Morgunblaðið - 26.06.2015, Side 26
26 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. JÚNÍ 2015
Tvíburasysturnar Anna Guðrún og Guðrún Elísabet Stefánsdætureru fertugar í dag. Anna Gunna er umferðar- og skipulagsverk-fræðingur hjá Verkís. Maki hennar er Þröstur Þorkelsson, verk-
fræðingur hjá Tern Systems, og börn þeirra eru Tinna 13 ára, Þor-
steinn 6 ára og Andri sem er nýorðinn eins árs.
Anna Gunna stundar tvisvar til þrisvar í viku blak ásamt systur sinni
hjá HK. „Svo finnst mér gaman í golfi þótt ég spili það ekki mikið.“ Hún
ætlar að halda sig sem mest í bænum í sumar. „Við förum þó eina viku í
sumarbústað.“
Gunna Beta er fæðingarorlofi en hefur í tíu ár verið tölvunarfræð-
ingur hjá Vodafone og á von á því að snúa aftur til starfa í haust. Maki
hennar er Hilmar Veigar Pétursson, tölvunarfræðingur og fram-
kvæmdastjóri CCP. Börn þeirra eru Eva Sólveig 11 ára, Matthías
Rökkvi 4 ára og Harpa Dagný nýorðin 1 árs.
Gunnu Betu finnst gaman að föndra, býr til sín eigin jólakort og af-
mæliskort og svo hefur hún einnig verið í kökuskreytingum. „Við fjöl-
skyldan stefnum á að gera eitthvað í sumar en það er ekki búið að bóka
neitt. Eina leiðin til að fá Hilmar í frí er að taka hann í frí til útlanda.“
Foreldrar Önnu Gunnu og Gunnu Betu eru Hólmfríður Árnadóttir
viðskiptafræðingur og Stefán Pálsson, lögmaður hjá Samgöngustofu.
Bróðir þeirra er Árni Stefánsson, forstjóri Húsasmiðjunnar, og hálf-
systir er Helga Þórdís Guðmundsdóttir organisti.
Tvíburasysturnar ætla að halda sameiginlegt afmæli uppi í Skorradal
á laugardaginn.
Systurnar Gunna Beta og Anna Gunna eftir miðnæturhlaup Suzuki.
Halda afmæli í
Skorradal á morgun
Anna Guðrún og Guðrún Elísabet eru 40 ára
A
nna María fæddist í
Reykjavík 26.6. 1965 og
ólst upp í Álfheimum og
Goðheimum. Hún var í
Vogaskóla, síðar í Lang-
holtsskóla til 12 ára aldurs og í
Kvennaskólanum á meðan hann var
enn grunnskóli: „Við fórum þrjár vin-
konur í Kvennó og þar kynntumst við
hinum 7 saumaklúbbssystrum okkar
sem eru mínar bestu vinkonur. Þetta
eru allt skeleggar stelpur sem móta
samfélagið hver á sinn hátt. En það
fer frekar lítið fyrir handavinnunni.“
Anna María lauk stúdentsprófi frá
MS 1985, fór síðan á æskuslóðir föður
síns í Vínarborg, bjó þar í eitt ár,
lærði þýsku í háskólanum og passaði
börn: „Vinkona mín kom líka til Vínar
í sömu erindagjörðum og við áttum
frábært ár. Ég mæli með því að ungt
fólk hleypi heimdraganum og reyni á
eigin getu og áræði. Ég hóf svo nám í
viðskiptafræði við HÍ 1986 og útskrif-
aðist í júní 1990.“
Anna María var í unglingavinn-
unni, starfaði hjá SS í Glæsibæ, í fisk-
verkun á Kirkjusandi og hjá Bjarna í
Brauðbæ frá 16 ára aldri, í sum-
arvinnu og með skóla. Hún vann í
Seðlabankanum eitt sumar og var
síðan flugfreyja hjá Flugleiðum á
sumrin á háskólaárunum.
Anna María vann hjá Frjálsri fjöl-
miðlun við markaðsmál 1991-2000:
„Frjáls fjölmiðlun var þá í uppgangi
með skemmtilega þróunarvinnu.
Hugað var að viðskiptavinum út frá
lýðfræðilegum breytum. Ég tók þátt í
Anna María Urbancic framkvæmdastjóri – 50 ára
Fjölskyldan Á myndinni eru, talið frá vinstri: Finnur og Anna María, Oliver Páll, Viktor Pétur, Ebba Katrín, Árni
Grétar og Melkorka Þöll tengdadóttir. Á myndina vantar Gígju Björg, tengdadóttur þeirra Finns og Önnu Maríu.
Menningin er auðlind
Í gönguferð Eftir göngu á Síldarmannagötu. Skorradalsvatn í baksýn.
Reykjanesbær Sigurþór
Adrían Haraldsson
fæddist 26. júní 2014 kl.
11.24. Hann vó 3.504 g
og var 50 cm langur.
Foreldrar hans eru
Fanney Guðrún
Sigurþórsdóttir og
Óskar Haraldsson.
Nýr borgari
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
Glæsileg armbandsúr
Bankastræti 6 – sími 551 8588 – gullbudin.is
29.200
32.500 36.990 27.300 33.800
24.700 39.900 31.500