Morgunblaðið - 13.06.2015, Síða 44
LAUGARDAGUR 13. JÚNÍ 164. DAGUR ÁRSINS 2015
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í LAUSASÖLU 790 ÁSKRIFT 4995 HELGARÁSKRIFT 3120 PDF Á MBL.IS 4420 I-PAD ÁSKRIFT 4420
VEÐUR » 8 www.mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. Í kvíðakasti í Bláa lóninu
2. Brunar í brúðkaupið eftir …
3. Læstu einhverfa stúlku bak við …
4. Týr óhaffær en gert við Þór
Önnur hljómplata hljómsveitar-
innar Of Monsters and Men, Beneath
the Skin, náði 1. sæti á metsölulista
hljómplatna á vef iTunes í fyrradag.
Hljómsveitin lék í tveimur af vinsæl-
ustu sjónvarpsþáttum Bandaríkjanna
í vikunni, Good Morning America á
ABC og The Tonight Show, spjallþætti
Jimmy Fallon, og flutti lagið „Cryst-
als“ sem finna má á plötunni. Be-
neath the Skin er komin út um allan
heim og verður sveitin á tónleika-
ferðalagi um heiminn fram að 29.
nóvember.
Beneath the Skin er gagnrýnd í
Morgunblaðinu í dag og hlýtur fjórar
stjörnur af fimm mögulegum. Í gagn-
rýninni segir m.a.: „Það er ákveðið
minni í popptónlistinni að önnur
plata sveitar sem hefur slegið ófor-
varandis í gegn er iðulega þyngri,
dýpri, dekkri, „listrænni“ en sú sem á
undan kom. OMAM fetar svo sannar-
lega þá slóð en á meðan aðrir klauf-
ast í slíku á tilgerðarlegan máta leys-
ir sveitin verkefnið á einkar
sannferðugan máta.“ »41
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Plata OMAM náði
fyrsta sæti á iTunes
Kvartett víbrafónleikarans Reynis
Sigurðssonar leikur á tónleikum sum-
ardjasstónleikaraðar veitingahússins
Jómfrúarinnar við Lækjargötu í dag
kl. 15 á Jómfrúartorgi. Reynir er
fremsti djassleikari þjóðarinnar á hið
sjaldgæfa hljóðfæri, víbrafón, og
skipa með honum kvartettinn Ásgeir
J. Ásgeirsson á gítar,
Gunnar Hrafnsson
á kontrabassa, Jó-
hann Hjörleifsson á
trommur og hugs-
anlega bætist
leynigestur í
hópinn.
Kvartett Reynis á
Jómfrúartorgi
FÓLK Í FRÉTTUM
VEÐURÍÞRÓTTIR
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðlæg átt 3-8 og víða bjartviðri, norðvestan 8-13 norðaustantil
og rigning með köflum. Hiti 2 til 12 stig, mildast sunnanlands.
Á sunnudag Hægviðri og víða léttskýjað. Hiti 8 til 15 stig, hlýjast suðvestantil.
Á mánudag Suðaustan 8-15 m/s um landið sunnan- og vestanvert með rigningu eða
súld og hiti 8 til 13 stig. Hægari norðaustantil og skýjað með köflum, hiti 10 til 16 stig.
Í grein dagsins í dagskrárliðnum Við-
horfi á laugardegi veltir Kristján
Jónsson því fyrir sér hvers vegna
jafntefli séu valmöguleiki í íþróttum.
Leggur hann jafnframt til að jafntefli
verði lögð niður í íþróttum og færir
fyrir því rök. Þessi valmöguleiki hljóti
að ganga gegn þeirri hugmynd að lið
og einstaklingar reyni með sér til að
fá úr því skorið hvor sé betri. »4
Lagt til að jafntefli
verði lögð niður
Fyrirliðinn Aron Einar Gunn-
arsson segir að leikmenn Ís-
lands megi svo sannarlega
vera stoltir eftir frækilegan
sigur á Tékkum í gærkvöldi.
„Auðvitað verðum við að
láta okkur dreyma, en við
höldum okkur samt á
jörðinni,“ sagði Aron í
samtali við Morgun-
blaðið, en Ísland er
nú á toppi riðilsins.
»1
„Höfðum trú á
sjálfum okkur“
Takist karlalandsliðinu að sigra
Svartfjallaland á morgun kemst það í
hærri styrkleikaflokk fyrir lokakeppni
EM í Póllandi. Þar með myndu jafn-
framt aukast líkurnar á því að liðið
kæmist alla
leið á Ól-
ympíuleik-
ana í Ríó.
Hjá kvenna-
landsliðinu er
málið einfald-
ara. Það þarf
að vinna upp
níu marka for-
skot Svartfjallalands
í dag til að komast á
HM. »4
Sigur myndi opna betur
á möguleikann á Ríó
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Aðalheiður Kjartansdóttir í Héraðs-
sambandi Þingeyinga sigraði í stíg-
vélakasti á Landsmóti UMFÍ 50+ á
Húsavík í fyrra og ætlar að reyna að
verja titilinn á Blönduósi, þar sem
Landsmótið verður 26.-28. júní næst-
komandi.
Stígvélakast var fyrst keppnis-
grein í fyrra og þá átti húsfreyjan að
Staðarfelli í Kinn og yfirmatráðs-
kona í Stórutjarnaskóla sviðið.
„Bergur Elías Ágústsson, fyrrver-
andi bæjarstjóri á Húsavík, tók að
sér að starfa með Landsmótsnefnd-
inni með því skilyrði að keppt yrði í
stígvélakasti og hann fengi að
stjórna því,“ rifjar Aðalheiður upp.
„Hann fékk það og þar sem ég var
fyrst í stafrófinu kastaði ég fyrst.
„Heimsmet,“ kallaði hann eftir fyrsta
kastið og þegar ég náði lengsta kast-
inu gall í honum: „Heimsmetið bætt.“
Hann þreyttist ekki á því að segja að
ég væri fyrsti heimsmethafinn í
greininni, því þetta var fyrsta löglega
keppnin í stígvélakasti.“
Hvetur fólk til þátttöku
Fyrir mótið æfði Aðalheiður sig
með því að kasta stígvéli með lakkr-
ískonfektsmynstri og greindi sam-
viskusamlega frá æfingunum í máli
og myndum á Facebook, þar sem
hún hvatti sveitunga og aðra til þess
að keppa á Landsmótinu. Nú er hún í
svipaðri stöðu í nefnd hjá HSÞ, sem
hefur það verkefni að hvetja fólk,
sem ekki er íþróttafólk, til þess að
taka þátt í Landsmótinu. „Ég bíð
bara eftir erindisbréfinu og hver veit
nema ég haldi stígvélakastsæfingu
fyrir áhugasama í sveitinni.“
Aðalheiður hefur ekki verið mikið í
íþróttum. „Ég keppti einu sinni á
skíðum á Akureyri, en annars hef ég
lítið verið í hefðbundnum íþróttum.
Hef samt gaman af því að hreyfa
mig, fara út að ganga og synda, og
það var ótrúleg upplifun að taka þátt
í Landsmótinu, ekki síst vegna þess
að ég sigraði, þó að ég væri í keppni
við harðar íþróttakonur.“
Aukaverðlaun eru veitt fyrir bros-
legustu hljóð keppenda í stígvéla-
kasti. „Bergur Elías hvatti okkur
stöðugt og sagði okkur að öskra með
kastinu því þá heyrðust önnur búk-
hljóð ekki eins vel,“ segir hún. „Þær
eldri voru mjög góðar í því.“
Aðalheiður segist ekki hafa keppt í
íþróttaskóm heldur verið í stígvélum
dótturinnar með lakkrískonfekts-
mynstrinu og það hafi gert gæfu-
muninn. „Bergur Elías keypti
keppnisstígvélið í Húsasmiðjunni og
spreyjaði það appelsínugult svo það
fyndist uppi í fjalli eftir köstin. Við
sjáum til hvað gerist á Blönduósi en
ég mæti aftur til leiks í sömu stígvél-
unum.“
Stígvél á flugi í sveitinni
Aðalheiður ætl-
ar að verja titilinn
á Landsmótinu
Meistari Aðalheiður Kjartansdóttir í Héraðssambandi Þingeyinga æfir sig að Staðarfelli fyrir keppnina.
Skráning stendur yfir á 5. Lands-
mót UMFÍ 50+, sem verður haldið
á Blönduósi síðustu helgina í júní
eða 26. til 28. júní næstkomandi.
Auk keppni í ýmsum greinum verð-
ur mikið lagt upp úr skemmti-
dagskrá í stóru tjaldi á kvöldin og
boðið verður upp á heilsufarsmæl-
ingar og fyrirlestra um heilbrigðan
lífsstíl. „Við leggjum áherslu á fé-
lagslega þáttinn,“ segir Ómar
Bragi Stefánsson, framkvæmda-
stjóri mótsins, en hann gerir ráð
fyrir um 300 til 500 keppendum.
Ómar hefur stýrt öllum Lands-
mótum og unglingalandsmótum
UMFÍ frá 2004 og nú bætist 50+-
mótið við. Hann segir að fólk eldra
en 50 ára sé farið að huga meira
að heilsunni en áður og því sé
mótið kærkomin viðbót. Boccia,
sund og frjálsar séu hefðbundnar
greinar og starfsíþróttirnar veki
alltaf athygli, en það sé fyrst og
fremst samveran, gleðin og ánægj-
an sem skipti máli. Allir 50 ára og
eldri geta verið með, burtséð frá
því hvort þeir eru í félagi eða ekki.
Áhersla á félagslega þáttinn
LANDSMÓT UMFÍ 50+ Á BLÖNDUÓSI