Morgunblaðið - 13.06.2015, Page 38
38 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. JÚNÍ 2015
Söfn • Setur • Sýningar
Sunnudagur 14. júní kl. 14: Ókeypis leiðsögn um I Ein/Einn
I Ein/Einn - Ljósmyndir Valdimars Thorlaciusar í Myndasal
Fólkið í bænum á Veggnum
Bláklædda konan - Ný rannsókn á fornu kumli
Þjóð verður til – Menning og samfélag í 1200 ár grunnsýning
Veraldlegar eigur Þórðar bónda á Torgi
Fjölbreyttir ratleikir fyrir alla fjölskylduna. Safnbúð og kaffihús.
Listasafn Reykjanesbæjar
Huldufley,
skipa- og bátamyndir Kjarvals
„Klaustursaumur og Filmuprjón“
Textíll í höndum kvenna.
Byggðasafn Reykjanesbæjar
Konur í sögum bæjarins. Brot úr
sagnaþáttum Mörtu Valgerðar.
Bátasafn Gríms Karlssonar
6. júní – 23. ágúst
Opið alla daga 12.00-17.00
Aðgangur ókeypis
reykjanesbaer.is/listasafn
ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS
LISTASAFN ÍSLANDS
Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600, www.listasafn.is
Opið daglega kl. 11-17, lokað mánudaga.
SAGA - ÞEGAR MYNDIR TALA 22.5. - 6.9. 2015
LISTAMANNASPJALL sunnudag kl. 14 - Hulda Hákon segir frá verkum sínum og ferli.
SAFNBÚÐ - Listrænar gjafavörur
KAFFISTOFA - Ljúffengar veitingar.
LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR
Laugarnestanga 70, sími 553 2906, www.lso.is
SAMSPIL Sigurjón Ólafsson og Finn Juhl
Hugarflug milli höggmyndar og hönnunar 25. apríl - 30. ágúst 2015
Opið alla daga kl. 14-17, lokað mánudaga.
SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR
Bergstaðastræti 74, sími 561 9616, www.listasafn.is
Í BIRTU DAGANNA Málverk og teikningar Ásgríms Jónssonar, 1.2.-15.9. 2015
Opið þriðjudaga, fimmtudaga og sunnudaga kl. 14-17.
Enginn staður – íslenskt landslag
Björn Árnason, Claudia Hausfeld,
Daniel Reuter, Edda Fransiska Kjarval,
Ingvar Högni Ragnarsson, Katrín
Elvarsdóttir, Pétur Thomsen,
Stuart Richardson
Sýningaropnun
Laugardag 13. júní kl. 15
Þinn staður, okkar umhverfi
við Flensborgarhöfn
Opin vinnustofa.
Opið 12-17, fim. 12-21, lokað þriðjudaga.
www.hafnarborg.is, sími 585 5790
Aðgangur ókeypis
Sýningin Sjónarhorn Ferðalag um íslenskan myndheim fyrr og nú
Geirfuglinn, Jónsbók, kirkjulist, skjöl, samtímalist, alþýðulist,
plötuumslög, ljósmyndir, landakort og vaxmynd
Fræðslurými og skemmtilegt fræðsluefni fyrir alla fjölskylduna
Safnbúð Bækur og gjafavörur í úrvali
Veitingahúsi Kapers Hádegismatur, kaffi og meðlæti
Safnahúsið er hluti af Þjóðminjasafni Íslands
SAFNAHÚSIÐ
Þjóðminjasafn Íslands, Suðurgötu 41, s. 530 2200,
www.thodminjasafn.is • www.facebook.com/thjodminjasafn
Opið daglega frá kl. 10-17.
Hverfisgötu 15, 101 Reykjavík s: 530 2210
www.safnahusid.is Opið daglega frá 10-17
NÝ SÝNING
GEYMILEGIR HLUTIR
Að safna í söguna
Opið kl. 12-17. Lokað mánud.
Verslunin Kraum í anddyri
Garðatorg 1, Garðabær
www.honnunarsafn.is
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Titill sýningarinnar er Endurvarp sem vísar
til þess að hún endurspeglar ferli og áhrif sem
ég hefur unnið með og upplifað að undan-
förnu,“ segir myndlistarkonan Mireya Samper
sem í dag kl. 15 opnar
einkasýninguna Endurvarp
í Listasafninu á Akureyri.
Sýninguna vann Mireya
þegar hún dvaldi um sex
mánaða skeið í Japan undir
lok síðasta árs og byrjun
þessa. „Í raun má segja að
98% af efnivið sýningar-
innar séu fengin frá Japan,“
segir Mireya og vísar þar
m.a. til pappírsins sem hún
notar sem og litanna og
bleksins. „Ég hef sl. áratug þróað nýja tækni
með vax auk þess sem ég nota náttúrulega jap-
anska liti sem hafa allt önnur blæbrigði en litir
á Vesturlöndum. Ég hef lengi verið mjög heill-
uð af japanski list og menningu,“ segir Mireya
og rifjar upp að hún hafi fyrst komið til Japans
þegar henni var boðið að taka þar þátt í
listahátíð 2000 og hefur leið hennar legið þang-
að fjórum sinnum síðan.
„Ég segi stundum að ég hljóti að hafa verið
japönsk í einhverju öðru lífi því ég finn fyrir
mjög sterkri tengingu við menningu Japana
fyrr á öldum, ekki síst edo-tímann sem var
mjög gjöfult tímabil.“
Pappír sem drekkur í sig birtuna
Að sögn Mireyu er hún þó ekki að vinna með
dæmigerð japönsk mótíf í verkum sínum.
„Heldur er ég að vinna með sömu konsept og
ég hef lengi unnið með, sem eru hringrásin, ei-
lífðin, óendanleikinn og innri og ytri kosmós,“
segir Mireya. Meginefniviður Mireyu á sýn-
ingunni er pappír. „Í Japan kynntist ég washi-
pappírnum sem unninn er úr kozo-jurtinni, “
segir Mireya og bendir á að Unesco hafi undir
lok síðasta árs sett washi-pappírinn á
heimsminjaskrá sína, en pappírsgerð Japana
úr kozo-jurtinni er aldagömul. „Pappír á Vest-
urlöndum hrindir frá sér birtunni en washi-
pappírinn virðist drekka hana í sig og umvefja
hana blíðlega. Það er því mjög spennandi að
vinna með þennan pappír,“ segir Mireya og
tekur fram að þar sem washi-pappírinn sé
mjög sterkur geti hún unnið með mjög þunnan
pappír sem bjóði upp á ýmsa skemmtilega
möguleika.
Á sýningunni má sjá innsetningu, tví- og þrí-
víð verk eftir Mireyu ásamt verkum þriggja
japanskra gestalistamanna. „Tónlistarmað-
urinn Tomoo Nagaii hefur samið hljóðverk við
innsetningu mína, sem er „íhugunarrými“, en
sýningargestum býðst að fara inn í rýmið, setj-
ast eða leggjast og gefst þar tækifæri til íhug-
unar við tónlistina,“ segir Mireya og bendir á
að Nagaii muni frumflytja verkið ásamt gjörn-
ingalistakonunni Kana Nakamura á opnuninni
í dag og flytja það nokkrum sinnum í þessum
mánuði, en þess á milli verði upptaka af tón-
listinni leikin. „Loks má nefna að sýnt verður
vídeóverk eftir Higuma Haruo unnið upp úr
samvinnu okkar með sömu innsetningu,“ segir
Mireya og rifjar upp að þau Haruo sýndu
verkið í leikhúsi í Tókýó fyrr á þessu ári.
Aðspurð segir hún verkin á sýningunni
fremur stór þó að þau séu gerð úr pappír. „Í
einu rýminu sýni ég þrjá sjálfstandandi jap-
anska skerma sem ég hef málað báðum megin
á, en stysti skermurinn er tæpir fjórir metrar
og sá lengsti um fimm metrar og 1,8 m á hæð. Í
öðru rýminu sýni ég tíu metra langa mynd auk
þess að sýna minni myndir í stærðinni 70x100
cm og 50x50 cm og skúlptúr. Í þriðja rýminu er
innsetningin sem er 3,7x3,7x2,5 cm,“ segir Mi-
reya og viðurkennir fúslega að flókið mál og
dýrt hafi verið að koma verkunum til Íslands
með flugi frá Japan.
Þess má að lokum geta að sýningin stendur
til 16. ágúst. Hún er opin þriðjudaga til sunnu-
daga milli kl. 10 og 17. Aðgangur er ókeypis.
Allar nánari upplýsingar um verk Mireyu má
finna á vefnum mireya.is.
„Lengi verið heilluð af japanskri list“
Gárur – mantra Verk unnið með blandaðri tækni á japanskan washi pappír á árinu 2015.
Mireya Samper opn-
ar Endurvarp í Lista-
safninu á Akureyri
Mireya
Samper
„Um 400 listamenn víðs vegar að
komu fram eða sýndu verk sín, með
þátttöku 35 þúsund áhorfenda að
frátöldum þeim tugþúsundum
manna sem ætla má að hafi séð
verk Guerrilla girls í miðborginni,“
segir m.a. í tilkynningu frá Listahá-
tíð í Reykjavík. Hátíðinni, sem var
sú 29. í röðinni, lauk 7. júní sl. Þá
voru að baki hátt á níunda tug við-
burða og sýninga á 26 dögum á yfir
30 sýningarstöðum innan Reykja-
víkur og utan.
„Hátíðin var kynnt undir yfir-
skriftinni Fyrri hluti, en Síðari
hluti verður haldinn að ári, á 30.
Listahátíð í Reykjavík 2016. „Höf-
undarverk kvenna voru í forgrunni
á opnunardaginn. Bandarísku að-
gerðarsinnarnir Guerrilla Girls
settu tóninn þegar nýtt verk eftir
þær var afhjúpað á austurhlið Toll-
hússins, þar sem kom fram beitt
gagnrýni þeirra á kynjamismunun í
íslenskum kvikmyndaiðnaði.
25 ný verk frumsýnd
Bandaríski danshópurinn
Bandaloop undir stjórn Ameliu Ru-
dolph tók við og sýndu lóðréttan
dans á framhlið Aðalstrætis 6 fyrir
4.000 áhorfendur. Verk hinnar
margritskoðuðu myndlistarkonu
Dorothy Iannone prýddi veggi Gall-
ery Gamma og nýja dansverkið
Svartar fjaðrir eftir Sigríði Soffíu
Níelsdóttur var frumflutt að kvöldi
opnunardagsins. Næstu þrjár vikur
tók við margvísleg listupplifun á
sviði tónlistar, myndlistar, dans,
söngs og matreiðslu. Fimmtán verk
voru frumflutt á Íslandi á Listahá-
tíð í ár og tuttugu og fimm ný verk
voru frumflutt eða frumsýnd, þar
af fjögur sem unnin voru sér-
staklega að beiðni hátíðarinnar.
Formlegri dagskrá Listahátíðar
er nú lokið en fjölmargar myndlist-
arsýningar standa yfir fram eftir
sumri.“
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Lóðrétt Bandaloop dansaði framan á
gamla Morgunblaðshúsinu.
35 þúsund áhorfendur á Listahátíð í ár
Altósaxófónleikarinn og tón-
skáldið Ornette Coleman, einn af
risum núdjassins, er látinn, 85 ára
að aldri. Banamein hans var
hjartaáfall. Coleman var einn hug-
myndaríkasti tónlistarmaður nú-
djassins, hóf feril sinn á sjötta ára-
tugnum og var upphafsmaður hins
sk. frjálsa djass (e. free jazz).
Plata hans The Shape of Jazz to
Come frá árinu 1959 þykir með
áhrifamestu djassplötum allra
tíma. Coleman er eignað að hafa
brotið niður hið hefðbundna djass-
form og innleitt frjálsara flæði og
tjáningu, ásamt starfsbróður sín-
um John Coltrane. Coleman hlaut
á ferli sínum Grammy-verðlaun
fyrir framlag sitt til tónlistar og
einnig Pulitzer-verðlaunin fyrir
tónlist.
Ornette Coleman látinn
AFP
Frumkvöðull Ornette Coleman.