Morgunblaðið - 13.06.2015, Síða 12
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Framkvæmdir eru hafnar við stækk-
un Bryggjuhverfisins í Grafarvogi í
Reykjavík. Kostnaður við verkefnið
hleypur á milljörðum króna.
Félagið ÞG
Verk sér um upp-
bygginguna og
verða 185 íbúðir í
fyrri áfanga og 95
íbúðir í þeim síð-
ari, alls 280 íbúð-
ir. Sala íbúða í
fyrri áfanganum
hefst innan fárra
mánaða.
Miðað við að
söluverð íbúða
verði að meðaltali 30 milljónir má
lauslega áætla að heildarsöluverð-
mæti íbúðanna verði 8,7 milljarðar
króna.
Þorvaldur Gissurarson, fram-
kvæmdastjóri ÞG Verks, segir að
fyrstu íbúðirnar í fyrri áfanganum
verði afhentar snemma á næsta ári
og að stefnt sé að því að ljúka fram-
kvæmdum í árslok 2016. Hann segir
ekki ákveðið hvenær uppbygging síð-
ari áfangans hefst.
Verði í stíl við gamla hverfið
Þorvaldur segir lagða áherslu á að
yfirbragð byggðarinnar verði í anda
núverandi hverfis.
„Aðalhönnuður verksins er Björn
Ólafs en hann var einmitt skipulags-
hönnuður hverfisins á sínum tíma og
hannaði flest hús sem þar eru,“ segir
Þorvaldur en uppbygging Bryggju-
hverfisins hófst undir lok tíunda ára-
tugarins. „Markmiðið er að bjóða
hagkvæmar og praktískar íbúðir
með hámarks rýmisnýtingu en um
leið aðlaðandi byggingar og um-
hverfi. Hverfið er vel staðsett, mið-
svæðis í borginni, og með tilkomu
breytinga á skipulagi og uppbygg-
ingu á nálægum svæðum, til dæmis
Vogabyggð, sem nú er verið að
skipuleggja, mun á komandi miss-
erum byggjast upp fjölbreytt íbúða-
byggð og þjónusta í þessum hluta
borgarinnar,“ segir Þorvaldur. Hann
segir það lækka verð íbúðanna að
rýmið verði nýtt sem best. Boðið
verði upp á þriggja herbergja 80 fer-
metra íbúðir og fjögurra herbergja
íbúðir sem eru minni en 100 fermetr-
ar. Þá verði mikið um litlar tveggja
herbergja íbúðir ætlaðar fyrstu
kaupendum.
Markaðurinn ekki í jafnvægi
Þorvaldur segir aðspurður að fast-
eignamarkaðurinn sé enn ekki kom-
inn í eðlilegt jafnvægi. Fyrstu kaup-
endur skorti sem og kaupendur með
lágar tekjur eða millitekjur. Fólk
sem hafi ekki mikið sparifé.
„Þessi hópur á eftir að koma á
markaðinn. Það vantar enn úrræði
fyrir hinn almenna kaupanda á lána-
markaði. Það má segja að stóru hóp-
arnir hafi aðeins orðið eftir. Und-
anfarið rúmt ár hefur mesta salan
verið í dýrari íbúðum og íbúðum á
dýrari svæðum á höfuðborgarsvæð-
inu, þótt hitt hafi auðvitað unnið á
líka í úthverfunum,“ segir Þorvaldur.
Tölvuteikning/Björn Ólafs
Hverfið séð úr lofti Fyrsti áfanginn er fyrir miðju myndarinnar. Þau hús eru ljósari og eru skærgræn svæði um-
hverfis þau. Húsin sem reist verða í síðari áfanganum eru í hægra horninu niðri. Þar til hægri er svæði Björgunar.
Stækkun Bryggju-
hverfisins er hafin
Söluverðmæti 280 íbúða gæti verið tæplega 9 milljarðar
Tölvuteikning/Björn Ólafs
Fyrsti áfanginn Framkvæmdir eru hafnar við stækkun Bryggjuhverfisins.
Flest stæðin
neðanjarðar
» Samkvæmt skipulaginu þarf
eitt bílastæði að fylgja íbúð í
kjallara og eru 60-65% af bíla-
stæðakvöðinni í þessum tveim-
ur áföngum neðanjarðar.
» ÞG Verk hefur fengið þær
upplýsingar frá borginni að
Björgun verði farin frá svæðinu
eftir ríflega ár. Þar sé gert gert
ráð fyrir íbúabyggð síðar meir.
Þorvaldur
Gissurarson
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. JÚNÍ 2015
Halldór Halldórsson
blaðamaður lést 11.
júní á heimili sínu í
Reykjavík, 65 ára að
aldri, eftir langa bar-
áttu við lungnasjúk-
dóm.
Halldór fæddist á
Akureyri 1. júlí árið
1949. Foreldrar hans
voru Sigríður Guð-
mundsdóttir húsmóðir
og Halldór Halldórsson
prófessor en Halldór
var yngsta barn þeirra
af fimm.
Hann lauk stúdents-
prófi frá Menntaskólanum í Hamra-
hlíð 1970, nam þjóðfræði við Háskól-
ann í Lundi 1970-1971 og lauk
BA-prófi í heimspeki og bókmennta-
fræði við Háskóla Íslands 1977. Árið
1980 lauk hann svo MA-prófi í fjöl-
miðlafræði við University of North
Carolina at Chapel Hill.
Starfsferill Halldórs hófst á Al-
þýðublaðinu sem prófarkalesari frá
1965 til 1975 og sem
fréttamaður hjá RÚV
frá 1975 en þar starf-
aði hann með hléum
fram til 1992 í ýmsum
störfum, sem frétta-
maður, fréttaritari í
Bandaríkjunum og
dagskrárritstjóri.
Hann var ritstjóri Ís-
lendings á Akureyri
1982-84 og ritstjóri
Helgarpóstsins 1984-
88 þar sem hann hafði
starfað sem blaðamað-
ur 1979.
Frá 1992 sinnti hann
aðallega kynningarmálum og fjöl-
miðlaráðgjöf á eigin vegum en hann
átti sæti í siðanefnd Blaðamanna-
félags Íslands og var um tíma vara-
formaður þess.
Halldór lætur eftir sig sambýlis-
konu, Ingibjörgu G. Tómasdóttur,
dótturina Hrafnhildi og stjúpbörnin
Tómas Frey og Gerði Ósk, auk sjö
barnabarna.
Andlát
Halldór Halldórsson
„Yfirleitt kemur fólk í viðtalstíma til
okkar borgarfulltrúanna niður í ráð-
hús, en við ákváðum að prófa aðra
nálgun við að heyra hvað helst
brennur á borgarbúum,“ segir
Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi
Sjálfstæðisflokksins. Hann var til
viðtals við gesti og gangandi við
verslun Krónunnar í gær ásamt
varaborgarfulltrúunum Elísabetu
Gísladóttur og Birni Gíslasyni.
Kjartan segir margt brenna á borg-
arbúum og líflegar umræður hafi
skapast. „Fólk vildi ræða allt mögu-
legt; skattamál, holræsamál, skóla,
gatnakerfið og svo voru það líka
landsmálin. Nú er að vinna úr öllum
þessum ábendingum og hugmynd-
um,“ segir Kjartan og segist hafa
fullan hug á að endurtaka leikinn.
Kjartan var til
viðtals í Krónunni
„Fólk vildi ræða um allt mögulegt“
Morgunblaðið/Eggert
Í Krónunni Kjartan Magnússon borgarfulltrúi og varaborgarfulltrúarnir
Elísabet Gísladóttir og Björn Gíslason ræða við áhugasaman borgarbúa.