Morgunblaðið - 26.06.2015, Side 30
30 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. JÚNÍ 2015
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Þarna er farið í gegnum Íslandssög-
una frá landnámi til nútímans með
sérstaka áherslu á Eyfirðinga. Titill
verksins vísar til Grímeyjar á norð-
urheimskautsbaug, því Grímsey er
hluti af Ak-
ureyri,“ segir
Anna Bergljót
Thorarensen, höf-
undur einleiksins
Let’s talk Arctic
sem frumsýndur
verður í Hofi í
kvöld kl. 20. Leik-
stjóri sýning-
arinnar er Jón
Páll Eyjólfsson
en Benedikt Karl
Gröndal fer með öll hlutverkin.
„Benedikt bregður sér í allra kvik-
inda líki og leikur bæði menn og dýr,
því hann skellir sér í smástund í hlut-
verk svíns. Hann leikur bæði Íslend-
inga og útlendinga, því bæði Dana-
konungur og Noregskonungur koma
mikið við sögu í forsögu okkar, þann-
ig að hann þarf að setja upp kórónu
nokkrum sinnum,“ segir Anna Berg-
ljót, en meðal annarra lykilpersóna
verksins eru Jón Sigurðsson, Þórunn
hyrna og Helgi magri. „Við leikum
okkur með þá hugmynd að Helgi hafi
flúið foreldra sína og farið til Íslands
vegna uppnefnisins sem þau gáfu
honum,“ segir Anna Bergljót og við-
urkennir fúslega að hún leyfi sér að
fara býsna frjálslega með söguna og
skálda í eyðurnar, þó engu sé beinlín-
is logið. „Í upphafi verksins tökum
við skýrt fram að allt sem fyrir augu
beri sé satt eða a.m.k. ekki lygi. Við
erum því ekki að ljúga neinu þó við
skreytum söguna örlítið!“
Varð óvart leikskáld
Spurð hvort sýningin sé aðeins
ætluð útlendingum í ljósi þess að hún
sé leikin á ensku svarar Anna Berg-
ljót því neitandi. „Ég held að heima-
menn hafi mjög gaman af því að
heyra söguna sína í nýjum búningi.
Sýningin er fyrir alla sem skilja
ensku, hvort heldur það eru Íslend-
ingar eða útlendingar.“
Aðspurð segist Anna Bergljót ekki
hafa nákvæma tölu á þeim leik-
verkum sem hún hafi skrifað í gegn-
um tíðina. „Let’s talk Arctic er þriðja
leikritið sem ég skrifa á ensku í Let’s
talk-seríunni. Litla gula hænan, sem
leikhópurinn Lotta sýnir um þessar
mundir, er fimmta leikritið sem ég
skrifa fyrir Lottu og þess utan hef ég
skrifað fjöldann allan af styttri verk-
um fyrir leikskóla,“ segir Anna Berg-
ljót og ljóstrar því upp að hún hafi
eiginlega óvart orðið leikskáld.
„Mjallhvít, sem Lotta setti upp sum-
arið 2011, var fyrsta leikritið sem ég
skrifaði ein. Ætlunin var að skrifa
það í samvinnu við annan mann, en
fyrr en varði var ég búin með allt
handritið,“ segir Anna Bergljót og
rifjar upp að hún hafi þó byrjað
snemma að skrifa. „Ég var ekki
nema sex ára þegar ég byrjaði að
skrifa bækur fyrir sjálfa mig.“
Þess má að lokum geta að Let’s
talk Arctic verður sýnt í sumar alla
þriðju-, miðviku- og fimmtudaga kl.
14 og á föstu- og laugardögum kl. 20.
Fjölhæfur Benedikt Karl Gröndal.
„Skreytum
söguna örlítið!“
Let’s talk Arctic frumsýnt í Hofi
Anna Bergljót
Thorarensen
Davíð Már Stefánsson
davidmar@mbl.is
„Fyrsta ástin var í raun myndavélin
og ljósmyndir,“ segir Dagur Gunn-
arsson, ljósmyndari, rithöfundur og
dagskrárgerðarmaður, en hann
opnar í dag sýninguna Á förnum
vegi í Kubbnum, sýningarsal
Ljósmyndasafns Reykjavíkur. Þar
mun hann sýna portrettljósmyndir
af fólki sem hefur orðið á vegi hans.
Tilfinningaþrungið verk
„Ég hef mestan áhuga á fólki. Ég
tek mikið viðtöl við fólk og bý til að
mynda til eins konar portrett af því
í útvarpinu. Verkefnið Á förnum
vegi byrjaði sem
einhvers konar
dagbók, ég tók
myndir af fólki
sem ég rakst á
eins oft og ég
mögulega gat og
setti í möppu á
facebook. Þegar
ég var kominn
upp í fimm
hundruð port-
rettmyndir lokaði ég þeirri möppu
en hef haldið verkefninu áfram. Nú,
fimm árum síðar, fékk ég myndlist-
armanninn og grafíska hönnuðinn
Harra Gylfason til að vera sýning-
arstjóri þessarar sýningar. Hann
valdi úr og setti saman sýninguna.
Hann kom inn með svolítið aðra sýn
í þetta og valdi til að mynda ljós-
myndir sem ég hefði ekki valið;
myndir sem eru kannski ekki
tæknilega fullkomnar en hafa ein-
hverja ákveðna tilfinningu sem
hann sá. Hann fékk því frjálsar
hendur og úr varð hálftíma
skyggnulýsing,“ segir Dagur. Þess
má geta að frumsamin tónlist Jó-
hanns Jóhannssonar verður spiluð
undir verkinu en Dagur segir verk-
ið nokkuð tilfinningaþrungið.
„Þetta eru allt svarthvítar mynd-
ir. Þessi andlit eru víða að, ég hef
ferðast svolítið um heiminn. Þarna
eru einnig kunnugleg andlit við-
mælenda minna úr útvarpinu auk
fjölmiðlafólks sem hefur lent fyrir
linsunni hjá mér,“ segir hann og
bætir við að auk þess sé fjöldinn
allur af fólki sem hann hefur ein-
faldlega rekist á úti á götu.
Ljósmyndunin er kjölfesta
Sýningin sem verður opnuð í dag
er aðeins fyrri hluti sýningarinnar
Á förnum vegi en eftir um það bil
þrjár vikur verður síðari hlutinn
opnaður í sal, á jarðhæð sama húss,
sem tilheyrir Borgarbókasafni. Þá
segir Dagur portrettmyndir einkar
heillandi auk þess sem þær liggi vel
fyrir sér.
„Sumir myndast auðveldlega og
einfaldlega, aðrir eru tregir til að
láta mynda sig. Það er áskorun sem
ég hef gaman af, það er að segja að
ná góðri mynd af fólki sem segist
ekki myndast vel. Það er bara þetta
blik í auganu sem skiptir öllu máli,“
segir Dagur en eins og áður segir
hefur hann starfað við ýmislegt
annað en ljósmyndun í gegnum tíð-
ina.
„Ég sökkti mér í ljósmyndun sem
unglingur. Síðan hafa komið aðrir
hlutir eins og lífsbaráttan og önnur
áhugamál. Þegar ég fór að vinna
sem ljósmyndari fóru einnig að
koma upp beiðnir um texta með, ég
fór þá smám saman að skrifa meira.
Það er togað í mann úr ýmsum átt-
um. Ljósmyndunin er þó kjölfestan
í mínu lífi fyrir utan eiginkonu og
barn,“ segir hann að lokum en þess
skal getið að sýningin Á förnum
vegi mun standa til 13. september.
Ljósmynd/Dagur Gunnarsson
Portrett Ingunn Ásdísardóttir er meðal þeirra sem hafa setið fyrir hjá Degi.
Blik í auga skiptir mestu
Ljósmyndasýningin Á förnum vegi opnuð í Kubbnum í dag
Portrettmyndum Dags verður gert hátt undir höfði
Dagur
Gunnarsson
Stjórn Bandalags
íslenskra lista-
manna, BÍL, hefur
sent mennta- og
menningar-
málaráðherra, Ill-
uga Gunnarssyni,
og utanrík-
isráðherra, Gunn-
ari Braga Sveins-
syni, ályktun þar
sem þeir eru hvatt-
ir til að bregðast við lokun íslenska
skálans á Feneyjatvíæringnum.
Í ályktuninni er talað um nauðsyn
þess að íslensk stjórnvöld bregðist
við og fái skálann opnaðan á ný hið
allra fyrsta. Þar segir meðal annars:
„Stjórn BÍL telur að lögreglu-
yfirvöld í Feneyjum hafi farið út fyr-
ir valdsvið sitt þegar skálanum var
lokað og að íslensk stjórnvöld þurfi
að bregðist við til að fá skálann opn-
aðan að nýju. Þar þarf að koma til
sameiginlegt átak utanríkisráð-
herra, Gunnars Braga Sveinssonar,
og mennta- og menningarmála-
ráðherra, Illuga Gunnarssonar,
enda varðar málið samskipti milli
ríkja og því nauðsynlegt að utan-
ríkisráðuneytið beiti sér í málinu.“
Vegið sé að tjáningarfrelsi lista-
mannsins Christophs Büchel og í
ljósi þess að tjáningarfrelsið er
verndað samkvæmt stjórnarskrá og
í alþjóðlegum mannréttinda-
samningum, sé það hlutverk ís-
lenskra stjórnvalda að bregðast við
þegar að því sé vegið.
BÍL ályktar um
Feneyjaskálann
Úr íslenska sýn-
ingarskálanum.
Sumarheftið 2015
komið út
Þjóðmál— tímarit um stjórnmál og
menningu — hefur nú komið út í tíu ár
í ritstjórn Jakobs F. Ásgeirssonar.
Þjóðmál koma út fjórum sinnum á ári —
vetur, sumar, vor og haust. Tímaritið fæst
í lausasölu í helstu bókabúðum og
nokkrum stórmörkuðum, en
ársáskrift kostar aðeins 5.000 kr.
Áskriftarsími: 698-9140. Ugla