Morgunblaðið - 13.06.2015, Qupperneq 6
6
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. JÚNÍ 2015
DAGUR
ÍSLENSKRAR
NÁTTÚRU
Tilnefningar óskast til
viðurkenninga umhverfis-
og auðlindaráðuneytis
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið óskar eftir
tilnefningum til tvennra verðlauna sem afhent
verða á Degi íslenskrar náttúru, 16. september
næstkomandi.
Fjölmiðlaverðlaun umhverfis- og auðlinda-
ráðuneytisins verða veitt fjölmiðli, ritstjórn,
blaða- eða fréttamanni, dagskrárgerðarfólki
eða ljósmyndara sem hafa skarað fram úr með
umfjöllun sinni um íslenska náttúru. Til greina
koma einstök verkefni eða heildarumfjöllun um
íslenska náttúru.
Náttúruverndarviðurkenning Sigríðar í
Brattholti verður veitt einstaklingi sem hefur
unnið markvert starf á sviði náttúruverndar.
Tilnefningar ásamt rökstuðningi skal senda í
síðasta lagi 16. ágúst 2015 á umhverfis- og
auðlindaráðuneytið, Skuggasundi 1, 101 Reykjavík,
eða á netfangið postur@uar.is
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Gerðardómur mun ákveða kaup og
kjör hjúkrunarfræðinga og félags-
manna BHM náist ekki samningar
fyrir 1. júlí, samkvæmt frumvarpi
ríkisstjórnarinnar að lögum sem
stöðva verkfallsaðgerðir þeirra.
Dómurinn á meðal annars að horfa
til annarra kjarasamninga sem þeg-
ar hafa verið undirritaðir. Frum-
varpið kveður á um að Hæstiréttur
tilnefni þrjá menn í gerðardóminn.
Samkvæmt frumvarpinu á gerðar-
dómurinn, komi til skipunar hans,
að ákveða kaup og kjör félags-
manna í BHM og Félagi íslenskra
hjúkrunarfræðinga fyrir 15. ágúst
nk.
Komi til kasta gerðardóms í
kjaradeilum er um tvenns konar
gerðardóma að ræða. Annars vegar
gerðardóm í kjarasamningum og
hins vegar gerðardóm sem kveðið
er á um í lögum sem banna verkfall.
Magnús Pétursson, sem var
ríkissáttasemjari frá 2008 þar til 1.
júní sl., rifjaði í samtali við Morgun-
blaðið upp tvö tilvik frá hans sátta-
semjaratíð: „Í kjarasamningum lög-
reglumanna og tollvarða eru
ákvæði um það að ef menn ná ekki
saman, þá getur hvor aðili um sig,
eða þeir sameiginlega, vísað deil-
unni í gerðardóm. Það reyndi á
þetta í tvígang, 2011 hjá lög-
reglumönnum og 2013 hjá toll-
vörðum.“
Magnús segir að í tilviki lög-
reglumanna frá haustinu 2011 hafi
gerðardómur úrskurðað í deilu lög-
reglumanna við ríkið. „Lögreglu-
menn voru hundóánægðir með úr-
skurð gerðardóms og þrömmuðu
niður að Arnarhvoli (í fjármálaráðu-
neytið - innsk. blm.). Þar var haldið
áfram að semja og þeir náðu í við-
ræðum við fjármálaráðherra fram
einhverjum kjarabótum, þannig að
deilan leystist,“ sagði Magnús.
Magnús segir að hin leiðin, þ.e.
lagasetning sem bannar verkfall og
kveður á um gerðardóm, að til-
teknum fresti loknum, hafi aldrei
verið farin á hans vakt.
„Það stappaði að vísu nærri í
kjaradeilu flugvirkja í fyrra. Það
var búið að semja lagafrumvarp
sem bannaði verkfall flugvirkja, en
það kom ekki til lagasetningar, því
samningar náðust áður en til þess
kom,“ sagði Magnús.
Gerist ekki oft að kjara-
deilur endi hjá gerðardómi
Náðu að semja í fyrra áður en til lagasetningar kom
Morgunblaðið/Júlíus
Óánægðir Hópur lögreglumanna á leið til fundar við fjármálaráðherra
haustið 2011. Þeir voru óánægðir með niðurstöður gerðardóms.
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Verkfall stéttarfélaga innan BHM
og Félags íslenskra hjúkrunarfræð-
inga (FÍH) hefur þegar valdið miklu
tjóni á mörgum sviðum og viðræður
reynst árangurslausar. Þetta kemur
fram í ítarlegum rökstuðningi fyrir
þeirri ákvörðun ríkisstjórnarinnar
að fresta verkföllunum með laga-
setningu. Frumvarpi Sigurðar Inga
Jóhannssonar, landbúnaðar- og
sjávarútvegsráðherra, um bann við
verkföllunum og skipan gerðardóms
fylgir löng greinargerð, þar sem til-
efninu er lýst og hvaða nauðsyn rétt-
læti að grípa inn í stjórnar-
skrárvarinn rétt stéttarfélaga til að
fara í verkföll.
Vísað er til nýgerðra kjarasamn-
inga á almenna vinnumarkaðinum
sem feli í sér 17-20% hækkun launa á
samningstímabilinu. ,,Launahækk-
anir sem kveðið er á um í þessum
samningum eru að jafnaði um tvöfalt
meiri en launahækkanir sem reikna
má með á samningstímabilinu í við-
skiptalöndum okkar,“ segir í
greinargerð frumvarpsins.
Þessir samningar muni reyna á
þanþol hagkerfisins. ,,Þannig hækk-
aði verðbólguálag á skuldabréfa-
markaði í kjölfar samninganna og
talið er óhjákvæmilegt að samning-
arnir leiði til aukinnar verðbólgu og
hækkunar vaxta,“ segir þar.
Launakröfur félaganna sem lögin
eiga að ná til eru sagðar vera langt
umfram þær launahækkanir sem
samið var um við stærstan hluta al-
menna vinnumarkaðarins 29. maí sl.
Augljós hætta sé á að launahækkun
til félagsmanna BHM og FÍH, um-
fram það sem þegar hefur verið
samið um á almennum vinnumark-
aði, hafi neikvæð áhrif á aðra kjara-
samninga og stöðugleika á vinnu-
markaði.
Afstýra tjóni - alvarlegt
inngrip
Í rökstuðningi frumvarpsins er
vísað í minnisblöð landlæknis um þá
miklu röskun í heilbrigðisþjónust-
unni sem verkföllin hafi haft í för
með sér. Og ítrekað hafi komið fram
hjá fjölmörgum hagsmunaaðilum
hvaða tjóni þeir hafa orðið eða munu
verða fyrir vegna verkfallsaðgerða
einstakra félaga innan BHM. „Brýnt
er að bregðast við til að afstýra tjóni
og neikvæðum áhrifum á samfélag-
ið,“ segir í rökstuðningnum.
Í ályktun FÍH og BHM í gær er
því haldið fram að afskipti stjórn-
valda af verkfallsrétti og samnings-
frelsi sé alvarlegt inngrip í lögmæta
starfsemi stéttarfélaga. Í 74. gr.
stjórnarskrárinnar og 11. gr. Mann-
réttindasáttmála Evrópu felist al-
mennt bann við slíkum afskiptum
stjórnvalda og löggjafans.
Fjallað er í nokkuð löngu máli um
þetta í stjórnarfrumvarpinu. Þar er
fullyrt að frumvarpið sé bæði í sam-
ræmi við stjórnarskrá og alþjóða-
samninga.
Vísað er til dóma Hæstaréttar og
Mannréttindadómstóls Evrópu um
að ákvæði stjórnarskrár og Mann-
réttindasáttmála Evrópu feli ekki í
sér skilyrðislausa vernd verkfalls-
réttar stéttarfélaga en samnings-
frelsi verkalýðsfélaga og verkfalls-
rétt megi þó aðeins skerða með
lögum og að uppfylltum tilteknum
skilyrðum sem koma fram í 11. grein
Mannréttindasáttmálans.
Þrjú meginskilyrði þurfi að vera
til staðar til þess að skerða megi
verkfallsrétt og samningsfrelsi
launþega. „Skerðing verður að
byggjast á lögum (1), lagasetningin
þarf að vera í þágu almannahags-
muna eða réttinda annarra (2) og
hún verður að vera nauðsynleg til að
þeirra hagsmuna og réttinda sé gætt
(3). Þáttur í mati á nauðsyn er svo að
meðalhófs sé gætt,“ segir í
greinargerð frumvarpsins.
Firra glundroða og til verndar
heilsu eða réttindum annarra
Bent er á að skerðing verkfalls-
réttar sé einungis heimil ef hún
þjónar tilteknum almannahagsmun-
um eða réttindum annarra sam-
kvæmt 2. málsgrein, 11. greinar
Mannréttindasáttmála Evrópu. Þar
er vísað til „almannaheilla“, þess að
„firra glundroða“, „til verndar
heilsu“ eða „réttindum“ annarra.
Fyrirhuguð lagasetning er einnig
rökstudd með vísun til nauðsynjar.
Ljóst sé orðið að verkföllin hafi haft
verulega neikvæð áhrif á almanna-
hagsmuni og sett verkefni ríkisins í
uppnám. Hættuástand, sem feli í sér
að lífi, heilsu eða öryggi manna sé
stefnt í hættu, geti fljótlega skapast.
Náist ekki samningar fyrir 1. júlí
tekur gerðardómur við. Hann fær
frest til 15. ágúst til að ákveða kaup
og kjör félagsmanna. Ákvörðunin
yrði bindandi sem kjarasamningur á
milli aðila frá og með gildistöku lag-
anna og gildir samningurinn þann
tíma sem gerðardómurinn ákveður.
Tekið er fram að verkfallsbannið sé
afmarkað og að félögin geti neytt
verkfallsréttar síns á ný að
ákveðnum tíma liðnum, „þegar
tímamörkum ákvörðunar gerðar-
dóms er náð“, þ.e. þá væntanlega
þegar samningurinn rennur út og
friðarskylda samningstímans renn-
ur út.
„Brýnt er að bregðast við“
Skerðing verkfallsréttar þarf að vera í þágu almannahagsmuna Sagt óhjá-
kvæmilegt að nýgerðir samningar leiði til meiri verðbólgu og hækkunar vaxta
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Á Alþingi í gær Hjúkrunarfræðingar og félagar í BHM mótmæltu við Alþingishúsið og fjölmenntu á þingpalla.
Vandi Alþingis
er mikill þegar
taka þarf afstöðu
til þess hvort
lagasetning á að-
gerðir á vinnu-
markaði sé rétt-
lætanleg.
Magnús Péturs-
son, fyrrverandi
ríkissáttasemj-
ari, fjallar um
þetta í nýútkominni ársskýrslu og
segir þar annars vegar vegast á
rétt fólks og fyrirtækja til þess að
ákveða vinnustöðvun að tilteknum
reglum uppfylltum og hins vegar
mat löggjafans á heildar-
hagsmunum þjóðarinnar eða af-
markaðs hóps hennar.
Gripið var í þrígang til lagasetn-
ingar til þess að banna verkfalls-
aðgerðir hópa launþega í fyrra.
Fyrst með lagasetningu á verkfall
undirmanna á Herjólfi, síðan á
vinnustöðvun flugmanna hjá Ice-
landair og loks á vinnudeilu flug-
virkja hjá sama félagi.
Magnús bendir á að afskipti lög-
gjafans af þessum þremur málum
hafi verið ólík. „Afskipti af Herj-
ólfsdeilunni voru fyrst og fremst
rökstudd með viðskiptalegum for-
sendum, þ.e. að útflutningur á fisk-
afurðum mundi skaðast drægjust
aðgerðir á langinn. Í flugdeilunum
má segja að bæði viðskiptaleg
sjónarmið og hagsmunir þriðja að-
ila, þ.e. flugfarþega, hafi riðið
baggamuninn. Erfitt er að halda
því fram að þjóðarhagsmunir eða
þjóðaröryggi hafi verið í húfi í
Herjólfsdeilunni. Sama má segja
um verkfallsaðgerðir flugmanna og
flugvirkja þótt þar væri um að
ræða mun meiri og víðtækari við-
skiptahagsmuni. Í ljósi afskipta Al-
þingis af kjaradeilum á árinu 2014
væri gagnlegt að yfirvega við
hvaða aðstæður inngrip Alþingis í
kjaradeilur er réttlætanlegt og
nauðsynlegt.“
Ólík af-
skipti
Alþingis
Mikill vandi þings-
ins varðandi inngrip
Magnús
Pétursson
Lagasetning á verkföll