Morgunblaðið - 26.06.2015, Side 17
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. JÚNÍ 2015
Lögmaður Færeyja, Kaj Leo Holm
Johannesen, gerðist brotlegur við lög
með því að veita færeyska þinginu
rangar upplýsingar. Þetta er niður-
staða skýrslu sem fyrrverandi um-
boðsmaður danska þingsins, Hans
Gammeltoft-Hansen, útbjó að beiðni
þingsins.
Er Johannesen talinn hafa gerst
brotlegur við lög sem eru færeysk út-
gáfa af dönskum lögum um ráðherra-
ábyrgð.
Snýst málið um neðansjávargöng
sem bora átti á milli Þórshafnar og
Austureyjar. Áttu göngin að vera
einkaframkvæmd sem danska fyrir-
tækið Copenhagen Infrastructure
K/S ætlaði að taka þátt í.
Sagði Johannesen endurtekið á
færeyska þinginu að ekkert sam-
komulag hefði verið gert við Copen-
hagen Infrastructure K/S um að
fyrirtækið fengi greiðslur frá ríkinu
færi svo að þingið saþykkti ekki gerð
ganganna.
Landsstjórnin hafði samið
Í ljós kom að þvert á móti hafði
landsstjórnin samið við fyrirtækið
um að ef göngin yrðu ekki samþykkt
á þinginu myndi landsstjórnin greiða
fyrirtækinu eina milljón danskra
króna.
Er það niðurstaða skýrslunnar að
Johannesen og landsstjórnarmaður-
inn Kári P. Højgaard hafi gerst brot-
legir við lög, en Højgaard var yfir-
maður samgöngumála hjá færeysku
landsstjórninni. Er Højgaard enn
fremur talinn hafa gerst brotlegur
við lög með því að hafa leynt endur-
skoðaðri kostnaðaráætlun við göngin.
800 þúsund að milljörðum
Upprunalega sagði Højgaard að
kostnaðurinn við göngin fyrir fær-
eyska ríkið yrði aðeins 800 þúsund
danskrar krónur. Hann greindi
þinginu hins vegar ekki frá því þegar
endurskoðuð kostnaðaráætlun sýndi
að kostnaður ríkisins yrði 1,9-3 millj-
arðar danskra króna.
Færeyska þingið mun í framhald-
inu ákveða hverjar lyktir málsins
verða. Er mælst til þess í skýrslunni
að þingið samþykki ályktun þar sem
háttsemin er fordæmd, en að menn-
irnir tveir verði ekki ákærðir fyrir
landsdómi (d. rigsret).
Johannesen baðst í gær afsökunar
á háttseminni. bmo@mbl.is
Lögmaðurinn
braut lögin
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Þórshöfn Lögmaðurinn gaf þinginu
rangar upplýsingar um samninga.
Gæti farið fyrir landsdóm Færeyja
Skúli Halldórsson
sh@mbl.is
Þjóðarleiðtogar Evrópuríkja hafa
sagt að þeir vilji ekki koma í fram-
kvæmd áætlunum um kvótakerfi
fyrir farandfólk sem kemur til álf-
unnar frá Líbíu og Mið-Austurlönd-
um.
Sérfræðingur breska dagblaðsins
The Guardian segir að í raun hafi
leiðtogar aðildarríkja ESB, á fundi
sínum í Brussel í gær, sagt samband-
inu að vera ekki með nefið ofan í
þeirra eigin málum, enda séu málefni
innflytjenda eldfim í stjórnmála-
umræðu margra landanna.
„Við höfum engan samhljóm með-
al ríkjanna um skyldukvóta fyrir far-
andfólk sem knýr á dyr ríkja sam-
bandsins,“ hefur blaðið eftir Donald
Tusk, forseta leiðtogaráðs Evrópu-
sambandsins. „Það mun taka langan
tíma að ná nýjum samhljómi hvað
varðar innflytjendur.“
Áformað var að umræðan á fund-
inum myndi snúast um skipuleg úr-
ræði til að taka á móti farandfólki, en
leiðtogarnir einbeittu sér heldur að
því að finna leiðir til að halda fólki úti
og flytja á brott þá sem komast inn.
„Fyrst og fremst þurfum við að
halda ólöglegum innflutningi fólks í
skefjum og það ætti að vera okkar
forgangsatriði. Allir þeir sem eru
ekki lögmætir hælisleitendur munu
ekki eiga vísan samastað í Evrópu,“
sagði Tusk.
Skammt er síðan framkvæmda-
stjórn Evrópusambandsins kynnti
róttækar áætlanir þar sem kallað
var eftir kvótakerfi til að dreifa inn-
flytjendum á aðildarríkin. Leiðtog-
arnir höfnuðu þessum áformum á
fundinum í gær.
Hvetja upprunalönd til viðtöku
Samkvæmt nýjustu upplýsingum
frá landamæragæslu ESB, Frontex,
hefur fjöldi farandfólks sem kemur
til landamæra sambandsins 2,5-fald-
ast á þessu ári miðað við síðasta ár,
en þá sóttu rúmlega 600 þúsund
manns um hæli í aðildarríkjunum.
Til að hvetja ríkisstjórnir í upp-
runalöndum farandfólksins til að
taka aftur við fólkinu áætlar sam-
bandið að koma á fót þróunarsjóði og
deila úr honum til ríkjanna, auk þess
sem það mun leitast við að koma á
gagnkvæmum viðskiptasamningum.
Hafna áformum ESB
Leiðtogar ESB-ríkja hafna áætlunum um kvótakerfi á
fundi um málefni farandfólks sem kemur til Evrópu
„Þeir sem ekki eru
lögmætir hælisleit-
endur munu ekki
eiga vísan sama-
stað í Evrópu.“
Donald Tusk
Liðsmenn Ríkis íslams, samtaka ísl-
amista, réðust í gær inn í sýrlensku
borgina Kobane, nokkrum mánuðum
eftir að þeir voru reknir þaðan á
brott í kjölfar síendurtekinna loft-
árása og bardaga við Kúrda. Þykir
innrásin vera bakslag fyrir þann
árangur sem náðst hefur undanfarn-
ar vikur í baráttunni gegn samtök-
unum.
Fréttaritari breska ríkisútvarps-
ins í Mið-Austurlöndum segir innrás-
ina sýna að missir borgarinnar hafi
verið sár fyrir samtökin, þrátt fyrir
lítið hernaðarlegt mikilvægi. Þá segir
hann spurningar hafa vaknað um
hvort samtökin hafi komist inn í
borgina frá Tyrklandi, en borgin
liggur við landamæri Sýrlands og
Tyrklands, og ef sú var raunin, af
hverju Tyrkir stöðvuðu ekki sókn
þeirra.
Virk og fullfær um gagnárásir
Að lokum nefnir fréttaritarinn að
innrásin sé til áminningar um að
þrátt fyrir ósigra undanfarinna vikna
séu samtökin ennþá virk og fullfær
um gagnárásir. Enn fremur gerðu
þau innrás í borgina Hassakeh, í
norðausturhluta Sýrlands, og náðu
hluta hennar á vald sitt, en það hafa
þau reynt mánuðum saman án ár-
angurs. Þykir það fela í sér töluverð-
an sigur fyrir samtökin, en borgin er
sú stærsta í Norðaustur-Sýrlandi og
þar býr rúmlega hálf milljón manna.
Meira en 200 þúsund Sýrlendingar
hafa látið lífið síðan átök hófust í
landinu fyrir fjórum árum. Á sama
tíma hafa 11 milljónir manna neyðst
til að yfirgefa heimili sín.
Réðust aftur inn í Kobane
Bakslag í baráttunni gegn samtökum íslamista í Sýrlandi
Ríkismiðlar
Norður-Kóreu
hafa gefið út
myndir af glæ-
nýjum flugvelli í
höfuðborg lands-
ins, Pjongjang.
Sýna myndirnar
leiðtogann Kim
Jong-un ásamt
eiginkonu sinni skoða veitingastaði
og búðir á flugvellinum. Áætlað er
að flugvöllurinn verði opnaður 1.
júlí, en hann mun aðeins þjónusta
nokkrar flugleiðir.
Fyrr í mánuðinum kom fram að
íbúar landsins glíma við versta
þurrk í heila öld og óttast er að
matur verði brátt af skornum
skammti eins og á tíunda áratugn-
um.
NORÐUR-KÓREA
Vígja nýjan flugvöll í
mesta þurrki í 100 ár
Forseti Rúanda,
Paul Kagame,
segir ákvörðun
breskra stjórn-
valda um að
handtaka yfir-
mann leyniþjón-
ustu Rúanda,
Karenzi Karake,
til marks um
hroka og andúð Breta í garð Afr-
íkubúa. Þá sagði hann handtökuna
vera framhald á gamaldags ný-
lendustefnu.
Karake var handtekinn á Heath-
row-flugvelli á laugardag í kjölfar
handtökuskipunar frá ESB og er
sakaður um að hafa tekið þátt í
þjóðarmorðunum í Rúanda 1994.
RÚANDA
Forsetinn fordæmir
stjórnvöld Bretlands
SAMKVÆMT BÓKSÖLU Í PENNANUM EYMUNDSSON UM LAND ALLT
METSÖLULISTI EYMUNDSSON
VIKAN 17.06.15 - 23.06.15
1 2
5 6
7 8
109
43
Perlur úr ljóðum íslenskra kvenna
Silja Aðalsteinsdóttir valdi
Hamingjuvegur
Liza Marklund
Vegvísir um jarðfræði Íslands
Snæbjörn Guðmundsson
Leynigarður
Johanna Basford
Blóð í snjónum
Jo Nesbø
Konan í lestinni
Paula Hawkins
Tapað fundið
Árelía Eydís Guðmundsdóttir
Rótlaus
Dorothy Koomson
Gæfuspor - Gildin í lífinu
Gunnar Hersveinn
Mindfulness Colouring Book
Emma Farrarons