Morgunblaðið - 26.06.2015, Blaðsíða 1
F Ö S T U D A G U R 2 6. J Ú N Í 2 0 1 5
Stofnað 1913 148. tölublað 103. árgangur
ÓVÆTTAFÖR
VÖRÐUÐ
DYGGÐUM
VETTVANGUR
FYRIR
NÝSKÖPUN
EDDA GARÐARS-
DÓTTIR SKRIFAR
UM HM KVENNA
SUMARTÓNLEIKAR Í SKÁLHOLTI 31 8 LIÐA ÚRSLIT ÍÞRÓTTIRBÆKUR FYRIR DRENGI 10
Bóndi Hagnaður af ræktuninni er horfinn.
Útlit er fyrir 13-15% verðlækkun
á minkaskinnum á loðskinnaupp-
boði Kopenhagen Fur sem lýkur í
Danmörku í dag. Yfir 50 þúsund ís-
lensk skinn eru þar boðin til sölu.
„Þetta er nokkuð í samræmi við
það sem menn voru búnir að spá,“
segir Björn Halldórsson, formaður
Sambands íslenskra loðdýrabænda.
Hann segir framboðið mikið en við
það bætist nýir tollar á innflutt
skinn til Kína og hækkun á gengi
Bandaríkjadals. Flest framboðin
skinn seljast.
Þótt meðalverðið lækki umtals-
vert er mikill munur á verðþróun
eftir gæðum skinna. Íslenskir
minkabændur eru í efsta laginu og
koma því betur út úr uppboðinu en
meðaltalið. Eftir mikið verðfall á
síðasta sölutímabili hækkaði verðið
nokkuð í upphafi ársins. Sú hækk-
un gengur nú til baka. Björn telur
að verðið sé nú nálægt fram-
leiðslukostnaði hér. helgi@mbl.is
Söluverð minka-
skinna komið niður í
framleiðslukostnað
Hjartað vill halda friðinn
» Samtökin Hjartað í Vatns-
mýri eru ánægð með niður-
stöðu Rögnunefndar.
» Friðrik Pálsson segir mikil-
vægt að flugvöllurinn fái að
vera í friði, þar til önnur lausn
verði fundin og byggð.
Helgi Bjarnason
Agnes Bragadóttir
Einkaflugmenn telja nýjan innan-
landsflugvöll í Hvassahrauni glap-
ræði gagnvart flugöryggi. Yfirkenn-
ari hjá Flugskóla Íslands telur sótt
að einkafluginu og að flugkennsla
leggist af hér á landi ef Reykjavík-
urflugvöllur verði lagður niður.
Í niðurstöðum stýrihóps ríkis,
Reykjavíkurborgar og Icelandair
kemur fram það álit að Hvassa-
hraun sé besti kosturinn fyrir nýjan
innanlandsflugvöll. Nefndinni var
falið að kanna aðra kosti en
Reykjavíkurflugvöll í Vatnsmýri.
Áætlað er að stofnkostnaður nýs
flugvallar sé um 22 milljarðar
króna.
Stýrihópurinn leggur til að flug-
vallarskilyrði í Hvassahrauni verði
fullkönnuð sem og rekstrarskilyrði.
Samhliða telur stýrihópurinn nauð-
synlegt að ná samkomulagi um að
tryggja rekstraröryggi Reykja-
víkurflugvallar í Vatnsmýri á með-
an unnið sé að framkvæmdinni.
Reynir Einarsson, yfirkennari
hjá Flugskóla Íslands, segir að
flugvöllur í hrauni sé hættulegur.
Ryðja þurfi gríðarstór öryggis-
svæði, sem hann telur að gangi illa
upp.
Glapræði gagnvart öryggi
Einkaflugmenn og flugskólar ósáttir við tillögur stýrihóps um flutning flugsins
frá Reykjavík og út í Hvassahraun Kostnaður áætlaður 22 milljarðar króna
MNefndin valdi Hvassahraun »4
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Ungt fólk Langtímaatvinnuleysi
hefur minnkað hratt hjá ungu fólki.
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Langtímaatvinnulausu fólki á aldr-
inum 16-24 ára hefur fækkað jafnt og
þétt og hraðar en í öðrum aldurs-
hópum á síðustu árum. Ótti um að
hér myndi koma fram svokölluð
„týnd kynslóð“ sem ekki næði að fóta
sig á vinnumarkaði í kjölfar efna-
hagshruns, líkt og gerst hefur víða í
löndum þar sem efnahagskreppa
hefur skollið á, reyndist óþarfur. Er
það ekki síst sértækum vinnumark-
aðsaðgerðum Vinnumálastofnunar
að þakka að mati Tryggva Haralds-
sonar, sérfræðings hjá stofnuninni.
Enn eru þó á skrá hjá Vinnumála-
stofnun 109 einstaklingar í þessum
aldurshópi sem hafa verið atvinnu-
lausir í ár eða lengur. Í apríl 2010,
þegar langtímaatvinnuleysi var mest
á Íslandi, höfðu 518 í aldurshópnum
verið án atvinnu í ár eða lengur. „Það
verður alltaf hópur sem þarf á ein-
staklingsaðstoð að halda. Þegar við
hættum með Atvinnutorgið hafði
minnkað mest í yngsta aldurshópn-
um, því við sinntum honum mest,“
segir Tryggvi. »18
Kynslóð sem týndist ekki
Aðgerðir stuðluðu að betra atvinnuástandi ungs fólks
Skemmtiferðaskipið Splendida stoppaði í tíu
tíma við Skarfabakka í gær. Um er að ræða
stærsta skemmtiferðaskip sumarsins, en það er
um 138 þúsund brúttólestir að stærð, 333 metrar
á lengd og 38 metra breitt. Að sögn Hildar Kar-
enar Ragnarsdóttur í skipadeild Iceland Travel
voru farþegar um 3.500, þar af fóru 800 manns
Gullna hringinn. Skipið kemur aftur til Reykja-
víkur 21. júlí næstkomandi. brynja@mbl.is
Um 800 af 3.500 farþegum fóru Gullna hringinn
Morgunblaðið/Eggert
Stærsta skemmtiferðaskip sumarsins lét úr höfn í Reykjavík eftir fyrri heimsókn sína
Fötluð börn í
Klettaskóla í
Reykjavík munu
ekki hafa aðgang
að þjónustu á frí-
stundaheimil-
unum Gufuhlíð,
Öskju og Garði í
tvær vikur þetta
sumarið. Meiri-
hluti skóla- og
frístundasviðs
borgarinnar vísaði frá tillögu
minnihlutans um að ráðstafanir
yrðu gerðar til að hafa frístunda-
heimilin opin fyrir fötluð börn. »9
Frístund fyrir fötluð
börn lokuð í 2 vikur
Við skóflustungu
fyrir Klettaskóla.
Konur eru í miklum minnihluta
þeirra sem fylla hóp leyfishafa til
leigubifreiðaaksturs. samkvæmt
gögnum sem Morgunblaðið hefur
undir höndum. Af 637 leyfum sem út-
gefin eru í landinu eru aðeins 32 á
höndum kvenna. Sömu gögn sýna að
0,8% leyfishafa eru af erlendum upp-
runa. Lögfræðingur bendir á for-
dæmi frá Írlandi þar sem úthlut-
unarreglum var breytt og þær
útvíkkaðar til þess að koma í veg fyrir
óbeina mismunun gagnvart minni-
hlutahópum. Þar í landi taldi yfirrétt-
ur að það kerfi sem við lýði var í land-
inu árið 2000 ívilnaði með ólögmætum
hætti írskum ríkisborgurum og
krafðist rétturinn úrbóta á því.
Núverandi kerfi byggist á því að
þeir sem lengsta akstursreynslu hafi
njóti forgangs við úthlutun leyfa sem
losni, en leigubifreiðastöðvar halda
utan um skráningu reynslu þeirra
sem sinna forfallaakstri núverandi
leyfishafa. Þá er það í höndum núver-
andi leyfishafa að velja þá sem sinna
forfallaakstri og þar með þá sem
mögulega geta aflað sér tilskilinnar
akstursreynslu sem er forsenda um-
sóknar um akstursleyfi. »16
5% leyfishafa leigu-
bifreiða eru konur