Morgunblaðið - 13.06.2015, Síða 31

Morgunblaðið - 13.06.2015, Síða 31
MINNINGAR 31 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. JÚNÍ 2015 ✝ Jón Rafn Odds-son (Rabbi) fæddist á Þykkva- bæjarklaustri, V- Skaft., 24. maí 1926. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða á Ísa- firði 7. júní 2015. Foreldrar hans voru Oddur Jóns- son, f. 26.3. 1894, d. 15.5. 1968, og Ágústa Jónsdóttir, f. 23.6. 1899, d. 15.12. 1982. Systkini hans eru Rannveig, f. 22.3. 1920, d. 22.4. 2012, og Þur- íður, f. 24.5. 1928. Eiginkona hans var Sig- þrúður (Dúa) Gunnarsdóttir, f. 21.12. 1930, d. 18.12. 2013, en þau voru gefin saman á Ísafirði 30.6. 1962. Börn hans eru Óðinn Már Jónsson, f. 1946, Guðbjörg Alda Jónsdóttir, f. 1950, Guðrún Ágústa Jónsdóttir, f. 1951, Rafn Arild Jónsson, f. 1953, Gígja Jónsdóttir, f. 1961, Gunnsteinn Jónsson, f. 1961, og Oddur Jónsson, f. 1962. Sigþrúður átti fyrir Kristínu Karlsdóttur, f. 1952, og gekk Jón Rafn henni í föð- urstað. Jón Rafn bjó fyrstu æviárin í Vík í Mýrdal en fluttist 12 ára að aldri til Reykjavíkur. Hann fór á sjóinn 15 ára gamall og starfaði við sjómennsku alla tíð, fyrst á togurum og fraktskipum, en síð- an gerði hann hann út eigin báta frá Ísafirði, m.a. Farsæl ÍS-13 og Gunnar Sigurðsson ÍS-13. Útförin fer fram frá Ísa- fjarðarkirkju í dag, 13. júní 2015, kl. 14. Elsku pabbi. Það var dálítið undarlegt að vera hjá þér, halda í höndina á þér og vita að endalokin nálguðust hratt. En þegar ég sat þarna og hugsaði til baka þá gladdi mig að allar hugsanir og minningar um þig voru jákvæðar og gleðilegar. Það var líka gott að fá tíma til að kveðja þig og sjá að þér leið ekki illa. Þú varst sjómaður alla þína ævi. Fyrst við Íslandsstrendur, ásamt siglingum til Englands á stríðsárunum. Síðan tóku við sigl- ingar um öll heimsins höf sem urðu uppspretta ótal ævintýra sem við bræður þreyttumst aldrei á að heyra sögur af. Lokakaflinn var síðan útgerð á Ísafirði á Gunnari Sigurðssyni, sem þú lést smíða og við bræður skiptumst á að róa með þér í mörg ár. Ég held að það sé á engan hallað þó ég skrifi að þetta hafi verið einn fal- legasti báturinn á svæðinu og út- litið og umhirðan til fyrirmyndar. Hann var málaður með þínum sérstaka „ísbláa“ lit. Þegar skipaeftirlitsmaðurinn mætti sagðist hann alltaf fá samviskubit yfir því að fara ekki í sparifötin áður en hann færi niður í vélar- rúm. Þér leið hvergi betur en á sjón- um. Þegar við fórum á sjóinn velti ég fyrir mér hversu lengi við yrð- um úti. Þú hins vegar fórst strax að spá í hvort við fengjum ekki löndun og ís fljótlega og hvenær við kæmumst aftur á sjóinn. Í þau skipti sem veðrið var ekki gott og við lögðumst við akkeri inn á Að- alvík, Hornvík eða annars staðar, sást hversu vel þér leið í kyrrð- inni. Þú sagðist vilja vera á sjón- um eins lengi og hægt væri, fara síðan í heimsreisu til að kveðja vinina og deyja fljótlega að því loknu. Að vísu rættist það ekki al- veg, þú lifðir lengi eftir að sjó- mennskunni lauk, en þá tók bara við annar góður tími. Þið mamma voruð dugleg að ferðast. Árlegar ferðir í Hveragerði gerðu mikið fyrir ykkur og þið fluguð til Kan- ada til að heimsækja Gunnstein bróður og fjölskyldu. Þegar Gunnsteinn ákvað að flytja til Ísa- fjarðar með fjölskylduna vissum við ekki hversu mikið líf ykkar átti eftir að breytast. Alvarleg veikindi mömmu og áfall hjá þér á sama tíma gjörbreyttu öllu, en það var þó jákvætt að Mariam og barnabörnin náðu að kynnast ykkur. Þegar þú komst fyrst á sjúkra- húsið, haustið 2012, spurði Gunn- steinn þig hvort þú óttaðist að deyja. Þú sagðist alls ekki óttast það, þú hefðir átt góða ævi og þótt þú myndir deyja strax í dag þá myndir þú deyja sáttur. Það var líka alltaf gaman að heimsækja þig á öldrunardeild- ina. Þótt þú værir ekki alltaf viss um hvar þú værir þá þekktir þú okkur alltaf. Brostir þínu blíðasta, lyftir upp vísifingri, gafst okkur „honor“ á þinnsérstaka máta og fagnaðir komu okkar. Skemmti- legasta minningin, sem fær mig alltaf til að brosa, er þegar þú varst að tala við Gunnstein í sím- ann þar sem hann var staddur langt í burtu við fiskveiðar. Þú spurðir gjarnan um veður og afla- brögð og Gunnsteinn sagði þér að það væri ágætis veiði og veðrið væri mjög gott. „Já, það er líka al- gjört logn hérna“ sagðir þú. „Ég er að vísu í koju, en það er engin hreyfing.“ Það var því vel við hæfi að þú legðir upp í þína síðustu ferð á sjálfan sjómannadaginn. Nú heldur þú á framandi slóðir þar sem þú nærð vonandi að hitta mömmu og þið getið hlustað á fuglasönginn og öldugjálfrið í fal- legu umhverfi. Góða ferð. Þinn sonur, Oddur. Pabbi er dáinn. Það tekur svo- lítinn tíma að geta sagt þetta án þess að klökkna, en pabbi var orð- inn fullorðinn og hafði lifað góðu lífi og því held ég að hann hafi kvatt saddur lífdaga. Það er ekkert sem er endan- legra en dauðinn en pabbi mun svo sannarlega lifa með mér á meðan ég dreg andann. Ég leit alltaf upp til pabba, og þegar ég var lítill og var spurður hvað ég ætlaði að verða þegar ég yrði stór var ég fljótur að segjast ætla að verða eins og hann. Þessi hrifning mín á pabba jókst bara þegar ég varð eldri og ég hætti aldrei að líta upp til hans. Við vorum marg- ar vertíðir saman á sjó; vorum á rækju á veturna og skaki á sumr- in. Það var gott að vinna með hon- um og ég þreytist ekkert á að segja frá því en með betri skip- stjóra hef ég ekki verið um ævina. Pabbi var mikið snyrtimenni og hafði reglu á hlutunum. Hver hlutur átti sinn stað, og ef hlut- urinn var ekki þar sem hann átti að vera þá var það af því að ég hafði ekki sett hann þar. Pabbi var góður maður. Hann var þolinmóður, yfirvegaður og rólegur og fullur af mannkostum sem ég hef reynt að tileinka mér, með misgóðum árangri þó. Þegar ég hugsa til þess hversu þolin- móður og góður hann var við mig, strákling sem fram eftir öllum aldri var alltaf að gera eitthvað af sér, verður mér hugsað til þess hversu oft ég er að skammast í litlu stúlkunum mínum út af engu, stúlkum sem í mínum augum eru nánast fullkomnar. Það var farið að draga mikið af pabba þegar ég fékk þær fréttir að ég væri á leiðinni til Afríku á sjóinn og því var erfitt að ákveða hvort ég ætti að fara eða vera hjá honum. Eftir að hafa rætt við mína nánustu ákvað ég að fara en sú ákvörðun var hræðilega erfið. Ég svaf hjá pabba nóttina áður en ég hélt til Afríku. Ég hélt í höndina á honum og strauk hon- um látlaust yfir hárið og kinnina og sagði honum hversu mikið ég elskaði hann, hversu mikilvægur hann hefði verið mér og hversu mikið ég hafði alltaf litið upp til hans. Minningarnar helltust yfir mig og tárin runnu í stríðum straumum þessa nótt. Þar sem ég lá við hliðina á pabba leið mér ekki eins og manni á sextugsaldri, heldur leið mér eins og ég væri barn; litli strákurinn hans pabba. Ég er virkilega þakklátur fyrir þessa síðustu nótt sem við áttum saman pabbi minn, en ef það er eitthvað sem ég sé eftir þá er það að hafa beðið þar til þú varst orð- inn svona veikur með að segja þér hvað ég elskaði þig mikið og hversu mikils virði þú hefur alltaf verið mér. Þín verður sárt saknað, en þeg- ar tárin þorna eftir þessa sorg- ardaga veit ég að brosið á eftir að færast yfir í hvert skipti sem ég hugsa til þín. Ég er enn að læra af þér, pabbi minn, og kannski er ég að læra meira nú en oft áður. Hvíl í friði. Þinn sonur, Gunnsteinn Jónsson. Kæri frændi og vinur. Nú ert þú búinn að fá hvíldina eftir erfið veikindi og slys. Mig langar að rifja upp okkar fyrstu kynni. Ég var aðeins fjögurra ára gömul þegar ég fór með mömmu minni og Gústu systur sem var sex ára í sveitina til ömmu Þur- íðar. Í bakaleiðinni fórum við til ykkar í Vík í Mýrdal. Þá hitti ég þig fyrst sex ára gamlan og systur þína Þuríði fjög- urra ára. Ég man hvað það var gaman að hitta fjölskyldu þína og hvað það var tekið vel á móti okk- ur. Eftir að hafa fengið góða hressingu var farið með okkur öll niður í fjöru og mikið talað um fuglana sem flugu yfir okkur og þá sérstaklega um skúminn sem þau sögðu að væri grimmur og það festist í huga mínum. Svo kvöddumst við og báturinn Skaft- fellingur flutti okkur heim til Vestmannaeyja. Ég hitti þig ekki aftur fyrr en ég var fjórtán ára. Þá var ég í vist hjá Rannveigu systur þinni á Tjarnargötu 3 í Reykjavík. Það var þröngt hjá Rannveigu svo að ég fékk að gista hjá ykkur á Vest- urgötu 3. Það var alltaf nóg pláss hjá ykkur, allt í lagi að leyfa mér að sofa í stofunni. Þá varst þú orðinn mikill gæi í mínum augum og ég var feimin við þig. Mörgum árum seinna komst þú til Eyja og fórst að róa með Ása í Bæ og þá komst þú oft til okkar og auðvitað með fisk í soðið. Svo var það löngu seinna að við Hilmir vorum stödd hjá Hrefnu dóttur okkar og Erni í Kópavogi að þú hringdir í mig og sagðist þurfa að keyra einn dreng til Kópavogs og hvort við værum ekki til í að koma með þér til baka, til Ísafjarðar. Við vorum eitt spurningarmerki í framan en slógum svo til enda var þetta spennandi tækifæri til þess að koma til ykkar. Seinna kom í ljós að þú þurftir ekki að keyra dreng- inn en ákvaðst samt að koma og sækja okkur. Eftir yndislega og notalega viku hjá ykkur flugum við til baka. Þessir dagar gleym- ast aldrei. Þið komuð svo til Eyja nokkuð seinna með eldri borgurum, þar sem þið gistuð á hóteli en fenguð ykkur göngutúr heim til okkar. Þegar þið voruð rétt lögð af stað kom úrhellisrigning og þið komuð til okkar eins og hundar á sundi. Þessu var vel bjargað af Högna syni mínum. Hann skellti úlpun- um í þurrkarann svo þær væru hlýjar og fínar þegar þið kvödduð. Nú kveð ég þig kæri frændi og bið Guð um að vernda þig og allt þitt fólk. Þín frænka, Alda Björnsdóttir. Það var eins og Melkiades hefði komið í fjörðinn okkar, hár, myndarlegur, dökkhærður og með alveg sérstakt göngulag. Hann hafði verið á löngu ferða- lagi þrátt fyrir ungan aldur og hér, þar sem hann hitti Dúu sína, síðar eiginkonu og barnsmóður, settist hann að. Hann sagði sögur eins og Mel- kiades um heima sem voru okkur fjarðarbúum framandi. Sagði okkur frá Trínidad, Brasilíu, Mexíkó og af löndum fjarlægra heimsálfa, sem hann hafði heim- sótt og kynnst á siglingum sínum um heimsins höf. Og þegar Rabbi var við skál lifnuðu frásagnir hans og kveiktu ævintýraþrá í brjóstum ungra manna. Þetta var hann Rabbi vinur minn sem ég var svo heppinn að fá að kynnast og fylgjast með um 50 ára skeið. Rabbi var sögumaður og sjó- maður af lífi og sál, eignaðist sinn fyrsta bát, Farsæl, sem Gunnar tengdapabbi hans smíðaði í bíl- skúrnum heima. Þetta var ekki stór fleyta, þar sem bílskúrinn leyfði ekki stór- smíði. En í Rabba höndum happa- fleyta eins og allir hans bátar sem síðar komu, það var hart sótt og vel fiskað þótt fleyin væru smá og veður stundum válynd. Á Ísafirði eignuðust Rabbi og Dúa sinn Dúukofa, þar sem þau ólu upp börnin, Kristínu, Gunn- stein og Odd, hamingja, alúð og hlýja flutti inn með fjölskyldunni og settist þar að. Þegar gamall og góður félagi hefur sagt sína síðustu sögu og er farinn í sinn síðasta róður er tími til að gleðjast sem og syrgja geng- inn vin. Takk fyrir allt Rabbi minn. Magnús Guðmundsson. Jón Rafn Oddsson ÞAR SEM FAGMENNSKAN RÆÐUR Blómaverkstæði Binna | Skólavörðustíg 12 | Sími: 5613030 Virðing, reynsla & þjónusta Allan sólarhringinn 571 8222 Svafar: 82o 3939 Hermann: 82o 3938 Ingibjörg: 82o 3937 www.kvedja.is svafar & hermann ✝ Okkar hjartans þakkir fyrir ómetanlega aðstoð og auðsýnda samúð við andlát og útfarir systkinanna, BERGS HELGASONAR bónda, Kálfafelli, Fljótshverfi og HELGU HELGADÓTTUR húsmóður, Hamraborg 32, Kópavogi. Megi guð geyma ykkur öll. Lárus Helgason, Hulda M. Jónsdóttir, Benjamín Baldursson, Sigrún H. Jónsdóttir, Gunnar B. Pálsson, Trausti Jónsson, Anna Björk Magnúsdóttir, Snorri Sævarsson, Helgi Sigurður Einarsson, Mekkin Guðrún Bjarnadóttir, Svala Magnúsdóttir, Magnús Ingólfsson og fjölskyldur. Hjartans þakkir fyrir samúð, kveðjur og hlýhug við andlát og útför okkar elskulegu MARGRÉTAR ERLU FRIÐJÓNSDÓTTUR, Arnarhrauni 9, Hafnarfirði. Sérstakar þakkir til starfsfólks Drafnarhússins í Hafnarfirði og starfsfólks hjúkrunarheimilisins Sólvangs fyrir frábæra umönnun og hlýju. . Þorkell Sigurgeir Júlíusson, Elísa Hjördís Ásgeirsdóttir, Júlíus Már Þorkelsson, Guðlaug Sveinsdóttir, ömmubörn, langömmubörn og langalangömmubörn. Ástkær móðir okkar, ÁSDÍS FRIÐBERTSDÓTTIR frá Súgandafirði, lést 9. júní á hjúkrunar- og dvalarheimilinu Grund. Minningarathöfn verður í Fossvogskapellu þriðjudaginn 16. júní kl. 15.30. Jarðsett verður í Súgandafirði. Jarðarför auglýst síðar. . Harpa, Jón Víðir og Margrét Njálsbörn og aðrir aðstandendur. Við minnumst þín, elsku afi okkar, sem við söknum svo sárt. Þú varst sá allra besti afi sem hægt var að hugsa sér. Þú varst alltaf tilbúinn til að hjálpa og sýndir öllu því sem við tókum okkur fyrir hendur mikinn áhuga. Þú varst ástríkur, dug- legur, skemmtilega þrjóskur og mikill sælkeri sem fannst ekk- ert betra en að fá sér rjóma með vöfflu á meðan við hin fengum okkur vöfflu með rjóma. Takk fyrir allt það sem þú hefur gefið okkur og kennt í gegnum tíðina, við erum ríkari af því að hafa fengið að eiga þig að. Valgarður Agnar Jónsson ✝ ValgarðurAgnar Jóns- son fæddist 9. febrúar 1929. Hann lést 30. maí 2015. Útför hans fór fram 5. júní 2015. Við munum hugsa vel um ömmu og varðveita minningu þína. Hvíldu í friði, elsku afi. Þó sólin nú skíni á grænni grundu er hjarta mitt þungt sem blý, því burt varst þú kall- aður á örskammri stundu í huganum hrannast upp sorgarský. Fyrir mér varst þú ímynd hins göfuga og góða svo fallegur, einlægur og hlýr en örlög þín ráðin – mig setur hljóða við hittumst samt aftur á ný. Megi algóður Guð þína sálu nú geyma gæta að sorgmæddum, græða djúp sár þó kominn sért yfir í aðra heima mun minning þín lifa um ókomin ár. (Höf. ókunnur.) Vala Hrönn og Maríanna.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.