Morgunblaðið - 26.06.2015, Blaðsíða 27
stofnun Visis.is, tímaritið Fókus var
stofnað og á dagskrá var samruni
dagblaða. Ýmsar breytingar á starfs-
mannamálum voru í deiglunni og ég
var ráðin í nýja stöðu starfsþróunar-
stjóra.“
Anna María fór síðan í masters-
nám í stjórnun og stefnumótun við
HÍ og útskrifaðist í febrúar 2005:
„Ég fór aftur af stað haustið 2012 og
kláraði fyrri hlutann í master í op-
inberri stjórnsýslu. Nú er ég í náms-
pásu að skoða næstu námsskref.“
Anna María vann hjá umhverfis-
ráðuneytinu 2005-2008: „Stjórnsýsl-
an átti vel við mig en mig langaði í
bankageirann sem þá var á fljúgandi
siglingu. Ég vann hjá Glitni í hálft ár í
alþjóðlegri mannauðsdeild þar til
nokkuð var ljóst hvert stefndi og al-
þjóðadeildin var lögð niður. Haustið
2008 byrjaði ég hjá Listasafni Íslands
og er mjög ánægð þar. Við eigum
ótrúlegan menningararf og sam-
félagið þarf að átta sig á þessum fjár-
sjóði. Við eigum að nýta hann betur
til þroska og þekkingar fyrir þjóðina
og ferðamenn. Við eigum svo margt
fleira en fallega náttúru.“
Anna María lærði á píanó í sex ár
og var í ballett í nokkur ár: „Eigin-
maðurinn semur tónlist og texta og
börnin hafa öll lært á hljóðfæri. Það
er mikið spilað, hlustað, sungið og
farið á tónleika. Við erum veiði-
fjölskylda og skíðafólk. Svo erum við
FH-ingar. Eiginmaðurinn og börnin
hafa öll verið í fótbolta og handbolta
og því er vel fylgst með gengi félags-
ins. Í sumar verður farið á niðjamót í
Austurríki en pabbi á þrjár systur
sem búa hver í sínu landinu. Við höld-
um niðjamót á fjögurra ára fresti til
skiptis á Íslandi, í Austurríki og í
Bandaríkjunum. Þá er vel mætt og
mikil stemning. Mótin hafa viðhaldið
sterkum fjölskylduböndum, þvert á
öll landamæri.“
Anna María sat í Unglingaráði FH
og var gjaldkeri þess í nokkur ár, sat
í Foreldraráði Hafnarfjarðar, í stjórn
Foreldrafélags Setbergsskóla, í
stjórn Íslensku tónlistar-
verðlaunanna og í stjórn Sinfóníu-
hljómsveitar Íslands 2007-2014: „Við
eigum frábæra Sinfóníuhljómsveit og
tónlistarfólk. Það er gott að búa á Ís-
landi en okkar frábæra menning er
vanmetin og vannýtt auðlind.“
Fjölskylda
Eiginmaður Önnu Maríu er Finnur
Árnason, f. 12.9. 1961, forstjóri Haga.
Foreldrar hans voru Sigríður Oli-
versdóttir, f. 18.6. 1935, d. 26.2. 2014,
húsfreyja í Hafnarfirði, og Árni Grét-
ar Finnsson, f. 3.8. 1934, d. 11.10.
2009, hrl. í Hafnarfirði.
Börn Önnu Maríu og Finns eru
Árni Grétar, f. 14.5. 1990, meistara-
nemi í lögfræði við HÍ, búsettur í
Reykjavík en unnusta hans er Mel-
korka Þöll Vilhjálmsdóttir, meistara-
nemi í lögfræði; Ebba Katrín, f. 7.4.
1992, verkfræðinemi og verðandi
leiklistarnemi við LHÍ; Oliver Páll, f.
21.9. 1995, nemi og veiðimeistari, en
unnusta hans er Gígja Björg Guð-
jónsdóttir framhaldsskólanemi, og
Viktor Pétur, f. 26.10. 1999, nemi og
snillingur.
Systkini Önnu Maríu eru Ásta Me-
litta Urbancic, f. 9.10. 1958, landfræð-
ingur hjá Hagstofu Íslands í Reykja-
vík; Viktor J. Urbancic, f. 24.2. 1961,
framkvæmdastjóri Sparibíls í
Reykjavík; Linda Katrín Urbancic, f.
21.10. 1966, móttökufulltrúi og versl-
unarkona í Reykjavík; Elisabet Sig-
ríður Urbancic Lose, f. 1.11. 1972,
verkfræðingur í Beirút í Líbanon.
Foreldrar Önnu Maríu: Pétur M.P.
Urbancic, f. 4.7. 1931, fyrrv. banka-
fulltrúi, hljóðfæraleikari, skjalaþýð-
andi og leiðsögumaður í Reykjavík,
og Ebba Ingibjörg E. Urbancic, f.
10.7. 1933, d. 31.3. 2015, kennari í
Reykjavík.
Úr frændgarði Önnu Maríu Urbancic
Anna María
Urbancic
Ernst Urbancic
læknir í Vín
Hilda Urbancic
húsfr. í Vín
Dr. Victor J. Urbancic
hljómsveitarstj. og tónskáld í Vín og í Rvík
Dr. Melitta Urbancic
myndhöggvari og skáld í Vín og í Rvík
Pétur M.P. Urbancic
bankafulltr., hljóðfæraleikari,
leiðsögum. og skjalaþýð. í Rvík
Alfred Grünbaum
lögm. í Vín
Ilma Grünbaum
húsfr. í Vín
Sigurgeir Þórðarson
sjóm. í Rvík
Egill Sigurgeirsson
hrl. í Rvík
Ásta Jóhanna Dahlmann
húsfr. í Rvík
Ebba Ingibjörg E. Urbancic
kennari í Rvík
Jón Dahlmann
ljósmyndari í Rvík
Ingibjörg Dahlmann
húsfr. í Rvík
Jón Axel Egilsson
kvikmynda-
gerðarm.
Davíð Þór Jónsson
héraðspr. í Austur-
landsprófastsdæmi
Ásta Melitta
Urbancic
margfaldur
Íslandsmeistari
í borðtennis
Sigurður Dahlmann
umdæmisstj. Pósts
og síma á Ísafirði
Jóhanna Dahlmann
fyrrv. banka- og skrif-
stofum. í Garðabæ
Gunnar Karl
Guðmundsson fyrrv.
forstj. Skeljungs
Sigurður Bragi
Guðmundsson
rallkappi
Guðrún
Nikulásd.
húsfr.
í Rvík
Sigríður
Júlíusd.
húsfr.
í Rvík
Sigríður
Dúna Krist-
mundsdóttir
prófessor
emeritus,
fyrrv. sendi-
herra og
fyrrv. alþk. í
Rvík
Sigríður
Erlendsdóttir
bústýra í Rvík
Sibyl Urbancic
kórstjóri
Ruth Ólafsdóttir leikkona
í Bandaríkjunum
Rudolph Urbancic
í Vín
Elisabet Urbancic
búningahönnuður
í Þýskalandi
Christoph Waltz
leikari og tvöfaldur
óskarsverðlaunahafi
ÍSLENDINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. JÚNÍ 2015
Halldóra fæddist á Sandi íAðaldal 26.6. 1905. For-eldrar hennar voru Sigurjón
Friðjónsson, bóndi á Litlulaugum, og
k.h., Kristín Jónsdóttir.
Sigurjón var sonur Friðjóns Jóns-
sonar, bónda á Sandi, og k.h., Sigur-
bjargar Guðmundsdóttur, en Kristín
var dóttir Jóns Ólafssonar, bónda á
Rifkelsstöðum í Eyjafirði og k.h.,
Halldóru Ásmundsdóttur. Bróðir
Sigurjóns var Guðmundur Friðjóns-
son, skáld frá Sandi.
Níu af systkinum Halldóru komust
til fullorðinsára en meðal þeirra voru
Arnór, skólastjóri Alþýðuskólans á
Laugum; Dagur, skólastjóri barna-
skólans á Litlulaugum; Fríður, ljós-
móðir; Ásrún, hjúkrunarkona í
Reykjavík, og Bragi, alþingismaður.
Halldóra giftist 1933 Halldóri Víg-
lundssyni, síðar vitaverði, en þau
slitu sam vistir 1942. Börn þeirra eru
Halldór, fyrrv. yfirlæknir á Kristnes-
spítala; Svanhildur, fyrrv. starfs-
maður BSRB, og Kristín, fyrrv. al-
þingiskona.
Halldóra þótti rösk til vinnu og
náms. Hún lærði við Alþýðuskólann á
Laugum 1926-27, stundaði nám í hús-
stjórnarfræðum við húsmæðraskól-
ann Helsingegården í Svíþjóð 1927-
28, lauk húsmæðrakennaraprófi í
Rimforsa 1930 og fór námsferð til
Norðurlanda 1950 og tók m.a. þátt í
kennaranámskeiði í uppeldis-
hagfræði í Uppsölum.
Halldóra kenndi við Húsmæðra-
skólann á Laugum frá 1930, varð
skólastjóri skólans 1946 og gegndi
því starfi í 20 ár.
Úlfur Bragason, bróðursonur
Halldóru, lýsir henni svo í minning-
argrein: „Halldóra var fremur hlé-
dræg, fámælt og orðvör þótt hún
væri alveg feimnislaus og ákveðin í
framkomu. Hún var meðalkona á
hæð, beinvaxin og grannholda, and-
litsdrættirnir skarpir og festa í svipn-
um, dökkhærð en hærðist snemma.
Hreyfingar hennar voru kvikar og í
fullu samræmi við röskleika hennar.
Hún var fremur alvörugefin en hress
í tali við kunnuga. Ræktarleg var hún
við þá sem henni voru hollir og hlý
þeim sem henni geðjaðist að.“
Halldóra lést 10.4. 1994.
Merkir Íslendingar
Halldóra Sigurjónsdóttir
95 ára
Rannveig Sigurðardóttir
90 ára
Gísli Gíslason
85 ára
Jón Sigurðsson
Rita Vilh. Þorvaldsson
Svala Björgvinsdóttir
80 ára
Jensa Kitty Petersen
Jóhann Emil Björnsson
75 ára
Ingunn Pálsdóttir
70 ára
Agnes Jónsdóttir
Guðleif Guðlaugsdóttir
Jens Guðmundsson
Pálmey Ottósdóttir
Sigrún Davíðsdóttir
Sven Þórarinn Sigurðsson
Vilmundur Þór Jónasson
60 ára
Einar Þórir Magnússon
Guðmundur Gísli Björnsson
Inga Mjöll Harðardóttir
Kristín Benediktsdóttir
Kristín Helgadóttir
Lára Marelsdóttir
Páll Guðnason
Pálmi Jónsson
Ragnar Geir Hilmarsson
Sigurður Ólafsson
Þórður Þórðarson
50 ára
Anna Margrét Tómasdóttir
Ásdís Gísladóttir
Eiður Eiríkur Baldvinsson
Emilia Anna Leper
Gunnar Páll Kristinsson
Hafdís Halldóra
Steinarsdóttir
Ingibjörg Hólm Einarsdóttir
Jón Garðar Hreiðarsson
Magnús Halldór Frostason
Margrét Þorsteinsdóttir
Pálína R. Sigurðardóttir
Rúnar Reynisson
Sigrún Guðmundsdóttir
Sigurður Arnar Árnason
Valdimar Jónsson
Þröstur Ólafsson
Þuríður Saga
Guðmundsdóttir
40 ára
Ásta Sól Kristjánsdóttir
Halla Björg Þórhallsdóttir
Jadwiga Zofia Adamczyk
Kolbrún Stígsdóttir
Sigrún Eiríksdóttir
Steingrímur Þór
Gunnarsson
Steinn Símonarson
Vibeke Svala Kristinsdóttir
Þórólfur Sveinsson
30 ára
Andri Ólafsson
Anna Guðrún Hallsdóttir
Arna Ómarsdóttir
Arnar Már Magnússon
Daníel Jón Guðjónsson
Elísa Sigríður
Guðmundsdóttir
Fernando Sazatornil Juarez
Guttormur Arnar Ingvason
Heiða Lind Baldvinsdóttir
Jelena Avramovic Bibic
Loic Björn de la Forest
Ómar Karl Sigurjónsson
Pawel Pierzga
Til hamingju með daginn
30 ára Sólrún ólst upp í
Boston, býr í Hafnarfirði
og stundar nám í sál-
fræði.
Maki: Ólafur Már Jóns-
son, f. 1985, útsendinga-
stjóri hjá RÚV.
Börn: Jón Þór, f. 2008;
Súsan Klara, f. 2010, og
Sonja Lillý, f. 2013.
Foreldrar: Hafþór Ingv-
arsson, f. 1957, safnstjóri
við Listasafn Reykjavíkur,
og Sarah Brownsberges,
f. 1959, rithöfundur.
Sólrún
Hafþórsdóttir
30 ára Hanna Guðný ólst
upp í Vogum, býr í Kópa-
vogi, er veitingastjóri á
Nam og söngkona.
Maki: Roland Þór Fair-
weather, f. 1981, véla- og
orkutæknifræðingur og
málari.
Börn: Emma Lind, f.
2009; Emilía, f. 2012, og
Natan Myrkvi, f. 2013.
Foreldrar: Hallgrímur
Kristinn Hilmarsson, f.
1954, og Sólveig Guðna-
dóttir, f. 1964.
Hanna Guðný
Fairweather
30 ára Kolfinna ólst upp í
Breiðholtinu, býr í Kópa-
vogi, lauk BS-prófi í ferða-
málafræði og markaðs-
fræði frá HÍ og er hótel-
stjóri á Center Hotels
Arnarhvoli.
Börn: Tristan, f. 2009, og
Amelía, f. 2011.
Foreldrar: Hildur Ingv-
arsdóttir, f. 1960, banka-
starfsmaður, og Arn-
grímur Jónsson, f. 1957,
sjómaður. Þau búa í
Kópavogi.
Kolfinna
Birgisdóttir
mbl.is/islendingar
islendingar@mbl.is
Börn og brúðhjón
Tónastöðin • Skipholti 50d • Reykjavík • sími 552 1185 • www.tonastodin.is
gerðu tónlist á makkann þinn
Duet 2
stúdíógæði í lófastærð
One
fyrir einfaldar upptökur
MiC
hágæða upptökur
Jam
alvöru gítarsánd