefjast að nýju en engir
kaupsamningar hafa verið þing-
lesnir frá því í byrjun apríl. Grein-
ingaraðilar telja að þegar fast-
eignasala komist í eðlilegt horf geti
það leitt til þess að uppsöfnuð verð-
bólga, sem ekki hefur mælst í vísi-
tölu Hagstofunnar vegna verkfalls-
ins, muni hafa áhrif til að þrýsta
verðbólgunni upp á við. Bankarnir
spá því að verðbólgan haldist í
kringum 1,6% líkt og í fyrri mánuði
en að það komi til vegna hækkunar
vísitölu neysluverðs milli mánaða
um 0,3-0,4%. »22
Verkfallslok hafa
áhrif á verðbólguna