Fréttablaðið - 11.11.2015, Qupperneq 8
löggæsla Vinnueftirlit ríkisins hefur
á skrá rétt tæplega 400 vinnuslys hjá
lögreglumönnum á fjögurra ára tíma-
bili, 2011 til 2014. Flest bendir til að
opinberar tölur um vinnuslys lögregl-
unnar séu allt of lágar en tugir mála
eru hjá lögmönnum til úrlausnar er
varða lögreglumenn sem hafa slasast
við störf.
Fréttablaðið hefur að undanförnu
fjallað ítarlega um starfsaðstæður lög-
reglunnar, en Vinnueftirlitið lét þess
getið í síðustu ársskýrslu sinni að strax
við hrun og árin á eftir hafi því verið
beint til stjórnvalda að huga að vinnu-
vernd – enda þegar allt er skoðað ættu
stjórnvöld að ganga á undan með
góðu fordæmi. Það sé hins vegar fjarri
því að vera raunin og var sérstaklega
tekið til þess að stærsti hópurinn sem
um ræðir sé lögreglan. Vandi lögregl-
unnar er varðar vinnuvernd sé mikill
og viðvarandi undirmönnun rót þess
vanda.
Haraldur Johannessen ríkislög-
reglustjóri hefur staðfest við Frétta-
blaðið að lögreglumenn við störf á
Íslandi þurfi að vera 860 að lágmarki
– á sama tíma er lögregluliðið 640
manns og hefur þeim farið sífellt fækk-
andi á undanförnum árum en þeir
voru 712 árið 2007.
Samkvæmt slysatölfræði Vinnu-
eftirlitsins voru tilkynnt 554 slys á
lögreglumönnum á níu ára tímabili –
árin 2006 til ársloka 2014. Samkvæmt
upplýsingum frá Vinnueftirlitinu var
skráningu þessara slysa þó ábótavant
til ársins 2010 þegar skráning batnaði
verulega. Frá 2011 til 2014 voru 398
slys tilkynnt – tæplega 100 árlega hjá
hópi manna sem voru 610 til 647 við
störf á tímabilinu.
Snorri Magnússon, formaður
Landssambands lögreglumanna (LL),
telur það mat lögmanna félagsins að
vinnuverndarmálum sé ekki gefinn
nægilegur gaumur. Þá sé skráningum
vinnuslysa lögreglumanna, sem er
á ábyrgð stjórnenda stofnana, mjög
ábótavant þó einstök embætti hafi
sitt á hreinu.
Kristinn Tómasson, yfirlæknir
Vinnueftirlitsins, sem hélt á penna í
hvassri gagnrýni á Stjórnarráðið, og
ekki síst innanríkisráðherra, í nýjustu
ársskýrslu stofnunarinnar segir málið
alvarlegt. „Þetta er alvörumál að stór
hópur lögreglumanna slasast á hverju
ári. Þetta kallar á betri mönnun og
þjálfun til að tryggja öryggi og heilsu
lögreglumanna og þar með betri lög-
gæslu fyrir okkur borgarana,“ segir
Kristinn.
Fréttablaðið hefur fengið það stað-
fest, þar á meðal frá embætti ríkislög-
reglustjóra, að engin miðlæg skráning
er á landsvísu um þau slys sem lög-
reglumenn verða fyrir í vinnu sinni.
Snorri segir að eðli málsins sam-
kvæmt séu vinnuslys stéttarinnar
oft öðruvísi en gengur og gerist með
önnur vinnuslys. „Það eru vinnuslys
hjá lögreglumönnum ef þeir lenda í
árekstri sem veldur meiðslum, lenda
í átökum við misindismenn eða kasta
sér á eftir fólki sem hefur fleygt sér í
sjóinn.“
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins hafa lögmenn LL til með-
ferðar um sextíu mál er varða bætur
til handa lögreglumönnum sem hafa
slasast með einum eða öðrum hætti –
en þrettán öðrum málum var þó lokað
á þessu ári.
Strax árið 2010 kom fram í skýrslu
ríkislögreglustjóra um ofbeldi gegn
lögreglunni það mat embættisins að
lögreglan sé komin að þolmörkum
hvað varðar starfsmannafjölda. Frekari
fækkun lögreglumanna sé líkleg til að
draga úr öryggi lögreglumanna þar sem
lögreglustjórar munu þurfa að fækka á
vöktum og láta lögreglumenn starfa
eina fremur en með félaga. Hvetur ríkis-
lögreglustjóri til þess að lögreglustjórar
leggi faglegt mat á öryggi lögreglu-
manna og geri viðeigandi ráðstafanir,
og sjái þeir að öryggi lögreglumanna
sé stefnt í hættu vegna manneklu eða
skorts á búnaði bregðist þeir við og
upplýsi ríkislögreglustjóra um stöðu
mála. svavar@frettabladid.is
Sláandi fjöldi vinnuslysa
Ein birtingarmynd manneklu hjá lögreglu virðist mikill fjöldi skráðra vinnuslysa.
Á 4 árum voru 398 vinnuslys tilkynnt. Lögreglan undirmönnuð um 240 manns.
✿ lögreglan stórlega undirmönnuð
398
-
82
640
lögreglumenn
við störf í
febrúar 2015
220
lögreglumenn
vantar til að lágmarks
ölda lögreglu-
-
manna sé náð
mál vegna vinnuslysa tilkynnt
mál vegna
vinnuslysa
til lög-
fræðings
í ár
Tilkynnt
vinnuslys
á lögreglu
mönnum
2011-2014
Þetta er alvörumál
að stór hópur
lögreglumanna
slasast á hverju
ári.
Kristinn Tómasson,
yfirlæknir Vinnu-
eftirlitsins
GRÍPUR MEIRA EN ATHYGLINA
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is
Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · Heklusalurinn Ísafirði www.skoda.is
Verð frá aðeins
2.290.000 kr.
Þér á eftir að líka vel við ŠKODA Fabia. Glæsileg hönnunin nær niður í minnstu smáatriði og gerir aksturinn
skemmtilegri hvert sem þú ferð. Það er engin tilviljun að ŠKODA Fabia skyldi vera valinn bíll ársins af WhatCar?
og hljóta Red Dot hönnunarverðlaunin 2015. Komdu og prófaðu nýjan ŠKODA Fabia. Hlökkum til að sjá þig.
Fabia – nýi verðlaunagripurinn frá ŠKODA
1 1 . n ó v e m b e r 2 0 1 5 m I Ð v I K U D a g U r8 f r é t t I r ∙ f r é t t a b l a Ð I Ð
1
2
-1
1
-2
0
1
5
1
5
:5
4
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
E
E
-9
F
F
4
1
6
E
E
-9
E
B
8
1
6
E
E
-9
D
7
C
1
6
E
E
-9
C
4
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
4
8
s
_
1
0
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K