Morgunblaðið - 26.06.2015, Síða 4
SVIÐSLJÓS
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Rögnunefndin svokallaða, stýrihópur
ríkis, Reykjavíkurborgar og Icelanda-
ir, skilaði skýrslu sinni um valkosti
hvað varðar nýjan innanlandsflugvöll
á höfuðborgarsvæðinu í gær. Telur
nefndin Hvassahraun vera besta kost-
inn, en það svæði liggur á mörkum
Hafnarfjarðar og Voga á Vatnsleysu-
strönd.
Í samkomulagi, sem gert var í októ-
ber 2013 og starf stýrihópsins byggð-
ist á, segir að aðilar séu sammála um
að fullkanna aðra kosti til rekstrar
innanlandsflugs en framtíðarflugvöll í
Vatnsmýri. Þeir séu einnig sammála
um að staðsetning nýs flugvallar á
höfuðborgarsvæðinu sé fyrsti kostur.
Flugvallarkostirnir, sem voru til
skoðunar, eru Bessastaðanes, Hólms-
heiði, Hvassahraun, Löngusker og
breyttar útfærslur flugvallar í Vatns-
mýri.
Stýrihópurinn segir m.a. í skýrslu
sinni um Hvassahraun: „Í Hvassa-
hrauni er landrými gott og eru þróun-
armöguleikar þar heilt á litið betri en
á öðrum flugvallarstæðum.
Áætlaður stofnkostnaður flugvallar
og bygginga sem tækju við allri starf-
semi Reykjavíkurflugvallar er um 22
milljarðar króna.“ Þar kemur einnig
fram að metinn nothæfisstuðull sé
96,4-97,2% fyrir tvær flugbrautir en
99,6% fyrir þrjár.
Tími sjúkraflutninga lengist
Fram kemur að búast megi við því
að verði Hvassahraun fyrir valinu
muni tími sjúkraflutninga á Landspít-
ala með sjúkraflugi lengjast um 8,5-
12,5 mínútur vegna lengri flug- og
aksturstíma.
Í umsögn hópsins segir að allir
kostirnir, sem voru skoðaðir, gætu
rúmað þá starfsemi sem nú er í Vatns-
mýri. Hólmsheiði hafi komið lakast út
en Hvassahraun komi vel út í sam-
anburði við aðra flugvallarkosti þegar
litið sé til þátta eins og veðurfars,
rýmis og hindrana, kostnaðar og
umhverfismála. Auk þess komi
Hvassahraun best út þegar horft sé
til möguleika flugvallarstæða til að
taka við flugumferð eða starfsemi
umfram það sem nú sé í Vatnsmýri.
„Hvassahraun er því að mati stýri-
hópsins sá flugvallarkostur sem hefur
mesta þróunarmöguleika til framtíð-
ar, borið saman við aðra flugvallar-
kosti. Þó eru ýmis atriði sem skoða
þarf betur, þar á meðal
mögulegar mótvægisaðgerðir
vegna sjúkraflutninga,“ segir orðrétt
í umsögninni.
Rekstraröryggi verði tryggt
Í tillögum hópsins segir m.a.:
„Stýrihópurinn leggur til að aðilar
samkomulagsins komi sér saman um
næstu skref í málinu á grundvelli
þeirra gagna sem hann hefur aflað.
Flugvallarskilyrði í Hvassahrauni
verði fullkönnuð með nauðsynlegum
rannsóknum næsta vetur auk þess
sem rekstrarskilyrði mismunandi út-
færslu og hönnunar verði metin. Ná-
ist samstaða um það leggur stýrihóp-
urinn til að stofnað verði sameiginlegt
undirbúningsfélag í þessu skyni.
Samhliða telur stýrihópurinn nauð-
synlegt að náð verði samkomulagi um
að rekstraröryggi Reykjavíkurflug-
vallar í Vatnsmýri verði tryggt á með-
an nauðsynlegur undirbúningur og
eftir atvikum framkvæmdir fara
fram. Að sama skapi þarf að eyða
óvissu um framtíð æfinga-, kennslu-
og einkaflugs.“
Nefndin valdi Hvassahraun
Rögnunefndin telur að allir flugvallarkostirnir geti rúmað þá starfsemi sem er í Vatnsmýri
Hólmsheiði sögð lakasti kosturinn vegna veðurfars, nálægðar við fjöll og hæðar yfir sjávarmáli
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. JÚNÍ 2015
„Við sögðum fólki að vega og meta
stöðuna og kjósa eftir eigin sannfær-
ingu,“ sagði Ólafur G. Skúlason, for-
maður Félags hjúkrunarfræðinga, en
í gær voru haldnir tveir kynningar-
fundir fyrir félagsmenn um nýundir-
ritaða kjarasamninga félagsins við
ríkið. Vel var mætt á fundina, sem um
500 hjúkrunarfræðingar sátu.
Ólafur sagðist bæði hafa heyrt já-
kvæðar og neikvæðar raddir um
samninginn á síðustu dögum. Ekki
hefði þó verið spurt um afstöðu fólks á
fundunum heldur hefði markmið
þeirra verið að kynna efni kjarasamn-
inganna. Enn væri þungt hljóð í fólki,
margir væru ósáttir við framgöngu
ríkisins og lög á verkfall stéttarinnar.
Þá hefðu margir sagt upp og vissu
ekki hvert framhaldið yrði.
Á fundinum var farið yfir álitamál
um afleiðingar þess að kjarasamning-
urinn yrði felldur í atkvæðagreiðsl-
unni, sem stendur yfir til 15. júlí nk.
Ólafur ítrekaði þá afstöðu félagsins að
sest yrði aftur við samningaborðið,
yrði samningurinn felldur. Hins veg-
ar er afstaða ríkisins sú að gerðar-
dómur yrði skipaður til að ákveða
kaup og kjör, í samræmi við orðalag í
lögum um verkfall hjúkrunarfræð-
inga og annarra.
Morgunblaðið/Eggert
Kynning Þungt var yfir hjúkrunarfræðingum á kynningarfundi í gær.
Heyra jákvæðar og
neikvæðar raddir
Um 500 hjúkrunarfræðingar funduðu
Í umsögn um Reykjavíkur-
flugvöll kemur fram að nefnd-
in skoðaði fjórar breyttar út-
færslur af legu flugbrauta í
Vatnsmýri með sömu rýmis-
og kostnaðarforsendum og á
nýjum flugvallarstæðum.
Áætlaður stofnkostnaður
við nýjar flugbrautir, athafna-
svæði og byggingar er sagður
vera á bilinu 19-32 milljarðar
króna.
Metinn nothæfisstuðull er
sagður 96,8-97,8% fyrir tvær
flugbrautir í breyttum út-
færslum en 99,7% fyrir þrjár
flugbrautir.
Umhverfisþættir til umfjöll-
unar yrðu einkum að því er
varðar lífríki á svæði sem nýt-
ur hverfisverndar, svo og
hljóðvist. Stýrihópurinn segir
þróunarmöguleika takmarkaða
vegna nálægðar við byggð og
aðdýpis.
Kostar 19-32
milljarða
REYKJAVÍKURFLUGVÖLLUR
Flugvöllur
Grunnkort/Loftmyndir ehf.
Hvassahraun
Löngusker
Bessastaðanes
Hólmsheiði
Vatnsmýrin
Morgunblaðið/Þórður
Rögnunefndin Ragna Árnadóttir, formaður stýrihópsins, kynnir skýrsluna. Aðrir í hópnum voru Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir fyrir ríkið, Dagur B. Eggertsson fyrir borgina og Matthías Sveinbjörnsson frá Icelandair.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Hjartað í Vatnsmýri er ánægt með
niðurstöðu stýrihóps um málefni
Reykjavíkurflugvallar, að sögn Frið-
riks Pálssonar, annars af tveimur
formönnum samtakanna.
Hjartað í Vatnsmýri er grasrót-
arsamtök sem voru stofnuð 8. júlí
2013 í þeim tilgangi að tryggja lands-
mönnum öllum óskertar flug-
samgöngur í Vatnsmýri. „Við urðum
til sem grasrótarsamtök þegar fyrir
lá að Reykjavíkurborg ætlaði að loka
flugvellinum í reynd á árinu 2016.
Við fórum í undirskriftasöfnun sem
skilaði tæplega 70 þúsund undir-
skriftum. Þá varð öllum ljóst að ekki
væri hægt að halda svona áfram og
samkomulag náðist um Rögnunefnd-
ina,“ segir Friðrik.
69.804 einstaklingar skrifuðu
undir eftirfarandi yfirlýsingu: „Við
leggjumst gegn þeim áformum að
flugvallarstarfsemi víki úr Vatns-
mýrinni og skorum á Reykjavíkur-
borg og Alþingi að tryggja öllum
landsmönnum óskerta flugstarfsemi
í Vatnsmýri til framtíðar.“
Friðrik vekur sérstaka athygli á
þeirri tillögu nefndarinnar að leitað
verði samkomulags um að rekstrar-
öryggi Reykjavíkurflugvallar í
Vatnsmýri verði tryggt á meðan
nauðsynlegur undirbúningur að öðr-
um flugvelli og eftir atvikum fram-
kvæmdir fari fram. Friðrik segir að
Hjartað í Vatnsmýri hafi krafist þess
að Reykjavíkurflugvöllur í Vatns-
mýri yrði í óbreyttri mynd, þar til
annar flötur yrði kominn á innan-
landsflugið. „Ég skil það [niður-
stöður nefndarinnar] þannig að það
sé í höndum ráðherra og borgarinnar
að tryggja að svo verði, völlurinn fái
að vera þar í friði þar til önnur lausn
verði fundin og byggð,“ segir Frið-
rik.
Næstu skref metin
Ólöf Nordal innanríkisráðherra
hafði ekki tök á að tjá sig um niður-
stöðu nefndarinnar í gær. Eftir
henni er haft í frétt á vef innanríkis-
ráðuneytisins að á næstunni verði
farið yfir skýrslu stýrihópsins og
metið hvert næsta skref verði varð-
andi framtíð Reykjavíkurflugvallar.
Gamall draugur vakinn upp
„Það er verið að vekja upp gamlan
draug,“ sagði Ómar Ragnarsson,
einkaflugmaður og fyrrverandi
fréttamaður, við mbl.is. Hann rifjaði
upp að fyrir 55 árum hefðu verið uppi
hugmyndir um flugvöll í Kapellu-
hrauni, skammt frá Hvassahruni. Sú
hugmynd hefði verið slegin út af
borðinu eftir að prófað hefði verið að
fljúga vélum til skiptist að og frá
Reykjavíkurflugvelli í hvassri aust-
suðaustanátt, sem væri algengasta
vindáttin á höfuðborgarsvæðinu, og
jafnframt að og frá hugsanlegu flug-
vallarstæði í Kapelluhrauni. „Hefur
Reykjanesfjallgarðurinn fjarlægst
og lækkað síðustu 55 árin og hefur
vindurinn minnkað,“ spurði Ómar.
Framsókn og flugvallarvinir segja
í fréttatilkynningu miður að hlutverk
Rögnunefndarinnar hafi ekki verið
að leggja mat á hagkvæmni þess að
halda Reykjavíkurflugvelli í núver-
andi mynd, heldur aðeins að athuga
hvort önnur flugvallarstæði kæmu til
greina fyrir rekstur innanlandsflugs.
Ítrekar flokkurinn stuðning sinn við
óbreyttan Reykjavíkurflugvöll í
Vatnsmýri.
Flugvöllurinn í friði
Talsmaður Hjartans í Vatnsmýri vill að ekki verði hrófl-
að við flugvellinum þar til annar völlur verði byggður
Friðrik
Pálsson
Ómar
Ragnarsson