Húnavaka - 01.05.2004, Blaðsíða 164
162
HUNAVAKA
hana fengum aö njóta. Systkinabörnum sínum var hún stoö og stytta þeg-
ar þau dvöldu í Reykjavík yfir lengri eða skemmri tíma.
Anna var vinmörg og hjálpsöm kona sem alltaf var til staðar þegar eitt-
hvað bjátaði á hjá fjölskyldunni og vinum hennar. Hún eignaðist ekki
sjálf börn eða maka en þeir voru margir sem fengu að njóta hjálpsemi
hennar og vináttu. Hún var hinn sterki leiðsögumaður bæði í starfi sínu
og einkalífi. Þótt Anna væri lengst af fjarri æskustöðvunum voru sterk
böndin við sveitina hennar og æskuheimilið. Hún hafði gaman af útivist
og að renna fyrir lax eða silung og tók þá gjarnan með eitthvert af systk-
inabörnum sínum. Hún hafði yndi af hestum og í æsku átti liún góðan
hest sem henni þótti mjög vænt um.
Utför Onnu fór fram frá Bústaðakirkju 15. desember en aska hennar
varjarðsett í heimagrafreit að Gunnsteinsstöðum í Langadal.
Eg vil enda þessi minningarorð með þessum fallegu ljóðlínum:
Man ég æskuárin,
yndisbros og tárin.
Gleði og sviðasárin.
Sól og daga langa,
vinarhönd á vanga.
Nú græt ég sárt um sólarlag
þau sumarbros og liðinn dag.
(Stefán frá Hútadal).
Erla Hafsteinsdóttir.
Katrín Bryndís Sigurjónsdóttir,
Skagaströnd
Fædd 17. ágást 1922 - Dáin 8. desember 2003
Katrín Bryndís, eða Stella eins og hún var gjarnan kölluð manna á milli,
var fædd á Vindhæli í Vindhælishreppi. Hún var dóttir hjónanna, Sigur-
jóns Jóhannssonar, kennara og hreppstjóra, fæddur 1889 - dáinn 1967,
og konu hans, Jóhönnu Jóhannsdóttur, fædd 1892 - dáin 1966. Einn
bróður átti Stella, Harald að nafni, fæddur 1914 - dáinn 1986.
Stella ólst upp í foreldrahúsum sín bernsku- og æskuár en fór að heim-
an er unglingsárunum sleppti og þegar hún var í kringum tvítugt hóf
hún sambúð meðjóhanni Dalmann Jakobssyni, sjómanni ogverkamanni
á Skagaströnd, fæddur 1913 - dáinn 1987. Þau Stella ogjóhann gengu í
heilagt hjónaband 19. júní 1949 en höfðu þá tæpum sex árum áður eign-
ast sína einkadóttur, Hrafnhildi, fædd 1943. Hrafnhildur er gift Sigur-
jóni Guðbjartssyni skipsstjóra, fæddum 1941, og eiga þau tvö börn, son