Morgunblaðið - 26.06.2015, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. JÚNÍ 2015
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Þórunn Kristjánsdóttir
thorunn@mbl.is
„Sýnin ættu að vera heil og niður-
staðan á greiningunni því áreiðanleg.
Við vinnum í því að greina sýnin, en
þau voru komin upp í níu þúsund og
meirihlutinn af þeim er enn óunn-
inn,“ segir Óskar Reykdalsson,
framkvæmdastjóri rannsóknarsviðs
á Landspítalanum, spurður um upp-
söfnuð sýni eftir verkfall Bandalags
háskólamanna.
Öll sýnin verða rannsökuð þrátt
fyrir að sum þeirra séu ónýt í þeim
skilningi að einstaklingurin hafi í
sumum tilfellum farið í aðra blóð-
prufu í millitíðinni og því sé minni
þörf á að vinna sýnin. Of mikil vinna
felist í því að kanna hvort þarft sé að
greina öll sýnin og því sé ekki tekin
nein áhætta, að sögn Óskars. Hann
segir mikið álag vera á starfsfólkinu
á deildunum, sem vinni nú hörðum
höndum. Fyrir liggur að mikla auka-
vinnu þarf til að vinna upp greiningu
á sýnunum. Sumarfrí starfsfólks set-
ur einnig strik í reikninginn, sem og
að fleiri sýni berast núna þar sem
fólk hefur áttað sig á að verkfallinu
er lokið. Ekki liggur fyrir hvenær
greiningu á sýnunum verður lokið né
hversu mikill kostnaðurinn verður
vegna aukavinnu starfsfólks. Fram-
kvæmdastjórn Landspítalans vinnur
að því að reikna út hvaða upphæð
þurfi til að vinna á uppsöfnuðum
vanda spítalans, og þá hvaða upphæð
þurfi er lýtur sérstaklega að rann-
sóknum vegna verkfallanna.
Sumarfrí og mikið álag
Á Sjúkrahúsinu á Akureyri hef-
ur gengið sæmilega að rannsaka sýn-
in. Þar voru eingöngu tekin sýni sem
bráðnauðsynlega þurfti og söfnuðust
því ekki upp jafn mörg sýni og á
Landspítalanum. Ekki fékkst upp-
gefið hversu mörg þau voru. Lítill
hluti af þeim sýnum sem voru aðsend
eyðilagðist. „Okkur gengur ágætlega
en þetta er mjög mikið álag og fólk
fer heim alveg dauðþreytt. Við reyn-
um að vinna eins og við getum en
fólk tekur núna sumarfrí, sem hægir
aftur á öllu,“ segir Guðlaug Ísaks-
dóttir, forstöðulífeindafræðingur á
Sjúkrahúsinu á Akureyri, og bætir
við að lög á verkfallið ýti ekki á að
fólk taki aukavinnu.
Öll sýnin heil og í rannsókn
Öll sýnin sem bíða greiningar á Landspítalanum ættu að vera heil og niður-
staða áreiðanleg, að sögn læknis á rannsóknardeild Úrvinnslu miðar hægt
Morgunblaðið/Golli
Greiningarvinna Mikil aukavinna bíður svo að unnt sé að greina öll sýnin.
Benedikt Bóas
benedikt@mbl.is
Íbúar í Norðlingaholti hafa ítrekað
kvartað við Reykjavíkurborg vegna
frágangs á byggingarlóð í hverfinu,
sem er í eigu Guðmundar Kristins-
sonar múrarameistara. Lóðin er full
af dóti sem til fellur við byggingar-
vinnu og þykir hún spennandi leik-
svæði krakka í hverfinu.
Guðmundi hefur verið hótað dag-
sektum í nokkur ár, nú síðast í októ-
ber 2014, en hann á að gefa borginni
svar innan skamms hvað hann ætli
að gera varðandi fráganginn á lóð-
inni.
„Ég var að klára verkefni á Grens-
ásvegi og flutti dót á þessa lóð 2008,
meðal annars byggingarkrana,
vinnuskúr, sem er þarna enn,
steypumót og annað sem tengist
byggingarvinnu. Ég girti svæðið af
með girðingu en ári síðar var búið að
eyðileggja girðingar, róta í öllum
haugum og svo komu einhverjir
fingralangir og stálu rúmlega 200
stálstoðum upp á margar milljónir,“
segir Guðmundur.
Börnin koma og fara
Hann segist margsinnis hafa tekið
til á svæðinu, sett girðingarnar upp á
ný og hent rusli. Allt hafi hins vegar
verið eyðilagt og sagan í raun endur-
tekið sig síðan byggingardótið kom
fyrst á lóðina 2008.
„Ég negldi fyrir vinnuskúrinn því
það var búið að brjóta allt og bramla
inni í honum. Hann var líka tæmdur
af dóti sem ég átti þarna inni.
Börnin í hverfinu leika sér á svæð-
inu, fara þegar ég kem og koma þeg-
ar ég fer.“
Hann bendir á að ekki sé allt rusl á
lóðinni hans rusl.
„Verktaki sem gerði göngustíga í
hverfinu notaði lóðina sem rusla-
kistu. Ég kvartaði yfir hans fram-
göngu. Eftir stendur dótið hjá mér
og ég er að bíða eftir úrræði frá
Kópavogsbæ; um leið og ég fæ lóð
þar flyt ég þetta þangað. Það verður
vonandi innan mánaðar.“
Hann er ekki ánægður með
Hverfafélag Norðlingaholts, sem
hafi „hamast í sér“ og hvatt sig til að
fjarlægja dótið af svæðinu. „Ég hef
bent á að það þurfi eitthvert úrræði
fyrir börnin í hverfinu þar sem þau
geta leikið sér á stað sem er ekki
byggingarsvæði. Það þýðir ekkert að
benda bara á mig.
Hverfafélagið hefur ekki staðið sig
í málinu, það hefur ekki herjað á
borgina að leysa leikvanda hverfisins
um að börnin fái almennilegt leik-
svæði. Það er nefnilega stórhættu-
legt að leika sér á byggingarlóð,“
segir Guðmundur, en þess má geta
að einn stærsti leikvöllur borgarinn-
ar er við skólann í hverfinu.
Allir í fríi hjá borginni
Reykjavíkurborg gat ekki svarað
fyrirspurn Morgunblaðsins. Þeir hjá
skilmálaeftirliti hjá byggingarfull-
trúa borgarinnar voru allir í fríi og
enginn gat svarað spurningum
blaðsins um lóðina, dagsektirnar og
framhaldið.
„Hættulegt að leika sér á byggingarlóð“
Morgunblaðið/Júlíus
Leikstaður Byggingarlóðin í Norðlingaholti hefur staðið svona síðan 2008.
Byggingarlóð í Norðlingaholti þyrnir í augum íbúa Eigandanum ítrekað hótað dagsektum en býst
við að fjarlægja dót á lóðinni innan mánaðar Þjófar hafa stolið efni af lóðinni fyrir margar milljónir
Eldfljótir með ERGO sigraði í A-flokki í
WOW-hjólreiðakeppninni með því að ljúka
keppni á 38 klukkustundum og 43 mínútum.
Fyrsta liðið í B-flokki, Örninn Trek, kom í
mark á 36 klukkustundum og 51 mínútu.
Bæði liðin héldu 35-36 km/klst. meðalhraða
yfir keppnina.
Matthias Eberg hélt góðri forystu megnið
af einstaklingskeppninni, en von var á honum
í mark seint í gærkvöldi. Þá var alllangt í
næsta mann á eftir honum, Eirík Inga Jó-
hannsson. brynja@mbl.is
Morgunblaðið/Þórður
Meðalhraðinn yfir 35 kílómetrar á klukkustund
Stúlkan sem lést
í bílveltu í
Seyðisfirði seint
á þriðjudags-
kvöld hét Harpa
Sigtryggsdóttir.
Hún var á tutt-
ugasta og fyrsta
aldursári og bú-
sett á Seyðisfirði.
Vinkona hennar sem var með henni
í bílnum liggur enn á gjörgæslu-
deild Landspítalans og er haldið
sofandi í öndunarvél. Bænastund
var í Seyðisfjarðarkirkju í fyrra-
kvöld.
Lést í bílslysinu
í Seyðisfirði
Bið eftir nýjum tímum hjá embætti
sýslumannsins á höfuðborgarsvæð-
inu er fram á haust en embættið
getur ekki sagt fyrir um hvenær
nýjum skjölum verður þinglýst.
Eldri skjölum er þinglýst eftir
þeirri röð sem þau hafa borist en á
vefsíðu sýslumanns er uppfært dag-
lega hvaða skjöl hafa verið yfirfar-
in af embættinu.
Þórólfur Halldórsson, sýslumað-
urinn á höfuðborgarsvæðinu, segir
að vinnslutími þinglýsinga fyrir
verkfall hafi almennt verið þrír
dagar en síðustu óþinglýstu skjöl
sem byrja þurfti á þegar verkfalli
lauk hafi verið móttekin 30. mars.
Morgunblaðið/Eggert
Mál Mörg mál hafa safnast upp hjá sýslu-
manni vegna verkfalls lögfræðinga.
Sýslumaðurinn á
lausan tíma í haust
Landssamband smábátasjómanna
(LSS) fékk þau svör í forsætisráðu-
neytinu að Sigmundur Davíð Gunn-
laugsson sæi sér ekki fært að verða
við beiðni um fund, hvorki í þessari
viku né þeirri næstu. Vildi LSS
ræða breytingar á reglugerð um
makrílveiðar. „Það eru gríðarleg
vonbrigði þar sem því verður vart
trúað að hann [forsætisráðherra]
leggi blessun sína yfir slíka emb-
ættisfærslu sem hér hefur átt sér
stað,“ segir m.a. á vef LSS um svör
forsætisráðuneytisins.
LSS fær ekki fund