Fréttablaðið - 11.11.2015, Side 2

Fréttablaðið - 11.11.2015, Side 2
Suðlæg átt 5-13 m/s og áframhaldandi skúrir sunnan og vestan til, jafnvel slydduél, en hægari vindur og nokkuð bjart norðaustanlands. Hiti um eða undir frostmarki fyrir norðan, en upp í 5 stig sunnan heiða. Sjá Síðu 20 Veður Hávaðamengun sagt stríð á hendur Sakamál „Ég mun þróa þessa nýju stöðu og vera tengiliður til þeirra hópa í samfélaginu sem haturs- glæpir beinast gegn,“ segir Eyrún Eyþórsdóttir sem tekur við nýrri stöðu innan lögreglunnar á höf- uðborgarsvæðinu eftir áramót og rannsakar hatursglæpi. „Þróunin í Evrópu er skýr, þar hafa þessir glæpir verið teknir föstum tökum og við fylgjum þeirri þróun hér á landi. Við tökum mið af nágrannalöndum okkar,“ segir Eyrún og nefnir sérstaklega starf lögreglunnar í Ósló sem hún hefur kynnt sér vel auk þess sem lög- reglan í Stokkhólmi sé vel að sér í málaflokknum. „Bara á þessu ári hafa yfir hundr- að hatursglæpir verið skráðir í Ósló. Það er engin ástæða til að halda að ástandið sé öðruvísi hér. Það er búið að vera töluvert um ummæli gagnvart samkynhneigð- um hér á landi í tengslum við Gay Pride í fyrra og hinsegin fræðslu í Hafnarfirði og þá er þekkt dæmið þegar moskulóðin var smánuð. Það þarf að rannsaka þess konar athæfi með tilliti til hvort um hatursglæp er að ræða. Eyrún segir fólk eiga almennt að gera sér grein fyrir því þegar það brýtur lög og sumir telji tjáningar- frelsi algilt. „Málið er bara það að það er hægt að takmarka tjáningar- frelsið, það er til dæmis rökstuðn- ingur ríkissaksóknara þegar hann ákveður að fella úr gildi ákvörðun lögreglustjóra um að rannsaka ekki ummæli sem Samtökin ’78 telja hatursummæli. Fólk þarf betur að gera sér grein fyrir að það má ekki segja allt og gera allt gagnvart fólki.“ Hluti af starfinu verður einnig að fylgjast með uppgangi öfgahópa. „Það hafa sprottið upp hópar sem hafa talað sterkt gegn múslimum og öðrum hópum. Það þarf ef til vill að skoða nánar hvort þarna sé eitthvað sem varðar við lög.“ Þeir sem fremja hatursglæpi segir Eyrún vera fólk sem fær útrás fyrir ofbeldishneigð sína með þessum hætti. „Almennt er talað um að gerendur í hatursbrotum sé fólk sem er fullt af hatri og telur fólk, sem er að einhverju leyti ólíkt því sjálfu, ógna sér.“ kristjanabjorg@frettabladid.is Fylgist með uppgangi öfgahópa á Íslandi Eyrún Eyþórsdóttir mun aðstoða við að bera kennsl á hatursglæpi og kortleggja áhættuhópa hér á landi. Hún segir nauðsynlegt að taka glæpina föstum tökum. Eyrún segir hatursglæpi í miklum mæli hafa beinst gegnt samkynhneigðum og transfólki í Evrópu. Fréttablaðið/VilhElm Bara á þessu ári hafa yfir hundrað hatursglæpir verið skráðir. Það er engin ástæða til að halda að ástandið sé öðruvísi hér. Eyrún Eyþórsdóttir lögreglufulltrúi Umferðin um Hafnarfjarðarveg getur skapað mikinn hávaða og ónæði fyrir þá sem þar eru dagsdaglega. Í aðgerðaáætlun Garðabæjar gegn hljóð- mengun var gert ráð fyrir að hljóðmönum yrði komið upp. Það er nú orðið að veruleika. Fréttablaðið/GVa lögreglumál Greindarskertur hol- lenskur maður var úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald og einangrun í Héraðsdómi Reykjaness í þrjár vikur til viðbótar í gær. Mað- urinn hefur verið í einangrun á Litla- Hrauni síðan 29. september. Hann ásamt tveimur Íslendingum og öðrum Hollendingi er í einangrun í tengslum við rannsókn á smygli á 23 kílóum af sterkum fíkniefnum til landsins með Norrænu. Allir voru þeir úrskurðaðir í þriggja vikna áframhaldandi gæsluvarðhald. Fréttablaðið greindi frá því á dög- unum að fjölskylda mannsins hafi haft miklar áhyggjur af honum í um mánuð og hafi ekki fengið neinar upplýsingar um ferðir hans. Gæsluvarðhaldsúrskurðirnir voru fengnir á grundvelli rannsóknarhags- muna svo sakborningar geti ekki haft áhrif á framgang rannsóknar lögregl- unnar að sögn Aldísar Hilmarsdóttur aðstoðaryfirlögregluþjóns. Verjendur sakborninganna hafa allir kært þennan úrskurð Héraðs- dóms Reykjaness til Hæstaréttar sem mun kveða upp sinn úrskurð á fimmtudag. – ngy Greindarskertur fangi áfram í einangrun um hve r f iSm ál Hreppsnefnd Kjósar hrepps hefur lýst stuðningi við bókun sveitarstjórnar Hval- fjarðarsveitar sem vill herða veru- lega mengunarvarnakröfur og eftir- lit með álverinu á Grundartanga. Þar á að auka framleiðslugetu verk- smiðjunnar um 50 þúsund tonn. „Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar gerir einnig fjölmargar athugasemd- ir við tillögu Umhverfisstofnunar að nýju starfsleyfi, og vill ekki að Norðurál beri sjálft ábyrgð á meng- unarmælingum,“ vitna Kjósverjar til bókunar nágranna sinna handan Hvalfjarðar. – gar Mæli ekki mengun sjálf kjaramál Alþýðusamband Íslands (ASÍ) segir mikilvægt að Ríkisskatt- stjóri (RSK) taki alvarlega ábendingar þeirra sem næst standa vinnumarkaði um möguleg skattabrot með útvistun verkefna til erlendra fyrirtækja sem hér veiti tímabundið þjónustu. Í greinargerð á vef ASÍ segist sam- bandið ósammála því sem haft hafi verið eftir sviðsstjóra fyrirtækjaskrár RSK í fréttum RÚV um að ekkert bendi til slíkra undanskota. „Á síðustu vikum og mánuðum hefur Alþýðusambandinu og aðildar- samtökum þess borist upplýsingar um vaxandi fjölda erlendra fyrirtækja sem eru með tímabundna starfsemi hér á landi einkum í tengslum við mann- virkjagerð.“ Oft sé um að ræða undir- verktaka hjá íslenskum aðilum. – óká Segja víst svikist um 1 1 . n ó v e m b e r 2 0 1 5 m i ð v i k u D a g u r2 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a ð i ð 1 2 -1 1 -2 0 1 5 1 5 :5 4 F B 0 4 8 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 6 E D -F D 0 4 1 6 E D -F B C 8 1 6 E D -F A 8 C 1 6 E D -F 9 5 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 4 8 s _ 1 0 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.