Fréttablaðið - 11.11.2015, Page 28
Örvar Snær Óskarsson hefur verið
ráðinn sem sérfræðingur hjá Júpíter.
Örvar hefur starfað hjá Landsbank-
anum frá árinu 2011 en starfaði áður
hjá Fjármálaeftirlitinu. Örvar er með
B.Sc.-gráðu í fjármálaverkfræði frá
Háskólanum í Reykjavík og M.Sc. í
fjármálastærðfræði frá Queen Mary
University í London. – sg
Örvar Snær ÓSkarSSon
Lýður Heiðar Gunnarsson hefur
verið ráðinn nýr framkvæmdastjóri
fjármálasviðs Eikar fasteignafélags
hf. Hann mun taka við starfinu af
Kolbeini Friðrikssyni á næstu mán-
uðum. Lýður er viðskiptafræðingur
að mennt frá Háskólanum í Reykja-
vík og lauk meistaraprófi í fjárfest-
ingarstjórnun frá sama skóla. Hann
starfaði áður sem forstöðumaður
eignastýringar hjá Lífsverki lífeyris-
sjóði. – sg
Lýður Heiðar GunnarSSon
Svipmynd
ÞorGeir BaLdurSSon
„Það er svolítið skrítið að yfirgefa
Odda eftir öll þessi ár, ég neita
því ekki, en það er alveg tíma-
bært,“ segir Þorgeir Baldursson,
fráfarandi forstjóri Prentsmiðj-
unnar Odda. Hann hefur starfað
hjá fyrirtækinu í yfir fimmtíu ár,
þar af sem forstjóri fyrirtækisins
og tengdra félaga í rúmlega þrjá-
tíu ár. „Ég er kominn á áttræðis-
aldur, og þá á yngra fólk að taka
við og hefði átt að gera það fyrir
löngu ,“ segir Þorgeir og bætir við
að hann sé mjög ánægður með
eftirmann sinn.
Aðspurður segist Þorgeir ekki
vera með nein ákveðin plön
að starfslokum, hann ætli bara
að njóta frítímans. „Ég ætla að
njóta einhverra ára í ellinni án
þess að vera bundinn einhverj-
um skyldustörfum. Ég er heil-
mikill útivistarmaður og dunda
í hestamennsku og sumarbústað
og skógrækt. Ég hef ýmislegt fyrir
stafni,“ segir Þorgeir.
Þorgeir er hluthafi í Odda.
Hann segist ætla að halda hlut
sínum eftir starfslok og jafnvel
sitja í stjórn félagsins, hins vegar
sé það ekki alráðið enn. „Ég verð
viðloðandi til að byrja með. En
mín ósk væri nú innan tíðar að
ég myndi láta öðrum stjórnar-
stöður eftir,“ segir Þorgeir.
Oddi er stærsti pappírs- og
plastframleiðandi landsins.
Þorgeir segir að starfsemin sé
mjög breytt frá því þegar hann
fyrst hóf störf. Hann byrjaði á
Grettisgötunni hjá litlu fyrir-
tæki sem sinnti helst bóka- og
tímaritaprentun auk almennrar
prentunar. Fyrirtækið stækkaði
og byggði nýtt hús uppi á Höfða-
bakka árið 1981 og þá breyttist
hlutverk þess. „Það þótti vera
svolítið djarft þar sem við vorum
að færa okkur út fyrir bæinn á
þeim tíma, en það skapaði fyrst
möguleika til að gera eitthvað
í alvöru, bæði í prentun og vél-
væðingu í bókaframleiðslunni,“
segir Þorgeir.
„Starfsemin er orðin svo
margbrotin. Áður fyrr lögðum
Útilokar ekki að taka sæti í
stjórn Prentsmiðjunnar Odda
Þorgeir Baldursson lét af störfum sem forstjóri Prentsmiðjunnar Odda á dögunum eftir rúmlega þrjátíu ára
starf. Hann hefur starfað hjá fyrirtækinu í 55 ár og segir reksturinn hafa gjörbreyst á þeim tíma.
Lýður tekur við
af Kolbeini
Örvar nýr
sérfræðingur
hjá Júpíter
Ég er heilmikill
útivistarmaður og
dunda í hestamennsku og
sumarbústað og skógrækt.
Ég hef ýmislegt
fyrir stafni.
Þorgeir Baldursson
við mesta áherslu á bækur og
almenna prentverkið. Í dag eru
70 prósent af okkar veltu í öskju,
bylgju og plasti. Auk þess hefur
fyrirtækið sameinast öðrum
fyrirtækjum í bransanum, meðal
annars Kassagerðinni, Umbúða-
miðstöðinni, og Gutenberg.
Þannig að þetta er svo sem ekki
sama fyrirtæki og það var þegar
maður byrjaði,“ segir Þorgeir.
Þorgeir hefur verið iðinn í
félagsstörfum og hefur meðal
annars starfað fyrir Sjálfstæðis-
flokkinn. Hann segist hins vegar
alfarið hættur að skipta sér af
störfum flokksins og hafi ekki
einu sinni mætt á landsfundinn í
ár. „Ég er að draga mig út úr flestu
því sem ég var að sinna á þessum
tíma. Þannig að ég er ekki að fara
að snúa mér að því aftur,“ segir
Þorgeir.
saeunn@frettabladid.is
Guðný Halla Hauksdóttir hefur
verið ráðin nýr forstöðumaður
þjónustuvers hjá Orkuveitu Reykja-
víkur. Undanfarin tvö ár vann hún
sem sérfræðingur í þjónustumálum
hjá VÍS. Guðný Halla er viðskipta-
fræðingur og útskrifaðist frá Háskól-
anum í Reykjavík árið 2011. Í kjölfarið
útskrifaðist hún úr MBA-námi við
Háskóla Íslands árið 2014. – sg
Nýr
forstöðumaður
þjónustuvers OR
Guðný HaLLa HaukSdÓttir
Þorgeir Baldursson segir það svolítið skrítið að yfirgefa Odda eftir öll þessi ár í starfi. FréttaBlaðið/GVa
Verð á olíutunnu mun ekki ná
80 Bandaríkjadölum fyrr en
árið 2020 samkvæmt meginspá
Alþjóðaorkumálastofnunarinnar
um þróun olíuverðs næstu árin.
Verð á olíutunnunni er nú undir
50 Bandaríkjadölum eftir að hafa
staðið í 115 Bandaríkjadölum
sumarið 2014.
Samkvæmt spánni mun eftir-
spurn eftir olíu aukast um innan
við eitt prósent á ári fram til
ársins 2020. Það dugi ekki til að
mæta miklu framboði af olíu
sem og auknu framboði endur-
nýjanlegra orkugjafa. Vilyrði sem
mörg af stærstu ríkjum heims hafa
gefið um að draga úr koltvísýr-
ingslosun næstu árin hafa einnig
áhrif í spánni. Búist er við því að
Bandaríkin, Japan og Evrópusam-
bandsríkin muni draga úr eftir-
spurn eftir olíu næsta aldarfjórð-
ung. Þetta hefur Financial Times
eftir Fatih Birol, framkvæmda-
stjóra Alþjóðaorkumálastofnun-
arinnar.
Eftir 2020 muni eftirspurn eftir
olíu nánast standa í stað og ein-
ungis aukast um fimm prósent
næstu tuttugu árin.
Framleiðsla ríkja utan OPEC
hefur dregist saman að undan-
förnu, sérstaklega í Bandaríkjun-
um. Á sama tíma hafa Sádi-Arabía
og Íran aukið framleiðslu sína sem
viðhaldið hefur lágu olíuverði.
Minni hagvöxtur í Kína og þá
sérstaklega hægari vöxtur í verk-
efnum sem tengjast stóriðju eru
sögð hafa mikil áhrif á að olíu-
verðið haldist lágt. Hagvöxtur í
Kína verði fremur drifinn áfram
af einkaneyslu en orkufrekum
iðnaði.
Olíufélög hafa þurft að takast á
við verðlækkanirnar með því að
draga úr útgjöldum og segja upp
mörg þúsund manns sem og setja
26 þúsund milljarða fjárfestingar
í stórum olíuvinnsluverkefnum í
biðstöðu samkvæmt frétt Reuters.
Þá muni aukið framboð endur-
nýjanlegra orkugjafa enn frekar
draga úr eftirspurninni eftir olíu á
næstu árum. – ih
Búast við að olíuverð haldist lágt fram til 2020
Olíuvinnsla í ríkjum utan OPEC hefur dregist saman að undanförnu. Hér má sjá
starfsmann vinna við olíuborholu í Kasakstan. FréttaBlaðið/GEtty
1 1 . n ó v e m b e r 2 0 1 5 m I Ð v I K U D A G U r8 markaðurinn
1
2
-1
1
-2
0
1
5
1
5
:5
4
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
6
E
E
-8
C
3
4
1
6
E
E
-8
A
F
8
1
6
E
E
-8
9
B
C
1
6
E
E
-8
8
8
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
4
8
s
_
1
0
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K